Upp í vindinn - 01.05.1982, Side 18

Upp í vindinn - 01.05.1982, Side 18
Plastklæðningar. A.m.k. tveir aðilar selja plastklæðningar sem ætlaðar eru utan á hús. Ekki hafa þessar gerðir þó náð verulegri út- breiðslu. Múrklæðningar Loftræstar múrklæðningar hafa enn ekki verið notaðar hérlendis þrátt fyrir töluverða notkun erlendis. Loftræstar múrklæðningar eru víða notaðar sem ysta byrði yfir endur- einangrun. Tvímælalaust er um verðugt verkefni að ræða að skapa verkkunnáttu og reynslu, til að gera loftræsta múrklæðningu þannig að viðunandi árangur fáist. Verður þessi klæðning þvi rædd ýtarlegar en aðrar klæðningar. Heppilegast virðist að festa grind úr málmprófílum á steypta vegginn sem einangrað er í. Á þessa grind er síðan strengt nokkuð þétt múrnet með pappalagi undir. Síðan er múrað á netið. Gæta þarf sérstaklega að köntum og hornum og láta málmgrindina styrkja þá staði þannig að klæðningin þoli hnjask. Milli einangrunar og múrklæðningar myndast loft- ræst bil sem veldur því að loftraki í húsinu loftast út, (sjá mynd 2.1.). Málmlekta Steypa Einangrun Vindpappi Loftræst bil Pappalag/múrnet Múrhúóun Hornstykki úr götuóum málmprófíl Mynd 2.1. Loftræst múrklæðning Lárétt snið í horn. 3. EINANGRUN SÖKKUL.r EÐA KJALLARA- VEGGJAR AÐ UTAN. Samfara því að hús eru einangruð og klædd að utan, þá er eðlilegt að einangra einnig niður með sökkul- eða kjall- aravegg. Þá vinnst m.a. að kludabrú sem kann að vera við mót gólfplötu og útveggjar hverfur. Kanteinangrun gólfs á fyllingu má einnig auka með þessu móti (mynd 3.1.) og sama gildir um einangrun kjallaraveggja. Hafa ber í huga að einangrun sem er í snertingu við jarð- veg þarf að sérframleiða í því augnamiði. Framleiddar eru bæði styrencell-plastplötur og steinullarmottur sem þola að Mynd 3.1. Á um 1m breiðu randsvæði gólfs tapast varminn út til útiloftsins eins og myndin sýnir. Að öðru leyti er varmatapið niður í jarðlög undir húsinu. liggja að jörð. Raunar eru steinullarmotturnar einnig gerðar með það fyrir augum að virka sem þerrilag við kjallaravegg. Þó verður að gæta þess vatn geti ekki runnið niður í kant einangrunarinnar. Því hærra sem slík einangrun nær upp á sökkulvegginn því betri verður árangurinn, (mynd 3.2.). Einangrunina er einnig hægt að draga upp að neðri brún klæðningar (mynd 3.3.), en þá þarf að hlífa einangruninni með t.d. steinplötum eða múrhúð. Við nýbyggingar, sem eru einangraðar utan er sjálfsagt að athuga hvort ekki henti að einangra sökkul- eða kjall- araveggi einnig að utan. Þannig mætti koma í veg fyrir allar kuldabrýr, auk þess sem hætta á sprungumyndun vegna hitaþenslna minnkar mjög mikið. Hlíf úr t.a. galvaniseruóu blikki, eóa tjörupappa Sérframleiddar einangrunarplötur/ mottur Mynd 3.2. Viðbótareinangrun utan á sökkulvegg, einangra má kjallaravegg á svipaðan hátt. Því hærra sem einangrað er upp eftir veggnum því meira gagn er að einangruninni, sem eykur kanteinangrun gólfs og getur dregið úr kuldabrú við gólfplötu. (Ástæðulaust er að einangra sökkulvegg lengra niður en sem svarar til 1m undir yfirborð jarðvegs. Mynd 3.1.). Hlíf úr t.d. steinplötum eða múrhúð Sérframleiddar einangrunar- plötur/mottur Mynd 3.3. Einangrað á sökkul- eða kjallaravegg um leið og aðalhæð er einangruð og klædd utan. Ef kjallar- aveggur er einangraður fyrir innan, þá má ekki bera sökkulasfalt utan á vegginn undir nýju ein- angrunina. 4. FRÁGANGUR KLÆÐNINGAR Margt er að varast við frágang klæðningar. Við festingar málmklæðninga skal velja skrúfur og festingar þannig að tæring myndist ekki við festingarnar. Auk þess verða deili- lausnir að vera þannig að vatn eða raki geti hvergi safnast fyrir í eða á klæðningarhlutum. Við þak þarf að gæta þess að klæðning hindri ekki nauð- synlega loftræstingu þaksins. Að okkar mati er veðráttu hér þannig háttað að varla er hægt að byggja velheppnaða 18

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.