Upp í vindinn - 01.05.1982, Side 20
veggklæðningu án þess að hún sé loftræst.
Þegar eldri hús eru klædd utan reyna menn oftast að
nýta tækifærið og einangra húsið utan um leið.
Erfiðast verður oftast að finna heppilegan frágang við
glugga sem uppfyllir allar kröfur um útlit og skaðar ekki
timbrið í gluggunum.
Nauðsynlegt virðist vera að hreinsa burtu múrhúðun úr
gluggaopi til þess að geta gengið vel frá klæðningaráfellum
og vatnsbrettum við glugga á eldri húsum.
Dæmi um frágang timburklæðningar utan á
qamalt steypt hús sem er einanqrað oq klætt má siá á
mynd 4.1., 4.2. og 4.3.
5. KOSTNAÐUR MISMUNANDI ÚTVEGGJA-
KLÆÐNINGA
[ töflunni hér að neðan er efnis- og vinnukostnaður áætl-
aður við útveggjaklæðningu með mismunandi veggklæðn-
ingu. Útveggjaklæðningin er reiknuð með 1 1/2“ og 3“ ein-
angrun í grind. Verðlag 1. apríl 1982.
6. ENDURBORGUNARTÍMI KLÆÐNINGAR
OG EINANGRUNAR
Eins og áður er nefnt, þá er ástæðan fyrir að eldri hús
eru klædd utan oftast nær einhverjir gallar sem lagfæra
þarf, t.d. alkalískemmdir, sprungur, leki o.s.frv. Oftast eru
húsin þó einnig viðbótareinangruð um leið og þau eru
klædd. Þó svo orkusparnaður sé ekki aðalforsenda fyrir
framkvæmdum, þá er engu að síður forvitnilegt að athuga
hver endurborgunartíminn sé. Við einangrun húss undir
klæðningu þá vinnst tvennt:
í fyrsta lagi þá minnkar varmatap út um kuldabrýr all-
verulega, en tap um kuldbrýr er oftast um 15-18% af
heildarleiðnitapinu. Fyrir steypt hús með steyptar gólf- og
loftplötur sem ganga út í útvegg og veggeinangrun um
2 1/2", þá er tap um kuldabrýr hússins um 70% meira en
leiðnitap útveqqjanna.
í öðru lagi þá eykst veggeinangrun hússins, og leiðni-
tapið minnkar.
Gerum ráð fyrir að tap um kuldabrýr minnki um 60%
þegar húsið er einangrað og klætt utan. Útfrá kostnaði við
Járn og gler hf. Hverfisgötu 46b, S. 18830 / Verkfræðistofa Guðmundar Oskarssonar Laugavegi 20
Glerskálinn Smiðjuvegi 42, S. 75580 / Verslunarbanki Islands
20