Upp í vindinn - 01.05.1982, Qupperneq 36

Upp í vindinn - 01.05.1982, Qupperneq 36
Asbjörn Jóhannsson, verkfr. Rannsóknastofn- un byggingariðnaðarins Klæðning með möl Inngangur Klæöningar eru ekki nýjar af nálinni. Þær hafa veriö not- aðar áratugum saman í Bretlandi, Frakklandi og víöar. Þar hefur tíökasl að nota aöeins ákveðnar steinastæröir í klæöningar t.d. 4-8 mm, 8-12 mm eöa 12-16 mm. En árið 1963 byrjuðu Norðmenn tilraunir með aö nota óflokkaða möl í klæðningar. Eftir margra ára tilraunir heppnaöist þeim að búa til nothæft slitlag sem þeir kölluöu „Ottadekke" eftir smábæ í Vestur-Noregi. Þessi slitlagstegund hefur veriö kölluð „klæöning meö möl“ á íslensku. Hún náöi brátt mikl- um vinsældum í Noregi og árið 1977 höfðu verið lagðir um 5500 km af þessu slitlagi í Noregi. Sumariö 1978 var í fyrsta skipti lögö klæðning meö möl á íslandi svo vitað sé. Þaö voru þrír tilraunakaflar sem Vega- gerð ríkisins lagði, einn í Þingvallasveit annar undir Hafnar- fjalli og sá þriöji viö Blönduós. Þessi tilraun heppnaöist í stórum dráttum vel og var ákveðið aö halda áfram lagningu þessa slitlags. Þetta slitlag hefur nú verið lagt á um 210 km af íslenska vegakerfinu, þar af um 100 km síðastliðið sumar. Reynslan er góö og má reikna meö aö þessi slit- lagstegund verði notuð í ört vaxandi mæli í framtíðinni. Efni Bindiefnið er venjulega BL 1500M eða BL 1500R, hið síðarnefnda er ávallt notað þegar kalt er í veðri. Vegolía hefur einnig verið notuð með góðum árangri. í bindiefnið er ávallt blandað viðloðunarefni (amin) til að tryggja viðloðun milli steinefna og bindiefnis. Steinefnið þarf að hafa góða viðloðunareiginleika en að öðru leyti eru kröfurnar ekki strangar. Það má gjarnan vera rakt en ekki rennblautt. Mynd 1 sýnir markalínur fyrir sáld- urferil skv. norskum kröfum, sem eru mjög rúmar enda hafa Norðmenn lagt á það mikla áherslu að þetta slitlag eigi fyrst og fremst að vera ódýrt og því megi efniskröfur ekki vera strangar. Vegagerð ríkisins hefur hingað til gert mun strang- 36 ari kröfur til steinefnisins, meðan þetta slitlag er á tilrauna- stigi, en nú stendur til að slaka á þeim til samræmis við norsku kröfurnar. Á hvern fermetra af einfaldri klæðningu þarf 15-20 lítra af steinefni og 1,5-2,0 lítra af bindiefni. Þykktin á einfaldri klæðningu er um 1,5-2,0 cm. Útlögn Ef lagt er á gamlan malarveg þarf að hefla malarslitlagið burtu. Burðarlag þarf að rétta af með hefli og valta, og má gjarna vera aðeins rakt þegar lagt er á það. Bindiefninu er sprautað heitu yfir burðarlagið með sérstökum dreifara og mölinni stráð yfir strax á eftir meðan bindiefnið er heitt. Hún er síðan völtuð ofan í bindiefnið með léttum valtara. Möl, sem er umfram þarfir og ekki festist í bindiefninu, þyrlar umferðin út á kantana. Stundum er henni líka sópað út af með vélsóp, nokkrum dögum eftir útlögn. Hérlendis er yfir- leitt lagt annað lag ofan á hið fyrra 2-4 vikum síðar. Kostnaður Skv. upplýsingum frá Vegagerð ríkisins kostaði hver fer- metri af tvöfaldri klæðningu um 14 kr. árið 1979. Þessi kostnaður var um 34% af kostnaði við malbiksslitlag og um 50% af kostnaði við olíumalarslitlag. Er þá ekki tekið tillit til endingar hvers slitlags um sig. Ending Hérlendis er ekki komin svo ýkja mikil reynsla á endingu. Þó er Ijóst að hún er að verulegu leyti háð undirbyggingunni og er það í samræmi við reynslu Norðmanna. Þeir telja að tvöföld klæðning með möl endist í 10 ár á vegi með 1000 bíla umferð á dag og góðri undirbyggingu. Á vegum með nokkrar öxulþungatakmarkanir á vorin telja þeir endinguna vera ca. 8 ár fyrir tvöfalda klæðningu og 3-4 ár fyrir einfalda klæðningu. U.S. Standard sieve sizes
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Upp í vindinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.