Upp í vindinn - 01.05.1985, Blaðsíða 36
Um lóörétt skipulag var fylgt hliðstæðri leið. Lítil herbergi
er æskilegra að hafa lægri en stór, en ( stórum rýmum er
mikil lofthæð næstum óhjákvæmileg. í húsum af þessu
tagi með mjög breytilegum herbergjastærðum er þetta
gjarnan leyst með niðurhengdum loftum.
í hugvísindahúsinu er vinnuherbergjunum (17,9m2) raðað
saman I sérálmu og lofthæð þarvalin með tilliti til herbergja-
stærðar. Þarsem húsið erá þrem hæðum er gólf 2. hæðarallt
haft í sömu hæð, bæði í herbergjaálmu og norðurhluta (þ.e. í
mið og kennslurýmum) meðan gólfi á jarðhæð er sökkt í
norðurhluta en lyft á 3. hæð til að fá meiri lofthæð þar sem
stærri rými eru. Með þessu var komist hjá niðurhengdum
loftum í suðurhluta hússins, þ.e. kennaraherbergjum. Teng-
ingum milli hæða var svo náð með stigum og skábrautum í
miðrými.
Eitt af höfuðmarkmiðum við skipulag hússins var að það
yrði sem mest ein heild, fremur en aðskildir hlutar. Hér var sú
leið valin að setja lóðréttar samgönguleiðir sem næst miðju
hússins (fullbyggðs) þar sem lárétt umferð mættist. Til að
undirstrika þetta er aðalstiginn undinn utanum op í gólfinu
þannig að á hverri hæð er hluti af miðrýminu jafnframt hluti
aðalstigans. Þáeru einnig skorin göt f gólf annarrarog þriðju
hæðartil að bætasjóntengsl og hleypadagsbirtu niður í mið-
rýmin frá gluggum á þaki. Það er skoðun þeirrasem að þessu
stóðu að götin séu ekki „glataðir fermetrar" eins og vís kven-
skörungur hafði á orði.
í tæknilegu tilliti er Hugvisindahúsið að flestu leyti það
sem kalla mætti dæmigert fyrir sinn tíma, hannað á árunum
1979—1980. Burðarvirki er steypt á staðnum. Útveggir ein-
angraðirað innan með plasti, múrhúðun að innan en hraunun
að utan. Hluti veggja þ.e. bönd milli glugga í suðurálmu er þó
steyptur við mót klædd gúmmímottum sem gefa endanlega
áferð á steypuna. Þak er steypt, einangrað að ofan, með upp-
stóluðu timburþaki pappaklæddu. Við gerð þaks var komið
fyrir á þakviðum nemum fyrir raka og hita. Nemar þessir eru
á 10 stöðum og tengdir mælistöð. Fylgst er nú með raka og
hitastigi i þakrými og viðum. Ervon að með þessu geti fengist
fróðlegar upplýsngar um þessi atriði, miðað við mismunandi
veðurskilyrði. Þó þessi gerð þaks hafi verið notuð víða og sé
langt frá því ný (samanber aðalbyggingu) er vitneskja um
loftunarþörf þar sem rýmið er að öðru leyti lokað mjög tak-
mörkuð. Við hönnun nota hönnuðir gjarnar tölur byggðar á
mati og persónulegri reynslu viðkomandi.
Húsið er með miðstöðvarofnum undirgluggum og loftræst
um opnanleg fög i gluggum. Auk þess er loftræstikerfi í
kennslurýmum og almennum rýmum.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á hljómburð og hljóð-
einangrun í húsinu. Öll rými voru reiknuð fyrir æskilegan óm-
tímaog hönnun miðuð við það. Til þessa þurfti verulegt magn
ísogsefnaeinkum f miðrýmum. Þávar lögð sérstök áherslaá
að hindra hljóðburð milli herbergja og má í því sambandi
nefnaað loftstokkarað kennslurýmum liggja í steyptum vegg
Myndir: (að ofan)
Suðvesturhorn og hlið að Sturlugötu.
Séð frá norð-vestri.
Séð frá austri og austur-inngangur.
Aðalinngangur er snýr að Árnagarði. Fatageymsia fyrir miðri
mynd.
36