Upp í vindinn - 01.05.1985, Side 58

Upp í vindinn - 01.05.1985, Side 58
MYND 8 ) Fyrir þetta ákveðna kerfi kemur mest allur kostnaðurinn fram í einu og sama árinu, en þetta er nokkuð háð því kerfi sem verið er með. En hvað skeður, ef markaður er hærri en orkugetan? Það er sýnt á mynd 8 sem sýnir niðurstöðu rekstrareftirlíkinga, ef markaðurinn er 60 GWh (rúmlega 1%) hærri en orkugetan. Á erfiðasta árinu nemur orkuvinnsla í olíustöðvum og skortur nú 310 GWh í stað 235 GWh áður. Kostnaðurinn mældur í GWh í gufuaflsstöð, er nú 518 áerfiðastaárinu í stað 448 áður og meðalkostnaður 30 ára hefur hækkað úr 17,4 i 26,8 miðað við sömu mælieiningu. Ef reiknað er með, að framleiðslu- kostnaður f gufuaflsstöð sé 3,4 kr/kWh (verðlag í des. 1984), þá þýðir þetta i erfiðasta árinu hækkun úr 1520 M.kr. i 1760 M.kr. Hér er um sambland af útlögðum kostnaði orkufyrir- tækjaað ræðaog þjóðhagslegum kostnaði vegnaorkuskerð- ingar. Til samanburðar má geta, að Blönduvirkjun kostar um 4,8 milljarða króna á sama verðlagi. Við að auka markaðinn i þessu dæmi hér að framan, kom fram mikil aukning í breytilega kostnaðinum. Meðalkostn- aður 30 vatnsára hækkaði um 32 M.kr., en það jafngildir 54 aurum/kWh að meðaltali fyrir þær 60 GWh sem markaðs- vöxturinn nam. Þetta er svipað og orkukostnaðurinn frá nýrri virkjun. Kostnaðaraukinn á erfiðasta árinu samsvarar hins vegar 400 aurum/kWh fyrir þessa 60 GWh markaösaukningu, reglulega af ölmm fjöldanum! eðaáttföldum kostnaði orku fránýrri virkjun. Rétt erað benda á, að þetta dæmi á við erfiðasta ár sem mælst hefur, en enginn veit hve slæmt ár getur komið. Hér að framan hefur verið rakið hvernig staðið er að út- reikningi á orkugetu raforkukerfisins. Eins og fram hefur komið, miðast hann við rennsli eins og það var á timabilinu 1950—1979. í þessum reikningum er því ekki á neinn hátt tekið tillit til möguleika á þurrari árum en fram koma á tíma- bilinu. Einnig skal ítrekað, að orkugetan er reiknuð fyrir ákveðna samsetningu orkumarkaðar og geta breytingar þar á leitt til annarrar niðurstöðu. Við tímasetningu nýrra virkjana er hinsvegar miðað við orkumarkað eins og hann er áætlaður á hverjum tíma og er þá samsetninging gjarnan önnur. Þetta getur leitt til flýtingar virkjunarframkvæmda, samanborið við beinan samanburð markaðar og orkugetu, ef eingöngu er reiknað með aukningu f almennri notkun, því sá markaður er mun erfiðaðri en stóriðjumarkaðurinn. Þessu veldur hin ójafna dreifing orkunotkunar innan ársins, þar sem almenn- ingurnotarmiklaorku ávetrum en litlaásumrin, meðan orku- notkun stóriðju er jöfn allt árið. Cód vinná/y>^=^ og hagstætt verd geta farið saman LITGREINING FILMUVINNA - TÖLVUSI AUGLÝSINGAGERÐ ■ OFFSE' REYKJAVfKURVECI 64 - 221 Furu & grenipanell. Gólfparkett — Gólfborð Furulistar — Loftaplötur Furuhúsgögn — Loftabitar Haröviðarklæðningar — Inni og eldhúshurðir — Plast og spónlagðar spónaplötur. HAROVIÐARVAL hF= Skemmuvegi 40 KÓPAVOGI s. 74111 58

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.