Upp í vindinn - 01.05.1985, Blaðsíða 80

Upp í vindinn - 01.05.1985, Blaðsíða 80
Ós hf. — ný steypuverksmiðja Ný steypuverksmiðja tók til starfa laugardaginn 24. nóvember 1984. Hún er í eigu Óss hf. Hún er i Garðabæ að Suðurhrauni 2. Opnunarathöfnin fór virðulega fram, fjöldi gesta naut rausnarlegra veitinga og hlýddi á lúðraþyt og ávörp Ólafs Björnssonar stjórnarformanns, Einars Þ. Vilhjálmssonar framkvæmdastjóra, tveggja fulltrúa fyrirtækja þeirra erlendra, er framleiddu vélar þær, er steypuverksmiðjan notar, og Sverris Hermannssonar iðnaðarráðherra. Undirbúningsvinna hafði þá tekið um þrjú ár, en tæpt ár að reisa sjálft verksmiðjuhúsið. Lóð verksmiðjunnar er 4,5 hektarar. Húsið er nú um 2500 fermetrar, en ætlunin er að stækkaþað síðar í rúma4000 fermetra. í verksmiðjunni starfa um 30 manns. Alls mun verksmiðjan kosta 80—90 milljónir króna. Fé þetta kemur úr þremur áttum. Iðnlánasjóður lánaði 30 mill- jónir króna, Iðnþróunarsjóður lánaði 14,5 milljónir, en fyrir- tækið sjálft lagði fram afganginn. Vélar og tæki eru dönsk og hollensk, en í Danmörku og Hollandi mun steyputækni nú standa með einna mestum blóma i Evrópu. Forráðamenn verksmiðjunnar hafa lagt mikið kapp á að búa hana sem bezt undir átök viðskiptalífsins og hrósasér af því, að engin steypuverksmiðja í heimsálfu okkar standi þessari jafnfætis. Fleira má nefna af því, sem stjórn- endur Óss hf., telja verksmiðjunni til ágætis. Tölva hefur umsjón með allri framleiðslunni allt frá hráefnum til fullunn- innar vöru. Verksmiðjan getur starfað eðlilega allt árið, óháð tíðarfari. Leitazt er við að hafa gæðaeftirlit sem tryggast. Fylgzt er með hráefni og framleiðslu daglega á staðnum og að auki er Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins send sýni reglulega. Þar eð verksmiðja þessi er mjög fjölhæf og fram- leiðsla sveigjánleg, er auðvelt að koma til móts við hugsan- legar sérkröfur viðskiptavina varðandi lit og lag. SteypuverksmiðjaÓss hf., mun framleiðasteyptareiningar af hvaða tagi sem er, svo fremi að óskir þar að lútandi komi fram. Eins og málum er nú háttað, má skipta framleiðslunni í fernt. Húsnæði verksmiðjanna að Suðurhrauni 2, Garðabæ. Hellur og steinar í hleðslur, stéttir, götur og þess háttar munu í upphafi njóta forgangs. Stefnt er að því að gefa kaup- endum kost á sem flestum tegundum. Auk fastrar lögunar, fastra stærða og lita (þeir eru fimm) geta menn borið fram óskir um frávik og Ós hf., mun reyna að verða við þeim. Fram- leiðslunni er svo haganlega fyrir komið, að forráðamenn Óss hf., treystasértil að lækkaverð áþessum vörum um fjórðung. Hellulögn og hleðsla eru einföld verk, og kann þvi vel svo að fara, að einhverjir viðskiptavinir vilji sinna því sjálfir. Þá er þeim frjálst að leita til Óss hf., um leiðbeiningar og aðstoð fagmanna, bæði hvað snertir verkið sjálft, svo og val á hellum og steinum. Annarmeginþátturí framleiðslu verksmiðjunnareru steypt rör, brunnar og tengi alls konar. Reynt verður að hafa úrval sem mest. í þriðja lagi mun verksmiðjan framleiða milliveggjaplötur og húseiningar, en sú framleiðsla er enn ekki hafin. Ein af hinum nýju og fullkomnu vélum verksmiðjunnar. Loks má nefna, að verksmiðjan selur steypu beint. Pantar viðskiptavinurinn þá steypugerð, sem honum hentar bezt, tölvukerfi verksmiðjunnar sér um að blanda og hræra og prentar jafnframt út yfirlit yfir þau efni, sem í steypunni eru. Plagg þetta er sfðan fengið kaupanda ásamt steypufarm- inum, til að hann geti fullvissað sig um, að hann fái þásteypu, sem hann pantaði. Til að tryggja góða meðferð steyptraeiningaá leið til kaup- anda og til að koma í veg fyrir hugsanlegar skemmdir, notar Ós hf., sérhannaða bíla í alla flutninga. Verksmiðja Óss hf., verður að teljast mjög vel-í sveit sett. Mjög hægt er um aðföng, þar sem hún stendur, og að sama skapi gott að flytja vörur hennar í hendur kaupenda. Á þessu ári mun ný Reykjanesbraut tengja höfuðborgarsvæðið og Reykjanes, og sú braut mun liggja rétt hjá verksmiðjunni. Má þvi Ijóst vera, að verksmiðjunni hefði vart getað verið valinn betri staður með tilliti til samgangna. Ósmenn segja verksmiðju sína svo afkastamikla, að hún geti séð öllu Suðvesturlandi fyrir rörum, steinum, hellum og öðrum steyptum einingum. Heyrzt hafa efasemdaraddir frá öðrum í þessari atvinnugrein, sem telja fjárhaginn glæfra- legan og að markaðurinn taki ekki við fleirum í þessa fram- leiðslu. Sjálfir segjast stjórnendur Óss hf., bjartsýnir og telja sig hafa fast undir fótum í fjármálum. Tíminn verður að leiða í Ijós, hver gæfa Óss hf., verður. Byggingarverkfræðinemar óska Ósi hf„ góðs gengis. 80
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.