Upp í vindinn - 01.05.1985, Page 77

Upp í vindinn - 01.05.1985, Page 77
scxman Hampiðjan framleiðir nú drenrör fyrir jarðvatnslagnir, auk röra fyrir regnvatnslagnir og skolp. Þar með geta menn nú lagt flestar tegundir frárennslis með plaströrum frá Hampiðjunni. Efnisþykkt og mál drenröranna eru þau sömu og á 110 mm skolprörum, tengi- og breytistykki fyrir allar tegundirnar eru hin sömu. Því er vandalaust að ná endum saman, beygja upp, beygja niður, út og suður að vild. Drenrörin eru úr hörðu Polyvinylchlorid (PVC) án mýki- og fylliefna og götuð (sbr. mynd). Þessi rör má jafnframt nota í sameiginlega Dren- og regnvatnslögn, þar sem jarðvatnslögoin ereingöngu notuð til að ræsa fram og þurrka lóð. Drenrörin frá Hampiðjunni eru framleidd í 1 m, 2 m, og 5 metra lengdum. Þau eru endingargóð og auðvelt er að leggja þau. Drenrörin frá Hampiðjunni eru íslensk gæðavara sem fæst í byggingavöruverslunum víða um land. Á sölustöðunum liggja frammi upplýsingabæklingar, sem segja nákvæmlega til um eiginleika röranna og hvernig beri að ganga frá þeim í jörð. HAMPIÐJAN HF

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.