Upp í vindinn - 01.05.1985, Qupperneq 82

Upp í vindinn - 01.05.1985, Qupperneq 82
Óleyst verkefni við snjóflóðavarnir Eftir Helga Björnsson Helgi Björnsson stundaöi nám vid Oslóarháskóla, lauk cand. mag. prófi 1966 og cand. real. prófi í jaröeðlisfræöi 1969. Hann starfaði síöan sem vatna- fræðingur við Norges Vass- drags- og elektrisiietsvesen í Osló til vors 1971, er hann hóf störf við Raunvísindastofnun Háskólans. Þar hefur hann unnið síöan að jökla- og snjó- flóðarannsóknum, að frátöldum tveimur árum, 1973-1975, sem hann starfaði við Bristolháskóla í Englandi. Snjóflóð hafa valdið dauð fleiri Islendinga en nokkur önnur tegund náttúruhamfara. Það sem af er þessari öld hafa rúmlega 120 manns farist í snjóflóðum. í Hnífsdal fórust 20 manns í snjóflóði 18. febr. 1910,19 manns áSiglufirði og Héð- insfirði 12,—13. apríl 1919,12 manns 20. des. 1974 á Neskaup- stað. Hinn 18. febrúar 1885 fórust 24 á Seyðisfirði. Þar við bætist gífurlegt tjón á fiskverksmiðjum, bryggjum, geymslum, íbúðarhúsum, fjárhúsum og búpeningi, vegum, farartækjum, síma- og raflinum. Nokkur undanfarin ár hefur Veðurstofan gert allnákvæmar spár um snjóflóðahættu, sem ná yfir heil landsvæði og sent út viðvaranir í samráði við Almannavarnir rikisins. Fólk hefur þá reynt að forðast hættuna meðan hún vofir yfir. En hvar er fólk öruggt? Eitt skil-yrði þess að viðbrögð heimamanna við viðvörunum séu markviss er, að þeir viti hvar hættusvæði eru innan byggðarinnar. Ekki má senda fólk af einu hættusvæöi inn áannað og ekki heldur látaþað farayfir hættusvæði á leiö í öruggt skjól. Og hér er hins vegar verkefni, sem enn er að mestu óunnið, það ermat á legu hættusvæða. Þótt við íslend- ingar getum státað af því að eiga skrár yfir snjóflóð, sem ná lengra aftur en með öðrum þjóðum, þá fellur varla svo snjó- flóð hér á landi og veldur tjóni, að ekki sé fullyrt, að þar hafi aldrei áður fallið flóð, svo að vitað sé. Annálar eru gloppóttir, þótt ágætir séu og fram þarf að fara hættumat, sem er fjöl- þættara en leit í annálum. Meta þarf hvar hættusvæði eru, út frá eðli snjóflóða, landslagi, ummerkjum eftir tlóð og veður- gögnum, einkum mati á, hve oft fara saman þeir veðurþættir, sem valda hættulegum snjóflóðum. Draga þarf upp mörk hættusvæða og meta líklega skriðlengd og krafta snjóflóða. Hér er um að ræða verk, sem unniö yrði í samstarfi veður- fræöinga og jarðeðlisfræðinga eða verkfræðinga, sem kynntu sérþessi fræði. Hluti af þessu starfi felst í gerð líkana af hreyfingu snævar niður fjallshlíð, þar sem núningur við botn og inni í snjónum vinnur gegn þyngdarkrafti. Meta þarf hraða og krafta við árekstra. Loks þarf að kynna niðurstöður stjórnvöldum og tryggja það, að menn forðist snjóflóðahættu við skipulagningu nýrrar byggðar, lagningu vega og veitulína. En jafnframt þarf að verjagömlu byggðina. Reynslasýnir, að fólk sættirsig ekki til lengdar við að þurfa að rýma hús sln, þegar viðvaranir berast um snjóflóðahættu. Þess vegna munu verða reist varnarvirki tii frambúðar gegn snjóflóðum í þéttbýli. Sama gildir um fjölfarna vegi. Víða er einfaldasta aðferðin til þess að draga úr tíðni snjó- flóða sú að setja grindverk upp á fjall, sem dregur úr skaf- renningi fram af fjallsbrúnum. Grindurnareru gisnarog þegar snjó skefurgegnum þærdregur úr hraða, svo að snjórinn sest hlémegin. Grindurnareru úrtré eðaáli, og þurfaað vera nægi- lega háar til þess að þær fari ekki á kaf. Fjarlægð frá fjalls- brún er höfð um 15 sinnum hæð þeirra. Sömu fjarlægð skal hafa milli grinda, ef upp eru settar fleiri en ein röð. Á upptakasvæði snjóflóða er oft komið fyrir burðar- grindum úr timbri, áli eða steinsteypu, sem veita snjó- þekjunni stuðning og miða að því að koma í veg fyrir að hún geti runnið af stað niður fjallshlíð. 3. MYND Grindur ofan við bæinn Davos í Sviss. 82
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Upp í vindinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.