Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2024, Síða 4

Skinfaxi - 01.05.2024, Síða 4
4 S K I N FA X I V orið er komið og grundirnar gróa, segir í vorvísu Jóns Thoroddsen um aðdraganda sumars. Með sanni má segja að þegar daginn tekur að lengja og sól- in hækkar á lofti skiptir íþróttalífið um gír. En það eru ekki bara keppnisíþróttirnar sem eiga sviðið, heldur færist líka út í góða veðrið ýmis hreyfing sem stunduð hefur verið innan- dyra. Þar á meðal er heilsuefling eldri borgara, sem í auknum mæli er orðin hluti af starfi íþróttafélaganna. Margir eldri borgarar nýta sér knatthúsin til að fá reglulega hreyfingu þegar snjór og klaki hindra för og ljúka svo hreyfingunni með spjalli yfir kaffibolla. Íþróttafélögin hafa mörg verið í fararbroddi í þjónustu við eldri borgara, gjarnan í samvinnu við sveitarfélögin. Þetta er enn eitt dæmið sem sýnir mikilvægi skipulegs íþróttastarfs í sam- félagi okkar og möguleika sem eru til að nýta íþróttamannvirki fyrir alla aldurshópa. Regluleg hreyfing er eitt af gagnlegustu vopnunum sem við höfum í baráttunni við lífs- stíls- og hrörnunarsjúkdóma. Þess vegna er mikilvægt að sveitarfélög og íþróttafélög leggi saman krafta sína til að skapa betra sam- félag okkur öllum til heilla. Regluleg hreyfing fyrir fólk á öllum aldri getur líka verið góður samstarfsvettvangur fyrir íþróttafélög og eflt samvinnu og samhug bæði innan sveitarfélaga og á milli félaganna sjálfra. Þá eru ótalin þau félagslegu áhrif sem regluleg hreyfing hefur fyrir þau sem taka þátt. Þau eru ekki síðri fjár- hagslegu áhrifin á rekstur ríkis og sveitarfélaga, því bætt heilsa fólks endurspeglast í lægri útgjöldum til heilbrigðismála. Svæðastöðvar íþróttahreyfingarinnar hafa verið mikið ræddar undanfarna mánuði. Það kemur ekki á óvart. Í þeim er fólgin ein stærsta breyting á starfi íþróttahreyf- ingarinnar í áratugi. Opnaðar verða átta svæðisskrifstofur og ráðnir verða sextán starfsmenn sem starfa eiga með íþróttahéruðunum að eflingu íþróttastarfs um allt land. Þar verður meðal annars lögð áhersla á að auka þátttöku barna frá efnaminni heimilum, barna með fjölþættan tungumála- og menningarbakgrunn og barna með fötlun. Verkefnið er stórt, íþróttahéruðin eru 25 og eru þau eins mismunandi og þau eru mörg. Aðstæður og áherslur innan héraðs eru margar og mismunandi. Þar skipta máli vegalengdir innan héraðs, fjöldi íbúa í þéttbýli og dreifbýli, aldurssamsetning þeirra, aðstaða til íþrótta- iðkunar og svo mætti lengi telja. Óhjákvæmilega verða einhver ljón í vegin- um, sum þeirra stærri en önnur og erfiðari við að eiga. En það sem mestu skiptir er viljinn til að leysa þau vandamál sem upp kunna að koma. Ungmennafélagshreyfingin hefur sýnt það oft áður að eitt af því sem einkennir hreyfinguna er samtakamátturinn. Með hann til staðar eru okkur allir vegir færir. Ég er ekki í vafa um að ef við leggjumst öll á árarnar mun okkur og verkefninu farnast vel. Góðar stundir. Guðmundur G. Sigurbergsson situr í stjórn UMFÍ. Efnisyfirlit 8 Fá sjokk yfir tölunum – Átakið Allir með 21 Kraftur í heilsueflingu eldra fólks 23 Hlaupin gefa mér mikið – Hugrún Árnadóttir Leiðari Samtakamátturinn einkennir hreyfinguna 16 Svæðastöðvar og hagrænar mælistikur gera lífið betra – Ásmundur Einar 6 Landsmótið á Laugarvatni í lit 9 Risastórir sigrar hjá iðkendum með fötlun 9 Engin orð til að lýsa gleðinni 10 Tvö ungmennafélög sameinuð í eitt 12 Fólk á öllum aldri spilar ringó á Bíldudal 14 Fjölbreytt framboð íþróttastarfs hjá Umf. Reykdæla 20 Nýjar svæðastöðvar 22 Fjörug í fimleikum 23 Borgin lyftir upp lýðheilsustarfi eldri borgara 24 Hamar býður upp á líkamsrækt í Hamarsporti 25 Verðmæti í heilsueflingu 60+ 26 Hvetur eldra fólk til að hreyfa sig 27 Mikil ásókn í boccia á Landsmóti UMFÍ 50+ 28 Mikilvæg störf í hreyfingunni 34 Kynjahlutfall í íþróttum 35 Skemmtilegri fundir skila sér í metþátttöku 36 Tala saman á blandinavísku 37 Ekki missa af viðburðum UMFÍ í sumar 38 Vett: Frábært tól fyrir minni félög 41 Gamla myndin: Hvítbláinn afhentur í fyrsta sinn 42 Borðtennishelgi á Reyðarfirði

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.