Skinfaxi - 01.05.2024, Side 6
6 S K I N FA X I
Skinfaxi 1. tbl. 2024
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags
Íslands, hefur komið út samfleytt síðan
1909. Tímaritið dregur nafn sitt af hest-
inum fljúgandi sem dró vagn goðsagna-
verunnar Dags er ók um himinhvolfið í
norrænum sagnaheimi.
R I TST J Ó R I
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
Á BY R GÐA R M A Ð U R
Jóhann Steinar Ingimundarson.
R I T N E F N D
Gunnar Gunnarsson formaður, Sigurður
Óskar Jónsson, Kristján Guðmundsson,
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, Embla Líf Halls-
dóttir og Victor Ingi Olsen.
UM BR OT O G H Ö N N U N
Indígó.
P R E N T U N
Litróf.
AU GLÝS I N GA R
Hringjum.
FO R S Í Ð UMY N D
Myndina tók Hulda Margrét af Hugrúnu
Árnadóttur, sem er í hlaupahópi Hauka
í Hafnarfirði.
L J ÓS MY N D I R
Bríet Guðmundsd., Davíð Már Sigurðs-
son, Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Hulda
Margrét, Kári Jónasson, Jón Aðalsteinn
Bergsveinss., Tjörvi Týr Gíslason, Sumar-
liði Ásgeirsson, Valgarður Gíslason, o.fl.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Engjavegi 6,
104 Reykjavík, s. 568 2929
umfi@umfi.is - www.umfi.is
UM F Í
Ungmennafélag Íslands, landssamband
ungmennafélaga á Íslandi, var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands-
aðilar UMFÍ eru 26 talsins og skiptast í
23 íþróttahéruð og 3 ungmennafélög
með beina aðild. Alls eru um 450 félög
innan UMFÍ um land allt.
ST J Ó R N UM F Í
Jóhann Steinar Ingimundarson formaður,
Gunnar Þór Gestsson varaformaður,
Guðmundur G. Sigurbergsson gjaldkeri,
Sigurður Óskar Jónsson ritari, Ragnheið-
ur Högnadóttir meðstjórnandi, Málfríður
Sigurhansdóttir meðstjórnandi og
Gunnar Gunnarsson meðstjórnandi.
VA R AST J Ó R N UM F Í
Ásgeir Sveinsson, Guðmunda Ólafsdóttir,
Hallbera Eiríksdóttir og Rakel Másdóttir.
STA R FS FÓ L K UM F Í
Auður Inga Þorsteinsdóttir fram-
kvæmdastjóri, Einar Þorvaldur Eyjólfs-
son fjármálastjóri, Jón Aðalsteinn Berg-
sveinsson, kynningarfulltrúi og ritstjóri
Skinfaxa, Ómar Bragi Stefánsson fram-
kvæmdastjóri móta (aðsetur á Sauðár-
króki), Ragnheiður Sigurðardóttir verk-
efnastjóri, Aldís Baldursdóttir verkefna-
stjóri og Iðunn Bragadóttir bókhald.
S KÓ L A BÚ Ð I R Á R E Y K J UM
Sigurður Guðmundsson forstöðumaður,
Ingimar Oddsson, Rannveig Aðalbjörg
Hjartardóttir, Hulda Signý Jóhannes-
dóttir, Luis Augusto Aquino, Gísli
Kristján Kjartansson, Oddný Bergsveina
Ásmundsdóttir, Elmar Davíð Hauksson
og Róbert Júlíusson.
Landsmót UMFÍ var haldið í fyrsta sinn árið 1909 og voru um áratuga-
skeið fastur liður á dagskrá ungmennafélaga landsins. Mótin voru haldin
með nokkurra ára millibili og þegar mótið var haldið á Laugarvatni
sumarið 1965 var það í tólfta skiptið. Það var haldið á hásumri, dagana
3.–4. júlí. Fólk var strax byrjað að streyma á Laugarvatn á föstudags-
kvöldinu til að vera klárt í keppni, en mótið hófst formlega strax dag-
inn eftir. Landsmótið á Laugarvatni varð gríðarlega vinsælt, enda veðrið
gott og voru þegar mest var á svæðinu 20–25 þúsund gestir.
Myndir í lit frá mótinu 1965
Kári Jónasson var á þessum tíma blaðamaður og kom á landsmótið sem
ljósmyndari á Tímanum. Litmyndir voru ekki algengar á þessum tíma
og veltir hann sjálfur fyrir sér ástæðum þess að slík filma var í vélinni.
„Líklegast hef ég verið að klára filmu í lit þegar þessar myndir voru
teknar og fært mig svo yfir í svarthvíta filmu út mótið,“ segir Kári, en
eðli málsins samkvæmt á UMFÍ engar myndir frá mótinu í lit. Myndir
Kára eru þær einu sem til eru.
Hitinn ógurlegi
Það stefndi reyndar ekki í neitt sérstakt mót. Dagana fyrir það var helli-
rigning á svæðinu. Vatn var á hlaupabrautum og menn almennt orðnir
áhyggjufullir um hvernig til tækist ef ekki myndi stytta upp. Meira að
segja föstudagurinn lofaði ekki góðu.
En svo rann upp þess fallegi og sólríki laugardagur 3. júlí. Forráða-
menn mótsins önduðu því léttar eftir áhyggjur dagana á undan. En
Adam var ekki lengi í paradís, því sólin og hitinn sem henni fylgdi áttu
eftir að trufla nokkra keppendur og mótsgesti, sem ekki höfðu varið sig
vel eða haft viðeigandi klæðnað með á mótið. Hitinn og sólskinið áttu
eftir að verða svo mikil þessa helgi að sumir keppendur og aðrir skað-
brenndust. „Fjöldi manna leitaði læknis vegna hitans,“ bætir Kári við.
Það sem situr efst í minni Kára frá mótinu er að sjálfsögðu þessi ógur-
legi hiti, fjölmennið á mótinu og eftirminnilegir einstaklingar sem voru
á staðnum.
„Ég man best eftir því þegar Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi ríkis-
ins, var að stjórna hópgöngu inn á svæðið. Hann var röskur að raða
saman fólki og notaði gjallarhorn þegar hann raðaði fulltrúum héraðs-
sambanda saman og á rétta staði,“ heldur Kári áfram.
Eftir glæsilega göngu héraðssambanda inn á nýjan leikvang á Laugar-
vatni undir sínum félagsfána tóku merkir menn til máls. Síðastur til máls
var Eiríkur J. Eiríksson, formaður UMFÍ, sem flutti setningarræðu mótsins.
„Eiríkur var ekki hár vexti en talaði þeim mun hærra og skýrara og
bókstaflega hrópaði yfir allt þegar hann hélt setningarræðuna,“ segir
Kári og segir það hafa verið eftirminnilega ræðu.
Í kjölfar setningar gengu þátttakendur skipulega af leikvellinum og
hið glæsilegasta íþróttamót og það stærsta á landsvísu á þessum tíma
átti sér stað.
Það er alltaf áhugavert að rýna í myndir frá starfi UMFÍ í gegnum árin
og gaman að áskotnast einstakar myndir í lit frá árinu 1965.
Landsmótið á Laugarvatni í lit
Lumarðu á eftirtektarverðum minningum eða áttu myndir eða
upptökur frá gömlum mótum? Við höfum alltaf gaman af því að
sjá og heyra af þeim. Þú getur sent okkur póst um málið með
minningunum á umfi@umfi.is.
Það er alltaf gaman að sjá hvernig fortíðin leit út í lit og hafa margar tilraunir verið gerðar til þess
að sjá hvernig lífið leit út á árum áður. Kári Jónasson stóð í tiltekt heima hjá sér fyrir nokkru. Upp
úr gömlum kössum komu litmyndir sem hann tók á Landsmóti UMFÍ á Laugarvatni árið 1965.