Skinfaxi - 01.05.2024, Blaðsíða 12
12 S K I N FA X I
„Ringó er ótrúlega skemmtilegur leikur, sem allir geta spilað og tekið
þátt í óháð aldri,“ segir Elfar Steinn Karlsson, gjaldkeri Íþróttafélags
Bílddælinga og ringóspilari á sunnanverðum Vestfjörðum. Elfar Steinn
er fæddur og uppalinn á Bíldudal. Íþróttafélag Bílddælinga er aðildar-
félag í Héraðssambandinu Hrafna-Flóka (HHF), sambandsaðila UMFÍ.
Fyrir tveimur vetrum var í fyrsta sinn farið að bjóða upp á vikulegar
ringóæfingar á hverju miðvikudagskvöldi. Æfingarnar fara fram í Íþrótta-
miðstöðinni Byltu og mæta þar um 15–20 manns einu sinni í viku.
„Æfingarnar eru oftast rúmlega klukkutími og er mjög góð þátttaka.
Yngsti spilarinn sem hefur verið að mæta er átta ára og sá elsti er um
áttrætt,“ segir Elfar Steinn og bætir því við að jafnt hlutfall sé á milli
barna og fullorðinna sem mæta vikulega á æfingar. Enginn ákveðinn
þjálfari er á æfingunum. Elfar nefnir að Arnar Þór Arnarsson, formaður
Íþróttafélags Bílddælinga, hafi yfirumsjón með æfingunum, þ.e. skip-
ti í lið og haldi utan um talningu og önnur tilfallandi verkefni.
„Eins og er höfum við bara verið með skipulagðar æfingar í ringó
á veturna; það kom þó upp sú umræða að færa æfingarnar út með
vorinu og hækkandi sól,“ segir Elfar Steinn.
Fólk á öllum aldri
spilar ringó á Bíldudal
• Ringó hefur verið í boði um árabil á Landsmótum UMFÍ 50+
og er með fjölmennustu greinum mótsins.
• Ringó er spilað á blakvelli í tveimur liðum. Tveir til sex leik-
menn eru í hvoru liði fyrir sig og því er auðvelt að safna
saman í lið til að hefja leik.
• Í ringó er spilað með tvo hringi. Gefið er merki og bæði lið
gefa upp samtímis frá baklínu. Þeir tveir sem gefa upp gefa
sjálfir hvor öðrum merki.
• Hver leikmaður gefur upp þrisvar sinnum. Síðan færa leik-
menn sig um eina stöðu samtímis báðum megin, réttsælis.
• Hringnum skal kasta lárétt. Ef hringnum er kastað lóðrétt eða
hann „flaskar“ er hringurinn dauður.
• Lið getur fengið tvö stig þegar báðir hringir liggja á velli
mótspilara, eitt stig þegar það er einn hringur á báðum
völlum.
• Hringinn má aðeins grípa með annarri hendi, ef báðar
hendur
snerta hringinn er hann dauður.
• Aðeins þrjár sekúndur mega að hámarki líða áður en ringó-
hring er kastað. Ekki er leyfilegt að ganga með hringinn í hendi.
• Hver leikur er spilaður upp í 25 stig, með minnst tveggja
stiga mismun.
• Ef tvö eða fleiri lið eru jöfn að stigum í lok leiks skal miða við:
a) Fjölda skoraðra stiga. b) Stigamismun.
Vinsældir ringó hafa færst til aukanna á
undanförnum árum. Nokkur ár eru síðan
ringó nam land hér og er farið að bjóða
upp á íþróttina í mörgum sveitarfélögum.