Skinfaxi - 01.05.2024, Page 15
S K I N FA X I 15
Fáir þjálfarar halda starfinu uppi
Körfubolti Þessi mikla fjölbreytni er nýleg hjá ungmennafélaginu
en körfubolti og sund hafa þó verið í boði hjá félaginu lengur. „Guð-
jón Guðmundsson hefur kennt hér í meira en 35 ár, sjálfur er ég 35
ára,“ segir Helgi Eyleifur Þorvaldsson á léttum nótum. Guðjón hefur
séð um körfuboltann og sundið í gegnum tíðina og lengi vel fótbolta
á sumrin. Nú hefur bæst í hópinn þjálfarinn Þórir Örn Hafsteinsson,
sem hefur stýrt körfuboltaæfingum fyrir yngri iðkendur. Körfunni er
skipt upp í 4.–6. bekk og 7.–10. bekk. Báðir hópar hafa verið að keppa
á Íslandsmótum undir leiðsögn Guðjóns og Þóris.
Sund Í sundinu er boðið upp á æfingar fyrir 1.–4. bekk og 5.–10.
bekk undir leiðsögn Guðjóns, sem hefur farið með iðkendurna á
sundmót ásamt því að haldin eru sundmót á Kleppjárnsreykjum á vor-
in. Ásamt sundæfingum í umsjón Guðjóns býður Ingibjörg Inga Guð-
mundsdóttir upp á sundnámskeið fyrir 4–5 ára gömul börn á sumrin.
Síðasta sumar var námskeiðinu skipt upp í tvennt. „Námskeiðið var vin-
sælt og heppnaðist vel, svo að Ingibjörg bauð upp á 10 vikna fram-
haldsnámskeið fyrir eldri hópinn fram á haustið,“ segir Helgi.
Fimleikar Fimleikar hófust á Kleppjárnsreykjum í vetur í samstarfi
við fimleikadeild ÍA. „Við erum ÍA afar þakklát fyrir samstarfið og þá
frábæru þjálfara sem sjá um fimleikastarfið þar. Við byrjuðum með 10
vikna námskeið, það var uppselt á það fljótt svo að það var framlengt
út veturinn. Þar erum við með hátt í 50 iðkendur í þremur hópum úr
öllum Borgarfirði, mikið úr Varmalandi, Hvanneyri og frá Bifröst til
dæmis,“ segir Helgi. Stærð íþróttahússins býður upp á 20 iðkendur
að hámarki í hópi í fimleikum og eru hóparnir þrír, skipt upp eftir aldri.
Blak „Fyrir tveimur vetrum var byrjað að bjóða upp á blakæfingar
við góðar undirtektir,“ segir Helgi og bætir við að mikil blakmenning
sé í Borgarfirði. „Krakkarnir eru búnir að fylgjast með foreldrum sínum
í blaki og er áhugi þeirra á íþróttinni mikill,“ segir Helgi.
Badminton „Badminton bættist við hjá okkur um áramótin síðustu,
en það var sveitungi okkar, Guðmundur Freyr Kristbergsson, sem hef-
ur stundað badminton alla sína æsku, sem bauðst til að prófa að þjálfa.
Badmintonsambandið aðstoðaði okkur í upphafi við að verða okkur
úti um búnað og erum við þakklát fyrir þá aðstoð,“ segir Helgi. Áhug-
inn á íþróttinni hefur verið mikill og seldist upp á námskeiðið strax.
Takk fyrir stuðninginn