Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2024, Side 18

Skinfaxi - 01.05.2024, Side 18
18 S K I N FA X I félagslega hugsunin hjá UMFÍ sé svo sterk, það sé þess háttar hugsun sem þurfi sem mótefni við þróunina í samfélagi nútímans. „Einsemd er að aukast mikið og hefur sennilega sjaldan verið meiri í samfélaginu. Þessi félagslegi þáttur, samskiptin og hugsunin öll sem felst í ungmennafélagsandanum, getur því verið lykilþáttur í bættri vel- líðan og farsæld fólks. Þessi þættir held ég að verði á næstu áratugum afgerandi í lífi ungs fólks. Við mannfólkið þurfum félagslegar tengingar til að virka. Það skiptir máli á öllum aldri, hvort heldur fólk er ungt eða yfir miðjum aldri.“ Hvatasjóður styrkir góð verk Ásmundur og forystufólk íþróttahreyfingarinnar skrifuðu undir vilja- yfirlýsingu um stofnun svæðastöðvanna í nóvember 2023. Þá var hálft ár frá því að stofnun svæðastöðva og breyting á lottógreiðslum var samþykkt á þingi ÍSÍ og innan við mánuður síðan sambærileg tillaga var samþykkt á þingi UMFÍ. Á sama tíma greindi Ásmundur frá því að samhliða stofnun svæðastöðvanna yrði komið á fót hvatasjóði sem ætlað yrði að stuðla að aukinni þátttöku barna og ungmenna í íþróttum. Áherslan þar er börn með fötlun og börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Ásmundur segir sjóðnum ætlað að styðja við heildarverkefnið, að ná betur til barna sem standi utan starfsins og þróa leiðir til að skila betri árangri. „Það eru margar hindranir sem hamla því að ýmsir hópar barna og ungmenna geti tekið þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Sjóð- urinn byggir á verkefninu Allir með, sem sprettur upp úr samvinnuverk- efni heilbrigðis-, félags- og menntamálaráðuneytis um tómstundir og íþróttaþátttöku barna með fötlun. Það verkefni er hugsað með þeim hætti að ráðuneytin leggja fjármagn til þess. Fyrir tilstuðlan þess er hægt að fara inn í íþróttafélögin, inn í sveitarfélögin og víðar til að átta sig á því hvar þessar hindranir eru. Við þurfum að átta okkur á þeim til að opna betur dyrnar svo að fleiri börn og ungmenni geti tekið þátt í íþróttastarfinu,“ segir Ásmundur og leggur áherslu á að ráðuneyti hans hafi miklar væntingar til sjóðsins. Sjóðnum og allri þeirri vinnu sem Allir með skilar er ætlað að byggja upp þekkingu sem hægt verði að nýta frá einum stað til annars. „Við þurfum ekki að finna hjólið upp. Þvert á móti getum við nýtt tímann betur og varið orkunni í að læra hvert af öðru. Við þurfum þess vegna að vera opin fyrir því að miðla þekkingu á milli staða. Haukar í Hafnarfirði hafa sem dæmi náð góðum árangri í íþróttum barna með fötlun. Við þurfum að finna hvað leynist þar sem hægt er að heimfæra á annan stað, hjá öðrum íþróttafélögum og sveitarfélögum,“ segir Ásmundur, en frá því að verkefnið Allir með fór af stað í fyrra hefur Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri þess, unnið ötullega með íþrótta- félögum víða um land að útbreiðslu þess. Þegar Ásmundur var félags- og barnamálaráðherra var í miðjum heimsfaraldri settur á laggirnar sértækur sjóður sem hafði sambæri- legt markmið og Hvatasjóðurinn, það er að ná betur til barna og ung- menna sem standa utan við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf, en styðja á sama tíma við iðkendur frá tekjulægri fjölskyldum. Ásmundur segir útfærslu sjóðsins hafa verið flókna og hann því ekki skilað því sem til hafi verið ætlast. „Áskoranir hans sneru að öðrum og fleiri þáttum. Við sjáum það nú að þótt það sé fjárhagslega þungt víða eru aðrir ytri félagslegir þættir sem ráða frekar för. Í hópi þeirra sem eru með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn þarf sem dæmi aðrar leiðir. Þar felst leiðin í samtali íþróttafélaga við skóla og foreldra barna og þar er líklegra að komi í ljós hvað veldur því að börnin velja yfir höfuð að fara ekki í íþróttir.“ Betri heimur Allir þessir þræðir sem áður hafa verið nefndir, svæðastöðvarnar, Hvatasjóðurinn, hagrænu mælistikurnar og allt það sem er gert til að ná betur til barna og ungmenna – og reyndar allra – hafa það að markmiði að auka farsæld á Íslandi. Til að ná árangri í þeim efnum er unnið að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Markmið þeirra er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda geti haft aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Í farsældarlögunum svokölluðu er kveðið á um að sveitarfélög skipi svæðisbundin farsældarráð sem verði vettvangur fyrir svæðisbundið samráð um farsæld barna. Ásmundur segir hugsunina þá að á hverju farsældarsvæði verði unnið að því að bæta tölfræðilegan árangur barna á öllum sviðum. Innan mengis hvers barns sé því sveitarfélagið, heilbrigðiskerfið, skólar og íþróttafélög, og leitað verði leiða til að þau geti unnið saman með farsæld barnsins að leiðarljósi. Ásmundur segir áskoranirnar margar og misjafnar og því hafi það glatt hann þegar íþróttahreyfingin hafi komið fram með hugmyndir um svæðastöðvarnar. „Þær rímuðu svo vel við það sem við vorum að hugsa. Það er svo mikilvægt að allir geti talað saman og unnið saman þvert á landsvæði. Það er átak að vinna saman. En svæðastöðvarnar búa til möguleika á því og geta tryggt enn öflugra samstarf en áður heima í héraði,“ segir Ásmundur Einar að lokum. Ásmundur Einar í hlutverki liðsstjóra í körfuboltakeppni á Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.