Skinfaxi - 01.05.2024, Síða 21
S K I N FA X I 21
Aldurssamsetning landsmanna hefur breyst mikið á undanförnum ára-
tugum. Hlutfall aldraðra (65 ára og eldri) hefur farið úr 22,7% í 26% á
síðustu tíu árum og hefur aldrei verið hærra. Á sama tíma er mikill kraft-
ur í heilsueflingu eldra fólks. Mörg íþróttafélög bjóða upp á ýmsar
skipulagðar æfingar fyrir 60+, félög eldri borgara sjá á sumum stöðum
um heilsueflinguna og bæði sveitarfélög og fyrirtæki gera það líka.
Mörg verkefni eru í gangi sem snúa að málaflokknum. Hér eru
nokkur þeirra:
Bjartur lífsstíll er samstarfsverkefni Landssambands eldri borgara
og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Þar hefur verið safnað
saman ýmsum hagnýtum upplýsingum um hreyfiúrræði fyrir 60 ára og
eldri. Þar hefur líka verið búin til handbók um það sem er í boði á hverj-
um stað og svokallaða hreyfibók, sem er æfingar fyrir þjálfara og ein-
staklinga. Forsvarsfólks Bjarts lífsstíls hefur líka myndað stýrihópa í
mörgum sveitarfélögum. Í hverjum stýrihópi sitja fulltrúar sveitarfélags-
ins, frá félagi eldri borgara í bæjarfélaginu, frá velferðarsviði og öld-
ungaráði, heilsugæslu, sjúkraþjálfari og íþróttaþjálfari eða íþróttastjóri.
Á meðal verkefnanna þar er að taka saman upplýsingar um stöðu heilsu-
eflingar sem víðast, þarfir og áskoranir. Tölfræði vantar um íþróttaiðkun
fólks yfir sextugu. Þær upplýsingar eru ekki aðgengilegar á einum stað
og er það á borði Bjarts lífsstíls að taka þær upplýsingar saman.
Kraftur í heilsueflingu eldra fólks
Fólki yfir sextugu hefur fjölgað mikið, er margt heilbrigðara en áður og nýtur lífsins með öðrum og heil-
brigðari hætti en foreldrar þess. Stjórnvöld, sveitarfélög og íþróttafélög hafa á sama tíma leitað leiða til
að auka framboð af íþróttum fyrir þennan ört stækkandi markhóp og er mikil eftirspurn eftir möguleikum
til heilsueflingar fólks yfir sextugu. Við skoðum hér á eftir nokkra þætti sem snúa að heilsueflingunni.
Á heimasíðu Bjarts lífsstíls má sjá hvaða hreyfing er í boði á lands-
vísu fyrir 60 ára og eldri.
Meiri upplýsingar má finna á: www.bjartlif.is
Reykjavíkurborg er sömuleiðis að vinna að heilsueflingu eldra fólks
með skipulögðum hætti og funda með stýrihópum reglulega í mörg-
um hverfum. Málefnasviðin undir eru átta. Það eru: Útisvæði og bygg-
ingar, samgöngur, húsnæði, félagsleg þátttaka, virðing og félagsleg
inngilding, virk samfélagsþátttaka, atvinnumöguleikar, samskipti og
upplýsingar og að lokum samfélags- og heilbrigðisþjónusta.
Verkefnið Gott að eldast er sömuleiðis samstarfsverkefni Félags- og
vinnumarkaðsráðuneytis og Heilbrigðisráðuneytis. Því á að ljúka fyrir
árslok 2027.
Verkefni eins og Virkni og vellíðan í Kópavogi hafa sprungið út.
Mörg hundruð manns sækja reglulega æfingar og viðburði íþrótta-
fræðinganna Evu Katrínar Friðgeirsdóttur og Fríðu Karenar Gunnars-
dóttur. Virkni og vellíðan varð til upp úr lokaverkefni þeirra við Háskól-
ann í Reykjavík. Kópavogsbær tók verkefnið upp á sína arma og er
það samstarfsverkefni háskólans og íþróttafélaganna Breiðabliks,
Gerplu og HK. Virkni og vellíðan er komið í Grafarvoginn undir heit-
inu Frísk í Fjölni og Frísk í FH.