Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2024, Page 23

Skinfaxi - 01.05.2024, Page 23
 S K I N FA X I 23 Hugrún er fædd á Patreksfirði árið 1955 og stundaði þar hefðbundnar skólaíþróttir. Hún hafði áhuga á körfubolta en þótti helst til lág- vaxin. Ekkert annað var í boði í æsku Hugrúnar. Öðru máli gegndi þegar hún skutlaði dóttur sinni um allar trissur í frjálsum íþróttum. Þrí- burar bættust síðar í barnahópinn og því hafði hún nægu að sinna. Árið 1997 flutti fjölskyldan í Hafnarfjörð og þar kviknaði áhugi Hugrúnar á hlaupum hjá Haukum. „Strákarnir mínir voru mikið í fótbolta hjá Haukum. Þar var talað um að stofna skokkhóp í kringum 2007. Ég hélt nú ekki! Hafði ekki einu sinni hlaupið á milli ljósastaura. En síðan horfði ég hýru auga til hópsins. Mig langaði að gera eitthvað í frístundum, keypti kort í líkamsrækt og fór í sund – og geri það enn og syndi 500 metra tvisvar í viku. Ég lét svo ekki vaða fyrr en árið 2012 þegar við skráðum okk- ur vinkonurnar í skokkhópinn. Ég fór á byrj- endanámskeið vorið 2012 og tók þau þrjú vor í röð. En ég hætti alltaf á haustin þegar færðin fór að versna. Síðan tók ég mig á og fór að skokka allt árið um kring. Það er mjög skemmtilegt og gefur mér mikið, sérstaklega andlega, og svo er félagsskapurinn góður. Hreyfingin styrkir sálina,“ segir Hugrún, sem nú hefur farið nokkrum sinnum erlendis í bæði göngur og hlaupaferðir. Hugrún fagnar 69 ára afmæli á árinu. Hún er samt ekki elst í hlaupahópnum. Sá elsti er fæddur árið 1940 og því 84 ára á þessu ári. Í febrúar á þessu ári var Hugrún í hópi fólks sem fór bókstaflega í hæstu hæðir í Afríku. „Hlaupin gefa mér mikið, sérstaklega andlega“ Hugrún Árnadóttir er á meðal elstu meðlima í hlaupahópi Hauka í Hafnarfirði. Hún var tæplega sextug þegar hún byrjaði að hlaupa. „Við viljum gera enn betur en hingað til og styðja við hvers konar hreyf- ingu og íþróttastarf eldra fólks,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðs- stjóri Menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar. Hann áréttar að mörg íþróttafélög hafi lengi sinnt hreyfingu og stutt við lýðheilsuverk- efni eldri borgara. Það sé gert í samstarfi við ýmsa aðila. Reykjavíkur- borg hafi haft óbeinan aðgang að slíku samstarfi. Nú er stefnt að því að auka samstarfið. Í febrúar skrifuðu Einar Þorsteinsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Ingvar Sverrisson, formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), undir samstarfssamning á milli Reykjavíkurborgar og íþróttahreyfingarinnar í borginni til ársins 2026. Í samningnum er kveðið á um nokkur viðamikil atriði, svo sem um breytingar á styrkjakerfi og umgjörð um hverfisfélög. Þar kemur líka fram að unnið verði að áætlun um stuðning við íþróttastarf eldri borg- ara í Reykjavík. Eiríkur segir mikinn vilja til að auka samstarf og stuðning borgarinn- ar við íþróttafélögin og lyfta starfinu upp. „Við erum að vinna útfærsluna. En við sjáum fyrir okkur að styrkja félögin betur svo að þau geti aukið framboð af viðburðum fyrir eldri borgara,“ segir Eiríkur og nefnir sem dæmi ýmis verkefni íþróttafélaga borgarinnar, svo sem Kraft í KR, Vítamín í Val og fleiri verkefni. Stuðn- Borgin lyftir upp lýðheilsustarfi eldri borgara Nýverið var skrifað undir samning á milli Reykjavíkurborgar og Íþróttabandalags Reykjavíkur sem felur meðal annars í sér meiri áherslu á íþróttastarf og hreyfingu eldri borgara. ingurinn geti falist í frekari nýtingu á aðstöðu í íþróttamannvirkjum og styrkjum fyrir þjálfara og leiðbeinendur. „Stuðningur og uppbygging borgarinnar hefur að mestu snúið að börnum og ungmennum og nú viljum við líka auka fókusinn á lýðheilsu eldri borgara,“ segir Eiríkur. „Við fórum tvær með unga fólkinu til Tansaníu, vinkona mín og ég. Hún fagnaði 70 ára afmæli í febrúar. Við stóðum saman á toppi Meru 21. febrúar og á Kilimanjaro sex dögum síðar. Það var góð áskorun og við kláruðum þetta saman,“ segir Hugrún og mælir eindregið með að fólk hreyfi sig. Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, undirrituðu samstarfssamninginn, sem gildir til ársins 2026.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.