Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2024, Side 28

Skinfaxi - 01.05.2024, Side 28
28 S K I N FA X I Mikilvæg störf í hreyfingunni Störf framkvæmdastjóra íþrótta- og ungmennafélaga hafa alla tíð verið umfangsmikil, annasöm og krefjandi. Það hefur leitt til mikillar starfsmannaveltu hjá sumum félögum og deildum og oft hefur komið fyrir að stjórnendur þeirra hafa enst frekar stutt í starfi. Hér er rætt við framkvæmdastjóra nokkurra félaga. Í febrúar síðastliðinum var auglýst eftir framkvæmdastjóra ungmennafélags á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var þriðja aug- lýsing félagsins á tiltölulega fáum árum. Auglýsingin var tilefni hugleiðinga Auðar Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ, á Facebook um starfsumhverfi starfs- fólks íþrótta- og ungmennafélaga. Auður, sem var sjálf framkvæmdastjóri Gerplu um nokkurra ára skeið, sagðist hafa hugsað mikið í gegnum árin um störf fólks í íþróttahreyf- ingunni, enda auglýsingin ekki einsdæmi. Hún skrifaði á Facebook-síðu sína: „Á mjög stuttum tíma hafa orðið miklar breytingar á þeim starfsmannahópi sem sinna starfi fram- kvæmdastjóra félaga, en það á líka við um önnur störf í hreyfingunni í umsýslu og þjón- ustu við deildir og félagsmenn. Okkur hefur verið tíðrætt í hreyfingunni um sjálfboðaliða og þátttöku þeirra og með því að kasta í þennan status þá er ég alls ekki að gera lítið úr þeirri áskorun, hún er vissulega til staðar. Hins vegar held ég að þessi hraða starfsmannavelta (mín upplifun) sé áhyggju- efni sem þarf líka að skoða nánar í heildar- myndinni. Kannski er ég á villigötum, kannski ekki – ég alla vega upplifi margt gott fólk sem kemur til starfa í hreyfingunni en hverfur af einhverjum ástæðum aftur úr hreyfingunni.“ Sævar Pétursson hefur starfað sem framkvæmdastjóri hjá Knatt- spyrnufélagi Akureyrar (KA) frá því í ársbyrjun 2012. Í hverju er starfið fólgið? Starf hjá íþróttafélagi er síbreyti- legt en skemmtilegt. Í grunninn felst í starfi mínu ábyrgð á rekstri KA og allra deilda félagsins. Í því felast m.a. mannaforráð, samn- ingagerð, greiðsla reikninga, bók- hald, uppgjör og að framfylgja stefnu félagsins hverju sinni. Einnig að takast á við þau fjölmörgu verk- efni sem koma upp á hverjum degi. Hvernig er vinnutíminn? Vinnutíminn er oft mjög langur og stundum erfitt að greina á milli þess sem maður vill kalla vinnu og þess að vera sjálfboðaliði í ei- gin félagi. Oftast mæti ég á milli kl. 08:30 og 09:00 á daginn og er fram til um kl. 18:00 á daginn. Svo fylgir þessu einhver kvöld- og helgarvinna, stundum í kringum fundi eða viðburði hjá deildunum. Hvað er mest krefjandi (erfiðast) í starfinu? Að mínu viti eru það ákveðin for- réttindi að vinna hjá íþróttafélagi af því að þar vinnurðu við það sem þér finnst skemmtilegt og hefur ástríðu fyrir. Nauðsynlegt er að líta á allt sem kemur upp sem ákveðin verkefni og vinna út frá því. Það er alltaf erfiðast þegar ákveðið er að enda samstarf við starfsfólk, fólk sem jafnvel hefur unnið sína vinnu vel og lítið er út á það að setja. Félagið hafi hins vegar ákveðið að fara aðra leið og fá nýja aðila inn til þess að leiða liðin okkar áfram. Þarna er jafnvel fólk sem þú ert farinn að líta á sem góða kunningja eða vini. Þú þarft að setjast niður með viðkomandi og tilkynna að ákveðið sé að láta gott heita. Sem betur fer eru þessi atvik fátíð. Það er því mun algengara að starfið gefur mér miklu meira. Hafa skyldurnar og störfin breyst frá því að þú byrjaðir? Starf íþróttafélaga hefur breyst mikið síðustu ár. Mun meiri ábyrgð er á öllu faglegu starfi og almennt uppeldi er komið á hendur íþrótta- félaganna. Við erum að vinna eftir mun betri og skýrari leiðbeining- um um starf okkar en áður. Rekstrar- umhverfið hefur líka breyst stór- kostlega, enda eru mörg íþrótta- félög farin að velta mörg hundruð milljónum á ári. Samhliða þessari auknu ábyrgð verður erfiðara að finna sjálfboðaliða sem vilja axla slíka ábyrgð. Því er enn mikilvæg- ara að umgjörð og rekstur íþrótta- félaga sé í föstum skorðum þannig að sjálfboðaliðinn sem býður sig fram til stjórnarstarfa geti einbeitt sér að íþróttastarfinu í staðinn fyrir að sitja með veltu heils íþrótta- félags í fanginu og hafa hvorki löngun né kunnáttu til þess að sjá um þá hluti. Áttu einhver góð ráð til þeirra sem eru í þessum störfum eða eru að spá í að sækja um slíkt starf? Fyrst og fremst þarftu að finna þér vinnu við eitthvað sem þú hefur gaman af. Ef það er innan íþrótta- hreyfingarinnar, verið þá meðvituð um að starfið ykkar verður gríðar- lega fjölbreytt og í langflestum tilfellum skemmtilegt þrátt fyrir að vinnutíminn sé ekki meitlaður í stein. Svo er líka mjög gott að vita ef þú ert að byrja ný(r) í slíku starfi að flestir kollegar sem ég þekki til innan íþróttahreyfingar- innar eru aldrei nema einu símtali frá þér og allflestir tilbúnir að taka spjallið og veita þá hjálp sem þeir geta. Uppeldi barna komið á hendur íþróttafélaga Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA segir nauðsynlegt að líta á allt sem kemur upp sem ákveðin verkefni og vinna út frá því.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.