Skinfaxi - 01.05.2024, Side 41
S K I N FA X I 41
13. Landsmót UMFÍ var haldið á Eiðum, sem nú tilheyra Múlaþingi,
helgina 13.–14. júlí árið 1968. Fólk streymdi austur á land strax á föstu-
deginum, bæði með flugi og á bílum, ýmist til að taka þátt eða fylgjast
með mótinu. Flugfélag Íslands fjölgaði ferðum sínum á staðinn og til
baka þessa helgina vegna áhuga.
Í Skinfaxa frá þessu ári segir að metþátttaka hafi verið á landsmótinu.
Mótshaldarar höfðu áhyggjur af því í aðdraganda mótsins að veðrið
yrði mögulega ekki upp á marga fiska. Kalt tíðarfar hafði verið á svæð-
inu í aðdraganda og undirbúningi mótsins um vorið og fast að móts-
helginni. En allar slíkar áhyggjur fuku á haf út þegar Austfirðingar og
mótsgestir vöknuðu í sól og blíðu á mótsstað á laugardeginum. Lundin
var létt allan daginn og ekki seig brosið þennan sólglaða júlímorgun
þegar mótið hófst og blásið var til setningar. Veðurguðirnir voru móts-
gestum hliðhollir alla helgina og svöluðu sunnanvindar fólki aðeins á
sunnudeginum.
Eins og á öðrum setningum landsmóta gengu þátttakendur til frjáls-
íþróttavallar undir fánum sínum. Þar stóðu sveitirnar í fylkingum meðan
mótssetning fór fram. Gönguna leiddu tveir stjórnarmenn UMFÍ, þeir
Hafsteinn Þorvaldsson og Sigurður Guðmundsson og báru þeir bæði
íslenska fánann og Hvítbláin, fána Ungmennafélags Íslands.
Eftir gönguna var boðið upp á sérstaka og skemmtilega athöfn þegar
fulltrúar frá Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK) afhentu félögum
sínum hjá Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands (UÍA) fánann.
HSK var gestgjafi landsmótsins þremur árum áður.
Á myndinni hér til hliðar má sjá Stefán Jasonarson, formann lands-
mótsnefndar 12. Landsmóts UMFÍ, afhenda Birni Magnússyni, for-
manni landsmótsnefndar 13. Landsmóts UMFÍ, Hvítbláin til varðveislu.
Björn dró fánann að húni á glæsilegri og stórri fánastöng þar sem hann
tók sig vel út og blakti mótið allt.
Fáninn var saumaður úr silki og afar vandaður. Ætlun HSK með þess-
ari athöfn var að afhenda landsmótum UMFÍ fánann og skyldi hann
Björn Magnússon, skólastjóri barnaskólans á Eiðum og formaður lands-
mótsnefndar, dregur Hvítbláin, fána UMFÍ, að húni. Stefán Jasonarson,
formaður landsmótsnefndar mótsins áður, fylgist með.
Gamla myndin: Hvítbláinn afhentur í fyrsta sinn
Hvítbláinn var fáni Íslendinga áður en íslenski þjóðfáninn var
opinberlega staðfestur með konungsúrskurði 19. júní 1915. Fall-
beyging nafns Hvítbláins hefur valdið heilabrotum hjá mörgum í
gegnum tíðina og er það ástæða þess að beygingin er tiltekin sér-
staklega í umfjölluninni. Samkvæmt Stofnun Árna Magnússonar
er beygingin á eftirfarandi hátt:
Nf. Hvítbláinn – Þf. Hvítbláin – Þgf. Hvítbláni – Ef. Hvítbláins
eftirleiðis afhentur framkvæmdaaðila hvers landsmóts á komandi árum.
Það tókst til og athöfnin átti svo eftir að verða að hefð á komandi lands-
mótum. Þremur árum síðar afhenti Björn Hvítbláin Guðjóni Ingimundar-
syni, sem dró hann að húni á Sauðárkróki við setningu 14. landsmóts
UMFÍ þar árið 1971.
Takk fyrir stuðninginn
FJARÐABYGGÐ
VELKOMIN Í SUÐURNESJABÆ