Vesturbæjarblaðið - dec 2023, Qupperneq 15

Vesturbæjarblaðið - dec 2023, Qupperneq 15
Jólaljósin voru kveikt á Oslóar­ trénu á Austurvelli klukkan 16 á fyrsta degi aðventu. Fjöldi fólks lagði leið sína til þess að taka þátt í athöfninni enda má segja að hún marki upphaf jólanna meðal borgarbúa. Ýmislegt var til skemmtunar í tilefni dagsins. Sigríður Thorlacius og Snorri Helgason fluttu jólalög ásamt hljómsveit. Jólasveinarnir Bjúgna krækir og Askasleikir stálust í bæinn til að syngja og skemmta kátum krökkum. En fyrsti jólasveininn, Stekkjarstaur, kemur til byggða 11. desember og þeir minntu börnin á að vera nú prúð og þæg svo þau fengju eitthvað gott í skóinn. Tufti og tröllabörnin voru á vappi á Austurvelli og heilsuðu upp á viðstadda, Lúðrasveit Reykjavíkur lék aðventu­ og jólalög frá klukkan 15.30. Abdullah Alsabeehg borgar­ fulltrúi flutti kveðju frá Oslóarborg og afhenti þýddar bækur að gjöf sem gefnar verða á skólabókasöfn í grunnskólum Reykjavíkur. Athöfnin sjálf hófst klukkan 16.00 og sá Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona um að kynna atriðin. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar þakkaði Oslóarbúum fyrir gjöfina og vináttuna í gegnum árin í ræðu sinni. Að því loknu kom hinn norsk­íslenski Kristþór Viljar Danson, fjögurra og hálfs árs og kveikti ljósin á trénu. Borgarstjórinn sagaði tréð í Heiðmörk Oslóartréð var að þessu sinni sótt til Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk. Tréð er 12.3 metra hátt sitkagrenitré sem skreytt var með 1,2 kílómetrum af seríu með 11.760 ljósum, 120 gylltum kúlum og svo er fallega jólastjarnan á toppnum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagaði tréð með aðstoð Sævars Hreiðarssonar skógarvarðar hjá Skógrækta rfélagi Reykjavíkur. Oslóar borg hefur í áratugi gefið Reykvíkingum jólatré sem tákn um vináttu borganna og sameiginlegar hefðir og jólagleði. Sendiherra Noregs Cecilie Willoch, var viðstödd athöfnina í Heiðmörk og þakkaði fyrir vinskap borganna tveggja og þetta falleg tré. Þó svo að Oslóartréð komi úr Heiðmörk þá hefur það ekki breytt neinu um vináttuna, því í stað jólatrés gefa borgaryfirvöld í Osló grunnskólum í Reykjavík bækur. „Hanna í Horni sendikvinna“ Færeyja á Íslandi svo gripið sé til færeysku var einnig viðstödd athöfnina, en kveikt var á jólatré sem er gjöf frá Reykjavíkurborg í Þórshöfn í Færeyjum um liðna helgi. Tréð í Þórshöfn var einmitt fellt fyrr í mánuðinum og flutti Eimskip tréð til Færeyja. 15VesturbæjarblaðiðDESEMBER 2023 Ertu í hugleiðinugm um að minnka eða stækka við þig? Erum með kaupendur og seljendur óskráðra eigna sem skoða skipti. Hafðu samband og fáðu frítt skuldbindingalaust verðmat. • Góð þjónusta • Fagljósmyndun • Sanngjörn söluþóknun Þínir menn í Vesturbænum Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali Sími: 822 2307 olafur@miklaborg.is Gunnar S. Jónsson lögg. fasteignasali Sími: 899 5856 gunnar@miklaborg.is Kristþór Viljar Danson fjögurra og hálfs árs kveikir á Oslóartréinu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagar Óslóartréið sem var tekið í Heiðmörk. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar og Kristþór Viljar Danson sem tendraði ljósið á jólatrénu. Netverslun: systrasamlagid.is

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.