Skessuhorn - 29.05.2024, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202426
Stéttarfélags Vesturlands verður haldinn
í Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a,
mánudaginn 3. júní kl 18:00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt félagslögum
2. Önnur mál
Þrír heppnir félagar úr hópi fundarmanna
fá óvæntan glaðning.
Góðar veitingar í boði.
Félagar: Sýnum samstöðu, fjölmennum
á aðalfundinn!
Stjórn Stéttarfélags Vesturlands
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
4
Aðalfundur
Föstudaginn 24. maí voru 34 nem-
endur brautskráðir frá Mennta-
skóla Borgarfjarðar í Borgarnesi.
Kolbrún Líf Lárudóttir nýstúdent
flutti ávarp fyrir hönd útskriftar-
nema. Kolbrún hvatti samnem-
endur sína til að fagna deginum og
sagði meðal annars: „Þessi þrjú ár
sem að ég hef verið í MB hafa verið
krefjandi, fjölbreytt, skemmtileg
en fyrst og fremst stútfull af æðis-
legum minningum og upplifunum.
Ég held að ég tali fyrir hönd allra
nemenda þegar ég segi að MB sé
eins og annað heimili okkar, nema
kannski með aðeins fleiri sófum til
þess að leggja sig í.“
Að venju var utanaðkomandi
aðila boðið að vera með gestaávarp
við brautskráningu en að þessu sinni
var það Guðmundur Ingi Guð-
brandsson félags- og vinnumála-
ráðherra. Hann talaði um mikilvægi
skóla og hversu stórt hlutverk skóli
hefur til að auka þroska, víkka sjón-
deildarhringinn og finna sig sjálfan.
Ávarp tíu ára stúdents var í
höndum Þorkels Mána Einarssonar
en hann hvatti nemendur til að vera
óhrædda við að fylgja draumum
sínum, láta reyna á sig þó það kosti
kollhnís, þannig verði þeir besta
útgáfan af sjálfum sér.
Tónlistaratriði við brautskrán-
ingu voru í höndum tveggja
nýstúdenta við skólann, þeirra
Töru Helgadóttur og Eddu Maríu
Jónsdóttur og undirleikari Eddu
var faðir hennar Jón Þór Sigmunds-
son. Flutningur þeirra var frábær
og snerti hug og hjörtu áhorfenda.
Að þessu sinni voru brautskráðir
fjórir nemendur af Náttúru-
fræðibraut, átta af Félagsfræða-
braut, tveir af Íþróttafræðibraut
– náttúrufræðisviði, einn nem-
andi af Íþróttafræðibraut – félags-
fræðasviði, 14 nemendur af Opinni
braut og fimm nemendur með við-
bótarnám til stúdentsprófs.
Verðlaun fyrir bestan námsár-
angur á stúdentsbraut hlaut Unnur
Björg Ómarsdóttir með einkunn-
ina 8,94 og fékk fyrir það viður-
kenningu frá Arion banka.
Bragi Þór Svavarsson skóla-
meistari ávarpaði útskriftarnema í
lok athafnar þar sem hann óskaði
þeim gæfu og gengis og minnti á
að öll erum við mismunandi og
á nauðsyn þess að bera virðingu
fyrir hverju öðru. „Það sem ekki er
mannlegt er að sýna aldrei nema
eitt lag, flysja aldrei laukinn sinn,
sýna bara eins og allt leiki í lyndi,
bíllinn aldrei bilaður, alltaf nóg til
af aurum og lífið brosi við manni.
Þannig er það nefnilega víst sjaldn-
ast og ég vona að skólinn hér hafi
þroskað ykkur til að vita að þið
megið ekki trúa á það fyrsta sem
þið sjáið, trúið ekki á það sem
glansmyndin segir við ykkur. Gefið
öllum séns á að vera meira, kynnist
öllum aðeins meira og leyfið öðrum
að kynnast ykkur meira, þannig
verðið þið vinir vina ykkar; einlæg
og sönn.“
Verðlaun og
viðurkenningar
Eftirtaldir útskriftarnemar fengu
verðlaun og viðurkenningar við
brautskráningu:
• Díana Dóra B. Elínardóttir
fékk viðurkenningu fyrir
lokaverkefni ársins 2024.
• Edda María Jónsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir góð
störf í þágu félagslífs nem-
enda gefin af Borgarbyggð.
• Elfa Dögg Magnúsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir góðan
námsárangur í dönsku frá
Danska sendiráðinu. Eins veitti
Menntaskóli Borgarfjarðar
Elfu verðlaunin Sjálfstæði –
færni – framfarir sem byggja
á einkunnarorðum skólans.
• Halldór Grétar Sigurbjörns-
son fékk hvatningarverðlaun
sem Límtré Vírnet gefur og
eru veitt dreng sem hefur sýnt
þrautseigju og framfarir í námi.
• Isabella Sigrún fékk viðurkenn-
ingu fyrir góðan námsárangur í
íþróttagreinum sem Sjóvá veitir.
• Kolbrún Líf Lárudóttir fékk
viðurkenningu fyrir góð
störf í þágu félagslífs nem-
enda gefin af Borgarbyggð.
• Lisbeth Inga Kristófersdóttir
fékk verðlaun fyrir góðan náms-
árangur í íslensku sem eru gefin
af Kvenfélagi Borgarness.
• María Caroline Guðmunds-
dóttir fékk hvatningarverðlaun
Zontaklúbbs Borgarfjarðar, sem
eru veitt stúlku sem hefur sýnt
þrautseigju og framfarir í námi.
• Ólöf Inga Sigurjónsdóttir
fékk viðurkenningu fyrir góð
störf í þágu félagslífs nem-
enda gefin af Borgarbyggð.
• Tara Björk Helgadóttir fékk
verðlaun fyrir góðan árangur
í náttúruvísindum sem
Íslenska Gámafélagið gaf.
• Unnur Björg Ómarsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir lokaverk-
efni 2024. Einnig veitti Kaup-
félag Borgfirðinga Unni verð-
laun fyrir góðan árangur í
félagsgreinum. Unnur hlaut
Menntaverðlaun Háskóla
Íslands sem eru veitt einstak-
lingi sem hefur sýnt góðan
árangur á stúdentsprófi. Að
lokum veitti Arion banki Unni
verðlaun fyrir besta saman-
lagðan árangur á stúdentsprófi.
mm
Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Unnur Björg Ómarsdóttir, dúx skólans, ásamt Braga skólameistara við útskriftina.
Edda María Jónsdóttir söng við undirleik Jóns Þórs föður síns.
Það var bjart yfir útskriftarnemendum.