Skessuhorn - 29.05.2024, Blaðsíða 51
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2024 51
Við sendum sjómönnum
og fjölskyldum þeirra
hátíðarkveðjur í tilefni
sjómannadagsins
Skessuhorn fór á stúfana og kíkti
miðvikudaginn 15. maí niður á
bryggju á Arnarstapa. Nokkur
fjöldi ferðamanna var gangandi
um svæðið en niðri á bryggju voru
hafnarstarfsmenn að störfum. Einn
strandveiðibát hafði rekið upp á
sker og sat þar fastur en strand-
veiðisjómaðurinn á bátnum var
kominn út og kallaði „halló!“ hátt
og snjallt. Annar strandveiðibátur
kom þá að og kannaði aðstæður.
Brátt voru þeir báðir komnir í bið-
röðina eftir löndun.
Bátarnir voru í röðinni, sátu
eins og á baðkari og biðu karlarnir
í rólegheitunum eftir að kom-
ast að bryggju til að landa dags-
skammtinum. Hafnarstarfsmenn
voru með hraðar hendur við lönd-
unina og greinilegt að tækni og
reynsla við krana og lyftara var þar
á ferð. Bátarnir voru svo bundnir
við hvern annan, allt smúlað og raf-
geymar settir í hleðslu. Gluggar
voru hreinsaðir, kosturinn yfirfar-
inn fyrir næsta dag og einn hundur
dreginn upp með einu fiskikarinu.
Nokkrir strandveiðifélagar eru
komnir saman til að spjalla um veiði
dagsins. „Það koma allir hingað rétt
fyrir sex að morgni og þá förum við
út, einn í einu. Þetta er kerfi sem er
búið að vera í nokkurn tíma en hér
áður fyrr var þetta töluvert meira
bras. Einn bátur fór þá kannski um
fjögur leytið. Hann var kannski við
bryggjuna og þá þurfti hann að
binda alla hina bátana aftur svo að
þá ræki ekki upp í fjöru. Þetta var
alveg heljarinnar vesen en þetta er
kerfi sem er að svínvirka,“ heyrð-
ist á tali þeirra. Þessir sjóarar voru
þeir Magnús, Helgi og Jóhannes.
Spjall þeirra barst síðan í hvernig
fisk þeir hafi fengið, hversu lengi
þeir voru á stíminu út á miðin og
svo framvegis. „Ég fer nú að gera
mig kláran í að fara upp þessa bless-
uðu brekku,“ segir Helgi og hinir
félagarnir hlæja. Sjómaðurinn sem
kom til aðstoðar félaga sínum á
skerinu röltir af stað. Þá er kallað:
„Ætlar unglingurinn bara að hlaupa
upp brekkuna! Voru einhver björg-
unarlaun?“ Það er hlegið. Á meðan
er haldið áfram að landa myndar-
legum þorski í frábæru veðri í hinni
ægifögru höfn á Arnarstapa.
hig
Dagstund á Arnarstapa
Einn strandveiðibátur nálgast bát sem hafði rekið upp á sker.
Þétt setin höfnin á Arnarstapa. Bátur kemur inn í höfnina, úr löndunarbiðröðinni. Byrjað að landa.
Hafnarstjórinn snar í snúningum á lyftaranum.
Magnús, Helgi og Jóhannes að spjalla um daginn
og veginn. Þorski af öllum stærðum var landað þennan dag.