Skessuhorn - 29.05.2024, Blaðsíða 55
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2024 55
heim frá Danmörku, það var svo
helvíti dýrt að borga gáminn.“
Þýðir lítið að slást
við Samherja
En hvernig kom það til að Ómar er
nú kominn upp á Skaga, og tekinn
við fiskmarkaðnum þar? „Það var
hringt í mig, hann Böðvar [Ingva-
son] sem var með markaðinn, við
þekktumst. Ég hafði verið með
fiskmarkað í Hafnarfirði, sem ég
kallaði fiskmarkað á hjólum. Ég sá
um að landa þessu þarna í Hafnar-
firði og keyrði síðan aflanum í
Sandgerði eða til Reykjavíkur á
Fiskmarkað Íslands. Svo þegar
Fiskmarkaður Norðurlands opnaði
markað í Hafnarfirði datt botninn
úr því, ég ætlaði ekkert að fara að
slást við Samherja. Það má lítið
sveifla hendinni gegn svona stórum
köllum, en ég var svo sem ekkert að
erfa það við þá.
Böðvar var sem sagt að hætta
og hringdi í mig og spurði hvort
ég gæti ekki hugsað mér að koma
upp á Skaga, það vantaði mann, og
hann sagði að þeir sæju ekki fyrir
sér að það yrði neitt hægt að veiða
ef ekki væri fyrir markaðinn. Svo
ég kom og fundaði með fólki, bara
núna eftir áramótin. Ég fór síðan
og ræddi við Fiskmarkað Íslands og
þeir brugðust hinir kátustu við svo
það varð úr að ég tók þetta að mér,
sem verktaki fyrir þá.“
Algjörir jaxlar
á Akranesi
Ómar segir að ef ekki hefði tekist
að halda starfsemi fiskmarkaðar á
Akranesi áfram hefði verið hætt
við að fótunum væri kippt undan
veiðum þar. „Þetta eru nokkrir
bátar, og auk þess grásleppan og
svo hátt í tuttugu bátar sem eru
á strandveiðum. Þeir segja mér
að það sé hátt í hundrað kílóum
meira á bát í ár en var í fyrra, og þá
eru það um 1,7 tonn á dag meira
sem verið er að landa úr strand-
veiðibátunum. Það hefði verið hel-
víti dauft ef því hefði ekki verið
hægt að landa á Akranesi.
Ég lít upp til allra þessara kalla
sem eru við veiðar héðan frá Akra-
nesi, margir af þeim eru fullorðnir
menn, algjörir jaxlar, sem standa
kannski þetta 14 tíma á dag á sjó.
Ég reyni að hjálpa þeim við að hífa
og græja og gera þegar þeir koma
í land, og viðmótið, kurteisin, sem
ég fæ frá þessum köllum er frábær.
Það er bara eins og ég sé einn úr
áhöfninni og mér líður eins og ég
sé bara kominn aftur á sjóinn.“
Byrjar kannski í golfinu
eftir liðskiptin
Spurður hvað hann sjái fyrir sér
varðandi framtíðina, hvort að
hann, 68 ára gamall, muni halda
áfram að reka fiskmarkaðinn á
Akranesi til lengri framtíðar, segir
Ómar að hann sjái ekki langt fram
í tímann í þeim efnum. „Ég er
orðinn svo gamall maður. Þetta
ræðst bara.“
Spurður hvernig hann kunni við
sig uppi á Akranesi, hvort hann
hafi þekkt þar fólk áður en hann
flutti, heldur Ómar nú það. „Dóttir
mín býr hérna á Skaganum, með
barnabörnin, svo það er frábært að
geta heimsótt hana og börnin. Það
hefur hins vegar ekki gefist mik-
ill tími til þess því það hefur verið
svo brjálað að gera. En ég sé fyrir
mér að strax í júlí geti það breyst,
þá verði strandveiðarnar stopp-
aðar því það er búið að fiskast
svo vel að það verði búið að fisk-
ast upp í þessi tíu þúsund tonn eða
hvað þetta eru. Þá getur maður
bara farið að taka daginn snemma,
farið í sundlaugina og í sólbað. Svo
þegar ég verð búinn að komast í
liðskiptin get ég kannski byrjað í
golfi, ég get svo lítið labbað núna
að það verður ekki fyrr en eftir
það. Mér líður afskaplega vel
hérna, allir sem ég hitti og spjalla
við eru eins og bestu vinir mínir.
Ég kann rosalega vel við mig hér
og við fólkið.“
fr/ Ljósm. mm
Það hefur verið gríðarmikið að gera hjá Ómari að undanförnu, enda hefur gefist mjög vel. Þau eru mörg handtökin dags daglega á fiskmarkaðnum.