Skessuhorn - 29.05.2024, Blaðsíða 34

Skessuhorn - 29.05.2024, Blaðsíða 34
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202434 Skagamaðurinn Ingi Már Ingvars- son hóf störf hjá fyrirtækinu HB & Co um miðjan níunda ára- tuginn og var það fyrsti vinnu- staður hans. Árið 1989 fór hann í nám í Fiskvinnsluskólann og útskrifaðist eftir tveggja ára nám sem fiskiðnaðarmaður. Þá fór hann að starfa hjá Krossvík, áður Haförninn, fyrst sem gæðastjóri og síðan sem verkstjóri í alls um tvö ár. Á þessum tíma fór Ingi Már á trillu ásamt Herði heitnum Strandamanni sem var tengdafaðir hans á þeim tíma og þar smitaðist hann af sjómannsbakteríunni. Síðan fór hann í smá tíma á Eyr- ina hjá HB & Co og fékk síðan starf á frystitogaranum Höfr- ungi III AK 250 árið 1997. Ingi Már starfaði á Höfrungi til ársins 2021 eða í 24 ár en þá var togar- inn seldur til Rússlands. Þá færði hann sig yfir á frystitogarann Sól- borgu RE 27 sem Útgerðarfé- lag Reykjavíkur gerði út, en síðan var öllum skipverjum sagt upp og Brim hf. keypti skipið ásamt veiðiheimildum í september 2022. Í millitíðinni starfaði Ingi Már í álverinu á Grundartanga í sex mánuði en fékk síðan aftur starf á Sólborgu þar sem hann starfar í dag. Ingi Már kíkti við á skrifstofu Skessuhorns í síðustu viku í smá spjall um sjómennskuna sem hefur verið hans fylgifiskur í tæp 40 ár. Skipin nýtast betur í dag Blaðamaður var að vinna með Inga Má í HB & Co seint á níunda áratugnum og fékk þá að kynn- ast honum og hans uppátækjum. Þó Ingi Már beri það kannski ekki utan á sér þá er hann mik- ill stuðbolti og sprellikarl og afar skemmtilegur vinnufélagi. Það þekkja þeir sem hafa unnið með honum í gegnum tíðina. Ingi Már segir að vinnan í HB & Co hafi vakið áhuga hans á sjómennsku en þar kynntist hann flestum störf- unum í frystihúsinu. Hann var í móttökunni, á flökunarvélum, í tækjunum og ýmsu öðru. Þegar hann fékk vinnuna á Höfrungi þá fór hann úr venjulegri dagvinnu yfir í vaktavinnu. Á þessum tíma fóru skipverjar þrjá túra mánuð í senn út á sjó, síðan fengu þeir einn mánuð í frí og svo voru aftur teknir þrír túrar. Seinna breyttist það í tvo mánuði og einn frí og í dag er einn mánuður á sjó og svo einn í frí. Ingi Már segir að skipin nýtist betur í dag en áður fyrr. „Núna kemur skipið um morg- uninn í höfn og er farið aftur út um kvöldið með nýrri áhöfn. En áður fyrr var það í höfn í 4-5 daga fyrir næsta túr þannig að það eru fleiri dagar á sjó sem er gott fyrir útgerðina.“ Ingi Már á þrjú börn með fyrrum eiginkonu sinni, Hörpu Harðardóttur, en þau skildu fyrir nokkrum árum síðan. Anton Elí fæddist árið 1999, Valdís Eva 2002 og örverpið Orri Freyr árið 2014. Ingi Már býr með Elísabetu Rut Heimisdóttur í dag. Hvernig var þetta á þessum tíma, að vera kannski á sjó í átta til níu mánuði á ári og hvaða áhrif hafði þetta á fjölskyldulífið? „Þetta er ekkert rosalega fjölskylduvæn vinna, maður hefur misst af ansi miklu og mörgum afmælisdögum hjá börnunum. Þetta er allt annað í dag og hefði kannski mátt breytast fyrr upp á þetta að gera. En svona er þetta bara, maður vissi svo sem að hverju maður gekk og þarf að lifa með því.“ Góður félagsskapur á sjó Ingi Már byrjaði á Höfrungi sem háseti en varð síðan fljótt vinnslu- stjóri og starfaði við það nánast öll 24 árin. En hvað felst í starfi vinnslustjóra? „Þetta er svipað og að vera verkstjóri, maður stjórnar í vinnslunni og sér um að allt gangi smurt fyrir sig. Tek svo nýtingar og gæðaprufur á hrá- efninu. Ég var aðallega í pökkun og vigtun og svo einnig að fylgj- ast með vinnslunni, að allt væri í gúddí. Það var einn vinnslustjóri á hverri vakt og það gekk bara vel allan þennan tíma. Í dag eru átta tíma vaktir en voru áður fyrr sex tímar og það er mikill munur þar á. Maður hvílist aðeins betur því það var oft erfitt að ná sér niður fyrir næstu vakt þegar hún var sex tímar. Maður reynir alltaf að leggja sig á hverri frívakt því annars ertu vakandi í heilan sól- arhring og það gengur ekki upp. Maður leggur sig fljótlega eftir vakt og svo sér maður hvað maður nær miklum svefni en yfirleitt eru þetta 3-5 tímar sem maður nær.“ Er þetta ekkert einmanalegt líf að vera á sjó? „Nei, nei, maður er í góðum félagsskap og í gamla daga var það þannig að öll sjónvarpsdagskráin var tekin upp á VHS mánuðinn á undan og síðan horfðum við á hana í næsta mánuði. Núna er þetta allt í beinni, enski boltinn og allt saman. Þannig að við getum alltaf verið að kýta um boltann sem er bara skemmtilegt og lífgar upp á stemninguna.“ Á Höfrungi var áhöfnin 27 manns, tíu á hvorri vakt og auk þess vélstjórar, kokkur, messi sem aðstoðaði kokkinn, stýrimaður og skipstjóri. Þú hlýtur að hafa kynnst ansi mörgum góðum vinnu- félögum í gegnum tíðina? „Það er óhætt að segja það, ég hef unnið með mörgum ansi skemmtilegum vinnufélögum enda þurfa menn held ég að vera smá klikkaðir til að endast í þessu starfi. Léttleik- inn þarf að vera í fyrirrúmi því þarna, eins og annars staðar, þarf að vera gaman í vinnunni. Ég get nefnt góða menn eins og Gulla Einars, Gumma Matt, Steina Pét- urs, Hadda Jóns, Binna Jóns, Adda Jónasar, Einar Árna Páls, Ella Óla, Elvar Elíasson, Kára Dan og ég er að gleyma alveg helling af mönnum en vonandi fyrirgefa þeir mér það. Kristján Pétursson skipstjóri réði mig á sínum tíma og ég var með honum á sjó þar til hann hætti. Síðan voru fleiri skipstjórar eins og Sturlaugur Gíslason (Bóbó), Ævar Jóhanns- son, Þórður Magnússon, Arnar Ævarsson og Haraldur Árnason, allt góðir og mætir menn.“ Voru að búa til sketsa Það var ekki mikil starfsmannavelta á svona togara eða hvað? „Nei, það var ekki mikil hreyfing á mann- skapnum enda reyna menn að halda í þessi störf. Þó þetta sé auðvitað erfið vinna þá eru launin góð og það skiptir auðvitað miklu máli.“ En hvað voru menn að dunda sér í vaktafríum á Höfrungi? „Ég man að þegar það var rólegt um borð þá voru ég og Gulli Einars stundum að leika okkur að búa til sketsa, myndir og videó sem var seinna sýnt kannski á starfsmannagleði eða árshátíðum. Rólegasti tíminn um borð var þegar við vorum á grá- lúðuveiðum og þá var alltaf einhver tími til að leika sér aðeins. Þegar ég byrjaði á Höfrungi þá vorum við mikið að veiða grálúðu en það hefur minnkað alveg helling og í dag er þetta aðallega bolfiskur og karfi sem við erum að veiða.“ 24 ár er langur tími á sama vinnu- stað og alls ekki algengt að menn starfi svo lengi á sama stað eins og Ingi Már gerði. Þú varst síðan að vinna í álverinu í hálft ár, hvernig var að vera kominn í land að vinna? „Það var ágætt en það var frekar rólegt yfir þessu miðað við að vera á sjónum. Vinnutíminn var fínn en maður vann í fimm daga og fékk svo fimm daga frí. Tvær morgun- vaktir, tvær næturvaktir og svo tvær kvöldvaktir og á átta tíma vöktum.“ Þú hefur ekki alveg kunnað við þig í landi og viljað fara aftur út á sjó? „Mér bauðst það að fara aftur á Sólborgina og ég greip það bara fegins hendi. Mér finnst þetta ágætt líf, þetta sjómannslíf og held mig bara við það þar til annað kemur í ljós,“ segir sjóarinn síkáti Ingi Már Ingvars son að lokum. vaks / Ljósm. úr einkasafni Var á frystitogaranum Höfrungi III í 24 ár Sjómaðurinn Ingi Már Ingvarsson. Ljósm. vaks Höfrungur III AK 250. Anton Elí fór einn túr með pabba sínum sem messagutti árið 2014, þá 15 ára. Ingi Már kann vel við sig á sjónum. Vinnufélagar á Höfrungi staddir í Englandi árið 2015 í ferð að heimsækja Fish & Chips staði. Frá vinstri: Andrés Þórarinsson (í bláu), Kristófer Jónsson, Kjartan Aðalsteinsson, Þorsteinn Pétursson, Hróðmar Sigurðsson, Hinrik Axelsson, Ægir Jóhannsson, Aðalgeir Jónasson, Ingi Már og Eiríkur Gíslason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.