Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.2024, Page 15

Víkurfréttir - 15.05.2024, Page 15
Hafnaði í þriðja sæti í golfmóti á Flórída – Þrettán ára kylfingur úr GS tók þátt í Hurricane Junior Golf Tour Ingi Rafn William Davíðsson, þrettán ára kylfingur úr Golf- klúbbi Suðurnesja, tók þátt í Hurricane Junior Golf Tour á Red Tail golfvellinum í Flórída í mars síðastliðnum og náði þar góðum árangri en hann endaði í þriðja sæti í sínum flokki. Þetta var í fyrsta skipti sem Ingi Rafn tekur þátt í golfmóti erlendis og var þetta skemmtileg reynsla og góð byrjun á golftímabilinu. Með frammistöðu sinni vann hann sér keppnisrétt á þremur golfmótum sem fram fara í Flórída og Chi- cago seinna á árinu. Ingi Rafn er búinn að vera dug- legur að æfa golf inni í vetur en einnig var hann iðinn við að sækja golfmót víðsvegar um landið síð- asta sumar. Þá var hann alls með 32 keppnishringi og lækkaði for- gjöfina talsvert. Þetta hefur tví- mælalaust hjálpað Inga Rafni á Red Tail golfvellinum í Flórída en golfvöllurinn er mjög langur og þröngur, það hentaði Inga Rafni einkar vel en hann lenti sjaldan í vandræðum og hitti flestar brautar. Það var svo mikil spenna á síðustu holunum þegar Ingi Rafn náði að tryggja sér þriðja sætið með einu höggi. „Ég hef reynt að mæta á allar inniæfingarnar í vetur og stundum tek ég tvöfalda æfingu ef ég get. Mér finnst þó miklu skemmtilegra að spila golf úti og því var mjög gaman að geta spilað golf í Flórída í góðu veðri og keppa við kylfinga frá öðrum löndum,“ sagði þessi ungi og efnilegi kylfingur og bætti við að hann ætli að æfa vel í sumar og keppa sem mest til að lækka for- gjöfina enn meira og reyna að ná í verðlaun á Íslandsmótinu. Ingi Rafn stundar ætlar að æfa og keppa sem mest í sumar til að lækka forgjöfina. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Störf í leik- og grunnskólum Akurskóli - Kennari eða sérkennari Akurskóli - Þroskaþjálfi Akurskóli - Dönskukennari Félagsmiðstöð Háaleitisskóla - Umsjónarmaður Háaleitisskóli - Kennari í textílmennt Háaleitisskóli - Grunnskólakennari á miðstigi Háaleitisskóli - Grunnskólakennari á yngsta stig Heiðarskóli - Aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóli - Kennari á miðstigi Drekadalur - Deildarstjórar Leikskólinn Hjallatún - Leikskólakennari Stapaskóli - Starfsfólk skóla Stapaskóli leikskólastig - Deildarstjóri Stapaskóli leikskólastig - Kennari Tjarnarsel - Leikskólakennarar Önnur störf Menningar- og þjónustusvið - Þjónustufulltrúi í þjónustuveri Menntasvið - Sálfræðingur Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? - Almenn umsókn Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn MAGGI TÓKA OG HÁMUNDUR ÖRN MÆTAST Í ÚRSLITUM Undanúrslitin í tippleik Víkur- frétta fóru fram um helgina og kom greinilega í ljós að „kálið er ekki sopið þó í ausuna sé komið“. Forystusauðirnir tveir, þeir Grétar Ólafur Hjartarson og Gunnar Már Gunnarsson, voru eflaust búnir að ákveða hvað þeir skyldu skoða í London samhliða að mæta á úrslitaleikinn í FA cup á milli Manchester-liðanna United og City. Eftir frábæra frammistöðu í tippleiknum í vetur voru þeir báðir sjálfsagt sigurvissir en voru laglega teknir í bólinu af Magga Tóka sem vann Grétar 10-8 og Hámundi Erni Helgasyni sem vann Gunnar Má 9-6. Við þökkum fyrrum liðs- félögunum Grétari og Gunnari Má kærlega fyrir góða frammi- stöðu í vetur. Einn Íslendingur af 24 náði þrettán réttum og baðar sá hinn sami sig upp úr rúmum 3,2 millj- ónum króna. 29 af 830 sem náðu tólf réttum keyptu seðilinn á Ís- landi, fær hver tæpar 35 þúsund krónur. Þá er ekkert eftir nema sjálfur úrslitaleikurinn. Víkurfréttir tóku stöðuna á Magga Tóka og Há- mundi. Þar sem Hámundur endaði í þriðja sæti fékk hann fyrstur orðið. „Ég er búinn að svífa um á bleiku skýi síðan á laugardaginn þegar ég sá að ég hafði rúllað Gunnari Má upp. Ég verð að viðurkenna að ég átti von á meiri mótspyrnu frá honum, sem telur sig vera voða- legan getraunaspeking. Það er greinilega ekki það sama að sjá um getraunastarfið fyrir Grindavík með frábærum hætti og vera góður að tippa. Að klikka svona eins og hann gerði á ögurstundu, ég átti von á meiru frá Gunna. Ég mæti áfram með auðmýktina að vopni í úrslitlaleikinn á móti Magga Tóka, hann er greinilega sjóðandi heitur þessa dagana og ég þarf að kafa djúpt í reynslubrunn minn til að vinna hann á sunnudaginn,“ sagði Hámundur. „Að sjálfsögðu er ég ánægður með að koma mér í úrslitaleikinn. Ef ég man rétt þá heldur Há- mundur ekki með Manchester United og þar sem ég veit að þú, blaðamaður Víkurfrétta, ert United-stuðningsmaður eins og ég, finnst mér eins og það sé skrifað í skýin að ég vinni Hámund og ég og þú fögnum glæstum sigri okkar manna á móti City á Wembley. Ég hlakka mikið til að fara í þessa ferð,“ sagði Maggi Tóka. Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is „ÞRUMAÐ Á ÞRETTÁN“ Maggi Seðill helgarinnar Hámundur o o o Arsenal - Everton o o o o o o Man.City - West Ham o o o o o o Liverpool - Wolves o o o o o o Brentford - Newcastle o o o o o o Brighton - Man.Utd. o o o o o o Chelsea - Bournemouth o o o o o o Sheff.Utd. - Tottenham o o o o o o Crystal Palace - Aston Villa o o o o o o Luton - Fulham o o o o o o Burnley - Nott.Forest o o o o o o Inter - Lazio o o o o o o Real Betis - Real Sociedad o o o o o o Lille - Nice o o o Besta deild kvenna: Keflavík tapaði naumlega fyrir Íslandsmeisturum Vals í Bestu deild kvenna eftir að hafa leitt 1:0 í hálfleik með marki Elfu Karenar Magnúsdóttur (35’). Valskonur skoruðu tvö mörk á fyrstu fimmtán mínútum síðari hálfleiks og þrátt fyrir þunga sókn Keflavíkur undir lokin urðu mörkin ekki fleiri. Keflvíkingar eru án stiga í neðsta sæti eftir fjórar umferðir en leikur þeirra við Þór/KA í fimmtu umferð fór fram eftir að Víkurfréttir fóru í prentun. Lengjudeild karla: Njarðvíkingar unnu glæsilegan 3:0 sigur á Dalvík/Reyni í miklum baráttuleik í Lengjudeild karla fyrir helgi. Heimamenn komust yf ir á markamínútunni þegar Kaj Leo Bartalstovu átti góða sendingu á fjærstöng og Jaou Ananias Jordao Junior kastaði sér fram og skallaði í netið (43’). Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari Njarðvíkinga, gerði tvö- falda breytingu á 85. mínútu og það skilaði árangri eftir einungis þrjár mínútur þegar Freysteinn Ingi Guðnason fiskaði vítaspyrnu. Diouck steig á punktinn og skoraði örugglega (88’). Hann skoraði aftur skömmu síðar eftir góða pressu heima- manna og klaufagang í vörn gest- anna (90’). Grindvíkingar tóku á móti ÍR í fyrsta heimaleik Grindvíkinga á Stakkavíkurvelli í Safamýri og komust snemma yfir með skalla- marki Kwame Quee í leiknum (10’). Í uppbótartíma var dæmd víta- spyrna á Grindavík sem ÍR jafnaði úr (90’+2). Svekkjandi 1:1 jafntefli hjá Grindavík sem er í áttunda sæti Keflavík tapaði með einu marki gegn engu fyrir Gróttu á Sel- tjarnarnesi og deila botnsætinu með Leikni, stigalausir eftir tvær umferðir. Keflvíkingar áttu erfitt með að brjóta vörn Gróttu á bak aftur og eftir um hálftíma leik var mark dæmt af Keflavík vegna rangstöðu. Grótta komst yfir skömmu síðar eftir góða stungusendingu inn fyrir vörn Keflavíkur þar sem Tómas Orri Róbertsson var á auðum sjó gegn Ásgeiri Orra Magnússyni, markverði Keflavíkur, sem kom engum vörnum við (38’). Keflavík missti mann af velli í seinni hálfleik og átti sláarskot í lok leiks en vörn Gróttu hélt út og Gróttumenn sluppu með skrekkinn. Lengjudeild kvenna: Grindavík vann fyrsta sigur sinn í Lengjudeild kvenna þegar Grind- víkingar tóku á móti HK á Stakka- víkurvelli í Safamýri. Fyrirliðinn Una Rós Unnarsdóttir skoraði eina mark leiksins (7’). Sigur Grindvíkinga er ábyggilega kærkominn en liðið hefur verið að missa óvenjumarga leikmenn í meiðsli að undanförnu, sem dæmi eru þær Dröfn Einarsdóttir og Ísabel Jasmín Almarsdóttir að glíma við beinbrot, Dröfn er með brotið bringubein og Ísabel Jasmín er ristarbrotin, og verða því báðar frá í einhvern tíma. 2. deild karla: Reynismenn gerðu góða ferð til Dalvíkur um helgina og unnu sigur á Kormáki/Hvöt. Sindri Þór Guðmundsson kom Reyni yfir (20’) en heimamenn jöfnuðu skömmu síðar (29’). Kristófer Páll Viðarsson kom Reynismönnum í forystu á ný með marki í uppbótartíma fyrri hálf- leik (45’+2) og Hubert Rafal Kotus innsiglaði sigurinn með þriðja markinu á 58. mínútu. Þróttur lenti undir snemma í leiknum (8’) þegar Höttur/Huginn mætti í Vogana um síðustu helgi. Mirza Hasecic kom í veg fyrir tap með marki í uppbótartíma (90’+4) og tryggði Þrótti fyrsta stigið í deildinni í ár en tvær umferðir hafa verið leiknar. Reynir er með þrjú stig og Þróttur eitt stig þegar tvær um- ferðir hafa verið leiknar. 3. deild karla: Víðir tapaði fyrir Kára í annarri umferð þriðju deildar með tveimur mörkum gegn engu. Fyrri hálfleikur var markalaus en Víðismenn misstu mann af velli undir lok hans (42’). Þetta nýttu Káramenn vel og skoruðu tvívegis í þeim seinni (77’ og 85’). Víðir er í áttunda sæti með eitt stig. 4. deild: Nýliðar RB töpuðu naumlega fyrir Hamarsmönnum frá Hveragerði í fyrsta leik í fjórðu deild karla. Þetta var fyrsti leikur RB í fjórðu deild eftir að hafa sigrað fimmtu deildina á síðasta ári. Knattspyrnusamantekt Baráttusigur Njarðvíkinga á Dalvík/Reyni var gulltryggður þegar Freysteinn Ingi Guðnason var felldur inni í teig gestanna og víti dæmt. VF/JPK Á meiðslalista. Ísabella Jasmín mætir á leik Grindavíkur og HK en meiðsli seru að setja strik í reikninginn hjá Grindavíkingum. Mynd/Petra Rós Ólafsdóttir víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 15

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.