Mímir - 01.06.1989, Blaðsíða 22
lagamaður mestur. Þorvalds get eg að engu“,
þannig var umsögn Guðrúnar um eiginmenn
sína. En Bolli vill ákveðið svar við því hverjum
manni hún hafi unnað mest. Helst er að skilja
að hann telji að sá maður hafi ekki verið einn af
eiginmönnum hennar. Hún svarar: „Þeim var
eg verst er eg unni mest,“ og Bolli þykist skilja
svar hennar.
Menn hafa skipst í afstöðu sinni til svarsins
eftir því hvort þeir telja Guðrúnu hafa átt við
Bolla eða Kjartan. Bolli var vissulega illa leik-
inn af konu sinni en jafnvíst er að hún hafi enga
grein gert sér fyrir því, hún hafi talið að Bolli
hefði aðeins uppfyllt skyldu sína gagnvart
henni er hann vó Kjartan. En það væri ekki
ólíkt Guðrúnu að hafa alla ævi syrgt Kjartan,
gyllt fyrir sér hugsunina um hjónaband þar sem
vit hennar, vinsældir hans og glæsileiki þeirra
beggja hefðu notið sín til fulls.
Það er eðlilegt og ekkert furðulegt við það að
syrgja það sem hefði svo auðveldlega getað
orðið en varð þó aldrei. Slík hugsun virðist ekki
hafa verið fjarri konu sem ætíð krafðist þess
besta. Hún fékk það sem hún viidi, nema einn
mann, og sá varð henni hugstæðari en aðrir
vegna þess að hún átti hann aldrei.
IEinkareiknincfur Landsbankans
er tékkareikningur með háum
vöxtum sem gefur kost á heimild
til yfirdráttar og láni, auk margvís-
legrar greiðsluþjónustu.
Einkareikningur er
framtíðarreikningur.
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna