Mímir - 01.06.1989, Qupperneq 25

Mímir - 01.06.1989, Qupperneq 25
Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg; en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (J.H. 1913:234). Snorri Hjartarson fæddist á Hvanneyri í Borgarfirði 22. apríl 1906. Hann ætlaði í fyrstu að verða listmálari og fór utan til Kaupmanna- hafnar og Oslóar til náms í málaralist en ljóð- listin átti dýpri rætur í honum, hann hætti fljót- lega að mála og helgaði sig ljóðlistinni. Fyrsta verk hans var skáldsaga á norsku, H0jtflyver ravnen, sem kom út árið 1934. Sagan fjallar um íslenskan málara sem er við nám í Noregi, hún er mjög lýrísk, vel skrifuð og full af myndmáli enda tilheyrir hún hinum nýju straumum módernismans. Þarna kemur fram hið ljóðræna og myndræna sem átti eftir að einkenna kvæði hans. Fyrsta ljóðabók Snorra, Kvœði, kom út árið 1944 en síðan komu út bækurnar Á Gnitaheiði 1952, Lauf og stjörnur 1966 og loks Hauströkkrið yfir mér 1979 en fyrir hana hlaut hann bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs árið 1980. Snorri er myndlistarmaður í skáldskap fram- ar öðrum íslenskum skáldum. Myndirnar í ljóð- um hans eru litríkar og lifandi, mál hans er óvenju hljómmikið og hann er meistari á sviði ljóðrænnar tjáningar. Ljóð hans eiga sér upp- runa í íslenskri náttúru, náttúran er meginuppi- staða flestra kvæða hans. Hann leiðir lesand- ann um óendanlegan margbreytileika landsins og bregður upp andartaks myndum. Hvert ljóð er sem málverk skreytt fögrum litum. Sum skáld yrkja um náttúruna til að lofsyngja hana og finna frið í skauti hennar. Slík kvæði eru til eftir Snorra og þannig má lesa flest kvæða hans, en þó endurspreglar náttúran hug- arástand manna í nánast hverju ljóði og oft notar hann hana til að koma boðskap á fram- færi. Hann er oft að leita skilnings á sjálfum sér og lífinu í náttúrunni. Síendurteknar náttúru- myndir og þrálátar skírskotanir til haustsins birta fráhvarf frá veruleika lífsins, ósætti við mannfélagið og ótta um þjóðina. í fyrstu ljóðabók Snorra, Kvœðum, er nátt- úran rammi utan um bjartar vonir og háleitar hugsjónir vaknandi þjóðar. í annarri bókinni, A Gnitaheiði, er skeleggur baráttutónn fyrir sjálfstæði þjóðarinnar en jafnframt sorg yfir ör- lögum Islands og brugðið er upp myndum af vonbrigðum þjóðarinnar þegar hún sér frelsi sínu kastað fyrir varga. Þjóðin rís fyrir miðju en náttúran er í baksýn og andrúmsloft hennar leikur um hvert kvæði eftir sem áður. í seinni bókunum tveimur verða ljóðin æ innhverfari, ljóðmyndirnar hnitmiðaðri og baráttutónninn er horfinn. I Kvœðum ber mest á myndhverfingum en persónugervingum, einkum náttúrunnar, fjölg- ar með hverri bók og litaorðum fækkar. Mynd- hverfingarnar hans geta verið flóknar en stund- um eru þær auðskildar. I vængjum felldum ég vafinn lá, þær viðjar binda ekki lengur; með nýjum styrk skal ég strengi slá og stirna langnættið eldum unz óskakraftur minn endurrís úr ösku ljóðs míns og hjarta, úr mistri og sorta skín svanaflug og sólin gistir mig aftur. (Snorri Hjartarson 1981:17). Skáldið líkir sjálfu sér við fugl sem liggur fjötraður vegna sára sinna en með nýjum krafti, með Ijóðum sínum, mun það fljúga upp og lýsa upp nóttina, hið andlega myrkur, þar til fullur sigur er unninn. Svanaflugið og sólin eru tákn sigursins. Snorri persónugerir hin ýmsu náttúrufyrir- bæri. Hamarinn brosir, trén lúta höfði, kyrrðin tekur hann við hönd sér og hvíslar að honum, þokan faðmar hann að sér, fræ blómanna stíga fisléttan dans í blænum og skýjahnoðrar elta hver annan um himingeiminn. Viðlíkingar eru sláandi fáar í ljóðum Snorra og það tengir hann við módernismann, en hann er ólíkur módern- 25

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.