Ný menning - 15.01.1946, Blaðsíða 27

Ný menning - 15.01.1946, Blaðsíða 27
NÝ MENNING 27 demum, að fall þess og ósigur hlaut áð hafa á sér blæ hins fátíða og hrikalega, ef ekki tækist að draga athygli kjósendanna frá endemun- um. Þúsundum Reykvíkinga, sem verða að hýrast í köldum hermanna- skálum, gisnum skúrum, óvönduð- um bráðabirgðaskýlum og rökum, daunillum heilsuspillandi kjallara- holum, blöskraði fláttskapur og ó- svífni auðkýfinganna, þegair þeir tóku að hrósa sér af byggingarfram- kvæmdum í þágu alþýðunnar á síð- ustu árum. Og hvar voru þessir víð- áttumiklu og yndislegu leikvellir handa börnunum? Hvar var allt hreinlætið? Var göturykið horfið? Sáust hvergi rottur lengur? Hafði sandbylurinn flutt sig suður á eyði- merkurnar í Afríku? Hafði nýja ráðhúsið orðið uppnumið ásamt byggingunni handa alþýðubóka- safninu og menningarhöllinni handa æskulýðnum? Hafði togara- útgerð bæjarins stigið til himins og íbúðirnar handa hinum húsnæðis- lausu svifið á dularfullan hátt alla leið til Paradísar? Hvernig vék þessu við? Hvernig stóð á því, að íhaldið hafði um áratugi stein- gleymt að gera einhverjar ráðstaf- anir til að tryggja bæjarbúum ætan og óskemmdan mat? Hvað hafði ver- ið gert fyrir allt það fé, sem bæjar- búar greiddu stjórn íhaldsins? Hafði það líka flogið í ofboði til himna- ríkis? Nei, þessum spurningum mátti ekki svara, því að þá myndi allt síga á ógæfuhlið og sökkva að lokum f flyrirlitningu kjósendanna. Nú voru góð ráð dýr, nú dugði ekki að spara púðrið og hvellhetturnar, nú varð að hörfa til nýrra vígstöðva í skyndi, burt frá Reykjavík, burt frá íslandi, hörfa óralangt frá höfuð- staðnum og málefnum íbúanna, hörfa alla leið til Rússlands og gefa Stalín karlinum heldur betur á pansarann. Snúið um háleist Þessar vígstöðvar höfðu reyndar verið prófaðir öðru hverju í röskan aldarfjórðung með skrykkjóttum ár- angri. Morgunblaðið hafði hlotið langa og merkilega æfingu í að lýsa hörmungunum í ríki verkalýðsins, þar sem aðalborið fólk missti ekki aðeins allar eigur sínar, heldur koll- inn í ofanálag, prestar voru drepnir unnvörpum, sömuleiðis útgerðar- menn og kaupmenn, tugmilljónir dóu árlega úr hungri, fólkið eigraði um strætin kviknakið og soltið, allt var ofurselt dauða og lömun, svo að enginn hafði rænu á að snúa hressilega upp á skegg sitt, nema ef til vill einræðisherrann Stalín. En þessar hroðalegu sögur voru ekki lengur nothæfar í áróðursskyni. Þær voru orðnar svo slitnar, en auk þess vissi fólk miklu meira um Rússland núna heldur en fyrir nokkrum árum. Rússland var nú því miður orðið að öflugu stórveldi, þrátt fyrir allan hungurdauðann í Morgunblaðinu. Það hafði sigrað her þýzku nazistanna í blóðugustú styrjöld, sem dunið hefur yfir mann- kynið. Og nú, þegar styrjöldinni var lokið, virtist það stæltara en nokkru sinni áður. Þess vegna varð sovjet- níðið að vera með nýju sniði, — að öðrum kosti hefði það ekki vakið neina eftirtekt eða getað sveipað fortíð íslenzka íhaldsins í reyk og brælu. Ogviti menn! Morgunblaðið snýr um háleist og varpar fram al- veg spánýjum og furðulegum níð- Morgunblaðið og Göring mæla einum munni Kvöldið 27. febr. 1933 kom upp eldur f ríkisþinghúsinu í Berlfn. Sannazt hefur ómótmælanlega, meðal annars í réttarhöldunum í Núrnberg, að nazistar kveiktu í húsinu að undirlagi Görings til þess að geta kennt kommúnistum um og gert það að tilefni allsherjarof- sókna. Tveim dögum síðar, 1. marz 1933, flytur Morgunblaðið þessa fréttafyrirsögn: „Kommúnistar í Þýzkalandi efna til borg- arastyrjaldar. — Þeir kveikja í ríkisþing- höllinni í Berlín, og urðu á henni miklar skemmdir. Einn af brennuvörgunum næst" Allir, sem vita vildu, vissu, að nazistar kveiktu sjálfir í þinghús- inu. Samt tekur Morgunblaðið undir lygi Görings um, að kommún- istar hafi framið glæpinn. Nú situr Göring, samherji Morgunblaðsins í lyginni, ákærður fyrir rétti handamanna í Núrnberg og bfður dóms, meðal annars fyrir ríkisþinghússbrennuna.

x

Ný menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný menning
https://timarit.is/publication/1953

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.