Ný menning - 15.01.1946, Blaðsíða 40

Ný menning - 15.01.1946, Blaðsíða 40
40 NÝ MENNI.N.G hitt. Við sjálfar kosningarnar þarf hann ekki heldur að greiða atkvæði þeim manni eða konu, sem samþykkt hefur verið sem þihgrnannsefni. I qðru lagi voiu þessar útnefningar ekki bundnar við menn úr kommúnista- flokknum. Jafnt utanflokksmenn, voru tilnefndir og fjpldi utanflokksmanna var ko«nn. í , þriðja lagi voru þingmannaefnin, sem kosin voru, fulltrúar fólksins í víð- tækustu merkingu: fjármenn og mjalta- konur, verkfræðingar og rennismiðir, rjthofuniíar og kennarar,, listamenn og vísindamenn, hermenn, sjómenn og flug- nienn, ungir menntamenn og gamlir bolsjevíkar. Eða enn, eitt: að andstöðuflokkur •— hið alknnna fyrirbæri í þingræðisfyrir- koiriulagi okkar —r er enginn, er fyrst og frernst að rekja til þeirrar staðreynd- ar, að grundvöflur slíkrar flokksand- stöðu er ekki lengur til í Ráðstjórnar- ríkjunum. Andstaða verkalýðsstéttarinn- ar gegn yfirráðastétt, eða ejgnastéttar gegn öreigastétt, sem myndar á einn eða annan hátt grundvöll að öllum þing- flokkum hjá okkur, er horfin í Ráð- stjóiBarríkjunum og að því er við skul- uni vona fyrir fullt og allt. ,það er.enn staður —- og mun eflaust alltaf verða innan sósíalísks þjóðfélags — fyrir ágreining í pólitík, atvinnumál- úm og félagsmálum, jafnvel eftir að á- kveðið er það grundvallaratriði, hvort þjóðfélagið eigi að vera sósíalískt eða ekki, og vonandi verður það svo, að með vaxandi öryggi komi aukið frelsi til .þess að 1/úa í ljós og rökræða slíkan skoðanamun, og leita frjálsrar og full- gildrar tjáningar almenningsálits á því, hvaða pólitískri stefnu skuli fylgt. En andstöðu af þessu tagi er ekki unnt að skapa af sjálfu sér í þeim tilgangi að halda í fornar þingskaparvenjur: hún verður annað hvojt að vera cðlileg eða. hún getur ckki átt scr ntað. Hið sanna undrunarefni viðvikjandi hinni nýju lýðræðisstjórriarskrá Ráð- stjórnarrikjanna er ef til vill staðurinn, þar sem hún hefur orðið til. Hið gamla rússneska keisaradæmi vissi ekkert af pólitísku lýðræði né pólitísku frelsi. A sama hátt og rétt er að meta framfarir ráðstjórnariðnaðarins, ekki með því að bera hann saman við iðnað Stóra-Bret- lands eða Bandaríkjanna, heldur iðnað keisaratímanna, ættu menn líka að dæma um nýju stjórnarskrána með liliðsjðn af þeirri afneitun lýðræðisins, sem ein- kenndi keisarastjórnina. Hvorki á einni nóttu né með einum pennadrætti verða til þau form eða sá andi lýðræðisins, sem eru í löndum okkar árangur af til- raunum og baráttu margra aldi og eru enpþá alls ekki fullkomin. 0<ý þyki formi lýðræðisins í Rúðstj úrnarríkj un- una að ýmsu leyti ábétavant, ætti það ekki að vera undrunr.reíni, heldur hitt, að lýðræði skuli yíirjeitt vera komið þar á: mesta furðan felst í þeirri stað- reynd, að þar skuli komið lýðræði í svo víðtækri og göfugri mynd. Og sé þar, eins og staðreyndirnar virðast sanna, lýðræðið komið á hærra stig en hjá okkur sjálfum, verður siíkt skiljanlegra, þegar rifjað er upp, að í þjóðfélagi okkar fara ennþá hin póli- tísku völd eftir auði einstáklinga. Þó að Beaverbrook lávarður og John Smith hafi t. d. jafnan rétt til að greiða at- kvæði hvaða stjórnmálastefnu sem er við almennar kosningar, og menn geti haldið, aó í því felist hið eina sanna lýðræði, er slíkt lýðræði í raun og veru blekking. Beaverbrook lávarður getur með auðæfum sínum og dagblöðum mótað skoðanir milljóna manna, mynd- að og fellt ríkisstjórnir. Vald John Smiths að merkja kross á kjörseðil við leypilega atkvæðagreiðslu einu sinni á fimmárum er lítilsvirði til samanburðar, sérstsklega er John Smith les daglega blöð Beaverbrooks. lávarðar eða önnur svipuð auðjötna dagblöð. Pólitískt jafnrétti grundvallast á fjár- hagslcgu jafnrclli. I‘að jafnrétti ciga Ráðstjórnarríkin, en okkur vantar það. Lýðræði okkar, jafn dýrmætt sem það er og mikils virði, að barizt sé fyrir því — hefur sú barátta ekki hjálpað okkur til að skilja og meta fjölda andlegra verðmæta, svo sem heiður, sannleika og miskunnsemi, sem eru okkur vissulega eins kær og lífið sjálft? — mun aldrei geta notið sín til fulls, fyrr en við fylgj- um dæmi Ráðstjórnarríkjanna og tryggjum öllum fjárhagslegt frelsi og jafnrétii. Það takmarkast, en þróast ekki, eítir því sem fjárhagslegt ójafnrétti cyk.t. Hin óhemju auðæfi, sem gera voldugum einstaklingum fært að drottna í jafnríkum mæli yfir dagblöðunum, grafa þegar slóttuglega undan miklu af því lýðræðislega frelsi, sem við ímynd- um okkur, að við eigum, og gortum svo af. — Ráðstjórnirnar hafa lagt trausta und- irstöðu. Nýr andi lifir í brjósti milljóna manr.a, sem áður voru kúgaðir og troðnir í svaðið, og hann birtist í hinu nýja stjórnarfyrirkomulagi. Við skiljum fyrst mikilvægi þessa í allri sinni dýpt, þegar haft er í huga, að hið nýja lýð- ræðisskipulag tekur yfir sjötta hluta jarðar. Sannir Jýðræðissinnar hljóta að fagna því, að svo voldugur sigur hef- ur unnizt hinum framsækna anda mann- kynsins. Margar hindranir valda því, að bregð- ast skyldi í lýðræðislöndunum að taka með almennari fögnuði hinni nýju stjórnarskrá og öllu því, sem hún boðar. Höfuðástæðan er fáfræði, og það hefur með vilja verið alið á þeirri fáfræði á mörgum stöðurn. Ef útbreidd væri sönn þekking á þyí, sem gerzt hefur og er að gerast x Ráðstjórnaríkjunum, mundi lít- ið verða eftir af þcirri skoðun á Stalín, að hann sé austurlenzkur harðstjóri. Sú skoðun hefur verið gróðursett og rækt- uð í þessu landi af ástæðum, sem er auðvelt að skilja. Stalín er enginn austurlenzkur harð- stjóri. Nýja stjórnarskráin hans sýnir það. Vilji hans að gefa eflir völd sýnir það. Neitun Jians að auka það vohl, sem lxann þegar I.xfur fengið, er vitni þess. Löngun hans að leiða þjóð sína inn á nýjar og ókunnar brautir lýðræð- i

x

Ný menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný menning
https://timarit.is/publication/1953

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.