Goðasteinn - 01.09.2016, Blaðsíða 176
174
Goðasteinn 2016
foreldrahúsum, þar sem hún naut umhyggjusemi foreldra sinna fram á síð-
asta dag. Í miðið er Særún, skrifstofufulltrúi hjá Umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar, gift Kjartani Sigurðssyni, verkefnastjóra hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins. Þau eiga heima í Garðabæ. Dætur þeirra eru Guðrún,
sonur hennar er Kjartan Hjaltalín Pálsson, og Sigurrós Oddný, - unnusti hennar
er Sascha Þór Ásgeir Medina. Sonur þeirra er Viktor Freyr. Yngstur barna Jón-
asar og Guðrúnar er Helgi, verkstjóri hjá Permagreen og ferðaþjónustubóndi í
Narsaq á Grænlandi. Sambýliskona hans er Bodil Mogensen, húsmóðir. Syn-
ir þeirra eru Jónas, unnusta hans er Dorothe Maria Bisse Groth, og Michael
Toby.
Jónas og Guðrún stofnuðu heimili sitt á Hvolsvelli og reistu sér hús að
Hvolsvegi 15. Hjónaband þeirra var farsælt og traust, og þau voru samhent um
allt er máli skipti, enda ekki laust við að með þeim væri talsverður hjónasvipur.
Þau voru höfðingjar heim að sækja, gestrisin mjög og hressileg í viðmóti og
viðkynningu. Oft var gripið í spil á heimilinu þegar gesti bar að garði, og þar
svignuðu veisluborðin oftar en ekki undan dýrum krásum. Guðrún var hög í
höndum og saumaði mikið og prjónaði fyrr á árum, og löngum hafði hún bók
tiltæka og las alla tíð talsvert sér til fróðleiks og afþreyingar. Fjölskyldan stóð
Guðrúnu næst hjarta alla tíð. Hún var börnum sínum betri en enginn þegar þau
flugu úr hreiðrinu og stofnuðu eigið heimili, og hag barna sinna og barnabarna
bar hún mjög fyrir brjósti. Á ævikvöldinu glöddu langömmudrengirnir hana
ósegjanlega, og brá ævinlega birtu yfir andlit hennar í návist þeirra. Fjölskyldu
sinni reyndist Guðrún afar hjálpleg, örlát, sinnug og umhyggjusöm eiginkona,
móðir og amma, og natni hennar, og þeirra hjóna beggja, við Oddnýju dóttur
sína, var við brugðið og aðdáunarverð.
Fyrstu hjúskaparár þeirra Jónasar helgaði Guðrún sig heimilisstörfunum og
umönnun Oddnýjar, en réðst til starfa á símstöðinni á Hvolsvelli um 1960 þar
sem hún vann um árabil, uns hún varð stöðvarstjóri Pósts og síma á Hellu, og
þangað fluttust þau hjónin 1975. Því starfi gegndi hún óslitið í 22 ár, til 1997,
er hún lauk starfsævi sinni, um leið og Jónas bóndi hennar. Það sama ár flutt-
ust þau til Reykjavíkur, og settust að í Álfheimum 70 en voru frá 2004 búsett í
Núpalind 4 í Kópavogi. Seinni árin ferðuðust Guðrún og Jónas mikið, og nutu
þess ríkulega. Fóru þau einkum suður um Evrópu og til Austur-Evrópu áður en
alfaraleið Vesturlandabúa opnaðist þangað.
Guðrún sat ekki auðum höndum eftir að þau Jónas fluttust að austan, þótt
hún væri sest í helgan stein, sem kallað er, og aldurinn tæki smám saman
að færast yfir hana. Starfaði hún nokkur sumur hjá Hólmfríði, uppeldissystur
sinni, við skógrækt suður í Hafnarfirði, sem Hólmfríður hafði umsjón með.