Hrafnista - 01.12.1948, Page 21

Hrafnista - 01.12.1948, Page 21
HRAFNISTA 3 Fyrsta sjóferðin mín Grímur Þorkelsson, Sigurjón Á. Ólafsson, Jón Axel Pétursson, Júlíus Olafsson Grímur Þorkelsson: Þegar saga þessi gerðist, var ég á níunda ári og átti heima á Eyrarbakka. Ég var að leika mér í flæðarmálinu fyrir neðan Mundakot með tveim- ur jafnöldrum mínum. Þetta var á vorvertíð. Jón Einarsson hreppstjóri í Mundakoti var for- maður fyrir áraskipi og reri úr Mundakotslend- ingu. Hann var á sjó en hafði skilið eftir tveggja manna far neðarlega í fjöruborðinu. Var farkost- um þessi, þar sem hann lá á hliðinni í fjöruborð- inu, bundinn á kollubandinn við einhvern þungan hlut eða stjóra. Þannig hagar til þarna, að fjöru- borðið er langur aflíðandi halli og fellur sjórinn út af stóru svæði. Talsverð vegalengd er því um fjöru frá efsta flóðfari og niður að sjónum. Um flóðið er því allmikið dýpi bar sem ganga má þurrum fót- um um fjöruna. Við vorum að leika okkur að því að „flytja kerlingar“. Sá leikur er í því fólginn að velja smáa flata steina og kasta þeim eftir yfir- borði sjávarins, þannig að þeir skoppi á sjónum en snerti yfirborðið aðeins við oig við þar til þeir að síðustu sökkva. Listin í þessum leik er í því kunningja mína, Kristján Bjarnason og Jafet Ól- afsson, sem síðar fórst með skipi sínu. Við keypt- um sinn hvor skipið. Skip mitt hét þá „Clulow“ og var spítalaskip, síðar skýrði ég það upp. Krist- ján lagði fyrstur af stað heimleiðis með sitt skip, en við Jafet fórum samdægurs. Við fengum versta veður, mjög vondan útsynning, vorum til dæmis í 5 sólarhringa á leiðinni frá Portlandi til Reykja- víkur. Þá var hvergi viti eða nein önnur slík leið- armerki. í 6 ár sigldi ég svo á nafna mínum — og gekk vel. Það var afbragðs skip. Þegar ég yfirgaf hann, hætti é.g um leið á þilskipum. Ég tók við togaran- um Snorra Sturlusyni, síðar var ég með Snorra goða, Eggert Ólafsson, Maí eldri og Maí yngri í mörg ár. Þess utan var ég og með Rán og enskan togara um skeið. Ég var og jafnframt útgerðarmað- ur, átti í báðum Maí-togurunum. Ég hætti sjó- mennsku 1928, en síðan hef ég verið í ýmsum sjávarútvegsfyrirtækjum, var um skeið forstjóri Dráttarbrautar Keflavíkur, en nú er ég forstöðu- maður h. f. Kirkjusands“. — Og nú er kyrrlátara að Mýrarhúsum en áður var. „Minnstu ekki á það, allur atvinnurekstur hætt- ur, allt fólk farið, næstum allir krakkarnir flognir burt. En samur er sjávarniðurinn — og sami ilm- urinn þegar maður kemur út á kvöldin svona til að gá til veðurs og kynna sér skýjafarið og á morgnana, þegar maður rís úr rekkju um átta leytið. Svo setur maður á sig flibba, sezt upp í bifreið — og ekur til bæjarins í stað þess að sæta lagi um flóð til þess að komast yfir Grandann“. V. S. V.

x

Hrafnista

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hrafnista
https://timarit.is/publication/1980

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.