Hrafnista - 01.12.1948, Blaðsíða 41

Hrafnista - 01.12.1948, Blaðsíða 41
HRAFNISTA 23 „Jú, svo sannarleiga, kunningi, það geturðu bölv- að þér upp á“, svaraði ég öskureið og lamdi hnef- anum í borðið svo að það drundi í því og ég hróp- aði þetta svo hátt að það glumdi í öllu, en prófes- sornum kom þetta svo á óvart að hann fálmaði eft- ir vangaskegginu og faldi hendurnar í því. „Uss, Jóhanna, hvað er þetta, bam?“ sagði mamma fyrir öðrum enda borðsins. Hún varð víst hrædd um að ég myndi móðga gestinn svo að hann ryki burtu úr fæðinu. „Ég vil ekki heyra þetta uss í þér“, öskraði ég enn reiðari. „Hann situr þarna O'g gefur í skyn að ég sé að fara með lýgi. Spyrjið þið bara pabba, hann getur þá sagt ykkur hvort ég segi ekki satt“. „Jú, þrælaverzlun á sér sannarlega stað enn og lifir í fullum blóma“, sagði pabbi. ,,Á Suðurhafs- ejunum kalla menn það bara „fuglaverzlun“. Það eru til skipstjórar, sem taka heila skipsfarma af innfæddum í lestina fyrir eitt sterlingspund á nef og fara með þá til plantekrueigendanna í Norður- Ástralíu. Þegar þeir hafa svo þrælað hjá þeim þangað til þeir eru ekki orðnir annað en skinin beinin og geta varla staðið uppréttir, taka skip- stjórarnir að sér að flytja þá aftur til heimkynna sinna, en oftast eru þeir þó reknir í land á fyrstu eyjunni sem skipið kemur að. Og þarna er skýr- ingin á því að maður hittir sjaldan fyrir hreina kynflokka, þrælasalarnir eru sífelt að blanda þá“. „Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt“, sagði próf- essorinn lágróma, en ég varð líka hissa á því áð mamma skyldi ekki kalla „uss“ til pabba, því ekki hafði hann lægra en ég, rödd hans var að minnsta kosti helming'i ste»"kari en mín. Þar sem þessir lærðu menn gátu ekki mótmælt því, sem pabbi sagði, sneru þeir sér aftur til mín. Ég sagði þeim frá óveðrum, fárviðrum, logni, há- iiarlaveiðum og mörgu öðru, og þeir trúðu ekki einasta orði af því sem ég þuldi í þá. Hann þarna, prófessorinn 1 landkrabbahagfræði, var langverst- ur. „Þú ert sannarlega ákaflega athyglisvert rann- sóknarefni telpa mín“, sagði hann um leið og hann stóð upp frá borðum. Hann horfði á mig og mér fannst eins og ég væri maðkur undir stækkunar- gleri. Nei, það var sannarlega ekki létt verk að pæla kortið til lands. Þessa nótt svaf ég í fyrsta sinni á ævinni 1 rúmi og það var hræðilegt. Lökin voru svo þykk og heit og undirsængin svo mjúk, að það var ómögulegt að sofna. En samt sem áður var það allra verst hve húsið var kyrrt, það vaggaði ekki minnstu vit- und. Ég varð næstum því sjóveik af þessari kyrrð og ró. Ég heyrði ekkert fótatak uppi yfir mér á þilfarinu og dýrin mín fékk ég ekki að hafa hjá mér. Þeim hafði verið komið fyrir niðri í lestinni, sem hinir kölluðu kjallarann. Þannig lá ég alla nóttina glaðvakandi, ég velti mér á allar hliðar og bað til guðs að húsið ruggaði svolítið, þó ekki væri nema bara obbolítið. Ég vissi að þá myndi ég sofna. Um leið og sólin kom upp spratt ég fram úr rúm- inu og eftir að hafa farið í tuskurnar mínar í einu vetfangi hljóp óg út á stigaganginn og öskraði eins hátt og ég framast gat: „Upp með ykkur alla saman! Allir upp á þilfar! Klukkan er komin!“ Pabbi svipti upp herbergishurðinni og greip í mig. „Haltu þér saman, Jóhanna“, sagði hann níst- ingskalt. „Það eru allir sofandi“. Ég skyldi ekki neitt í neinu. Samkvæmt skráð- um lögum um borð áttu allir að slæpast á lappir og fá árdegisverð. Mér varð líka að vilja mínum að þessu sinni, því að mér hafði tekizt að vekja alla í húsinu og mamma varð að fara fram úr ag búa til matinn svo fljótt sem hún gat. Ég var ban- hungruð og 1 sama mund og mamma kallaði okkur að borðinu, hentist ég í sæti mitt, krafsaði til mín helvíta mikið af hrærðum eggjum og hrúgu af tvíbökum og byrjaði að hesthúsa það. „Hvað er þetta, Jóhanna. Þú verður að fara eftir borðsiðunum, barn“, sagði mamma gremjulega oig tók aftur frá mér mest allt af því sem ég hafði klófest. „Ég varð fyrst að stallinum“, mótmælti ég kröft- uglega, „og sá sem fyrstur er, hefur rétt til að taka á sinn disk á undan öllum öðrum. Kunnið þið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hrafnista

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hrafnista
https://timarit.is/publication/1980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.