Víkurfréttir - 02.10.2024, Qupperneq 4
Húsnæðismál FS óviðunandi
og geta ekki verið svona áfram
Kristján ásmundsson,
skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðurnesja
gámar og sumarbústaður eru notaðir sem skólastofur við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
n Geymslum breytt í kennslustofur og sumarhús notað sem skólastofa
n Fjölbrautaskóla Suðurnesja naumt skammtað og fær lægstu framlög á nemanda
„Svona getur þetta ekki haldið áfram. Það er vonlaust,“ segir Kristján ásmundsson, skólameistari Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja, í viðtali við Víkurfréttir. Skólameistari FS mætti með ákall og hvatningu til bæði
þingmanna og sveitarstjórnarmanna um húsnæðismál skólans á aðalfund Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum, sem haldinn var í Fjölbrautaskóla Suðurnesja um síðustu helgi. Síðast voru byggðar kennslu-
stofur við skólann þegar íbúafjöldi á Suðurnesjum var helmingi minni en hann er í dag.
Á fundinum fór Kristján yfir bygg-
ingarsögu skólans en síðustu ár
hefur vantað upp á að bygginga-
magn hafi fylgt fjölgun nemenda.
Síðasta bygging sem reis var að-
staða fyrir nemendur en kennslu-
stofur vantar orðið tilfinnanlega og
nú er svo komið að kennsla fer m.a.
orðið fram í gámum og sumarhúsi
á lóð skólans.
Þú nefndir á fundinum miklar
áskoranir í húsnæðismálum Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja?
„Já, það er rétt. Það er tími til
kominn og það er bráðnauðsyn-
legt að ráðist verði í úrbætur á hús-
næði skólans. Íbúafjöldi á svæðinu
hefur nær tvöfaldast frá því að
álma 3, sem er síðasta viðbygging
við skólann, var tekin í notkun.
Við höfum verið að taka við tveim
brautum frá Keili, þannig að það
þýðir að við erum að verða eini
framhaldskólinn hér á svæðinu.
Það er alveg öllum ljóst að það er
brýnt að við verðum að fá aukið
húsnæði. Við erum farin að byggja
okkar eigið húsnæði með því að
nýta sumarhúsið sem við byggjum
til kennslu og raða gámum hérna
fyrir framan til að geta mætt þeim
nemendafjölda sem sækir um hjá
okkur.“
Þú vilt meina að staðan sé óvið-
unandi eins og hún er í dag?
„Hún er það, algjörlega. Hug-
myndirnar frá ráðuneytinu eru
sem betur fer góðar. Það á að bæta
úr aðstöðu verknáms. En við erum
búin að vekja máls á því lengi að
það þarf samhliða að bæta úr
brýnni þörf fyrir aukið rými fyrir
almenna kennslu.“
Allt stopp í ráðuneytinu
Í máli skólameistara kom fram að
lítli hreyfing er á málum skólans í
stjórnkerfinu.
„Það virðist vera að þetta sé
stopp inni í fjármála- og efnahags-
ráðuneyti og það séu fjórir skólar
sem séu undir í þessum fyrsta fasa
og það verði allt leyst í einu. Við
getum ekki beðið svo lengi. Þetta
er búið að vera í vinnslu frá því í
maí að þessu virtist vera skilað inn
til ráðuneytisins og þegar maður er
að spyrja, þá er þetta allt í athugun,
komið vel á veg, en ekkert gerist,
því miður.“
Skólameistari hefur ítrekað
bent á að Fjölbrautaskóla Suður-
nesja sé naumt skammtað og fái
skólinn lægst fjárframlög á hvern
nemanda. En hafa skólayfirvöld í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja fengið
skýringar á því hvers vegna svo er?
„Það er eitthvað sem við höfum
aldrei fengið almennilega skýringu
Nýtt Skreytum hús
litakort er komið í
verslanir Slippfélagsins.
SLIPPFÉLAGIÐ
Hafnargötu 54
Reykjanesbæ
S: 421 2720
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
Nýtt litakort
á. Og þegar þeir voru orðnir dálítið
pirraðir og þreyttir á þessu nöldri í
okkur, þá var svarið að við kynnum
ekki að reikna. Hluti af því er að
við búum við frekar lítið húsnæði
og það þýðir að framlag okkar
per húsnæðislið er lægra en ann-
arra. Að mínu mati getur það ekki
skýrt allan þennan mun. Það þarf
hjá öllum, ekki bara okkur, að fá
aukið fé inn ef við eigum að geta
menntað verk- og starfsnámsnema
almennilega.“
breyta geymslum í kennslustofur
Þú nefndir í þínu erindi marg-
konar áskoranir skólans. Til
að mynda eru um fimm pró-
sent nemenda af erlendu bergi
brotnir.
„Já og þeim hefur farið fjölgandi
undanfarið. Við viljum þegar við
erum að taka við slíkum nem-
endum þjónusta þá vel. Við erum
með hundrað nemendur sem eru
að taka sérstaka íslenskuáfanga
sem eru fyrir erlenda nemendur.
Við settum upp sérstaka braut til
að geta tekið við þeim. Ef við eigum
að gera þetta vel, erum við ekki
að hrúga þeim öllum eða 25-30 í
hvern hóp. Við verðum að hafa í
huga að að þessir nemendur eru
ekki allir mælandi á enska tungu.
Það er arabíska, spænska og hvað-
eina, úrdí og bara nefndu það. Við
getum þess vegna ekki verið með
nema svona tíu til tólf í hópi ef
við eigum að sinna þeim almenni-
lega. Það viljum við reyna að gera.
Þess vegna þurfum við fleiri stofur,
litlar stofur. Það höfum við verið að
gera með því að breyta geymslum í
kennslustofur.“
Þetta á líka við starfsbrautirnar?
„Þar höfum við verið með áttatíu
nemendur. Þar erum við sömu-
leiðis að búa dálítið þröngt. Við
vildum svo sannarlega geta búið
betur að þeim. Þetta eru þeir nem-
endur sem munu alltaf þurfa okkar
aðstoð og við viljum hjálpa þeim
til að ná þroska og efla fyrir von-
andi sjálfstæða búsetu og þátttöku
á almennum vinnumarkaði. Það er
markmiðið á starfsbrautinni.“
Sumarhús notað sem kennslustofa
Þannig að það er brýn þörf strax
á að leysa húsnæðismál skólans?
„Já, við sjáum það ef við horfum
upp á G-álmuna sem við köllum
í gríni gámana tvo sem eru nýttir
allan daginn eins og sumarhúsið
sem einnig er nýtt allan daginn
undir kennslu. Það leit lengi vel út
í vor að við yrðum að bæta þriðja
gámnum við. Það sem setur okkur
í þessa erfiðu stöðu er að það hafa
verið mygluvandræði hjá grunn-
skólunum á svæðinu, þannig að allt
leiguhúsnæði hér í nágrenninu er
upptekið fyrir grunnskólana, eðli-
lega. Við vorum í vor að spyrjast
fyrir og reyna að athuga hvort ein-
hverstaðar væri laust húsnæði en
það var ekki. Þess vegna enduðum
við á því að taka sumarhúsið okkar
og breyta því í kennslustofu. Það er
því hagkvæmt ef skólarnir fara bara
í að byggja sínar eigin stofur. Grín-
laust þá vonum við að til þess komi
ekki og þess vegna erum við með
þetta ákall og hvatningu til bæði
þingmanna og sveitarstjórnar-
manna að svona getur þetta ekki
haldið áfram. Það er vonlaust,“
sagði Kristján Ásmundsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, í samtali við Víkurfréttir.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
4 // VÍKurFrÉttir á SuðurNeSJuM