Skákritið - 01.07.1950, Qupperneq 19
Af innlendum veffvangi
}
Austurbœr—Vesturbœr.
Að tilhlutan Taflfélags Reykja-
víkur fór fram skákkeppni milli
Austur- og Vesturbæjar 22. júní s.l.
að Þórskaffi. Úrslit urðu þau, að
Vesturbæingar fóru með sigur af
hólmi, hlutu 414 vinning gegn 3%.
Úrslit á einstökum borðum:
Vesturbær:
1. borð: Baldur Móller y2
2. — Sturla Pétursson l/2
3. — Hafsteinn Gíslason y2
4. — Björn Jóhannesson 1
5. — Hjalti Elíasson 0
6. —• Þórður Þórðarson 1
7. -— Margeir Sigurjónsson 1
8. — Anton Sigurðsson 0
Aðalfundur Taflfélags Reykja-
vikur.
Aðalfundur Taflfélags Reykja-
víkur var haldinn sunnudaginn 4.
júní síðastliðinn að Þórsgötu 1. For-
maður var endurkjörinn Guðm. S.
Guðmundsson, en meðstjórnendur;
Þórir Olafsson gjaldkeri, Sveinn
Kristinsson áhaldavörður, Jón Ein-
arsson ritari og Arinbjörn Guð-
mundsson skákritari. A fundinum
voru rædd ýmis félagsmál auk
venjulegra aðalfundarstarfa. Voru
fundarmenn yfirleitt ánægðir með
félagsstarfið á liðnu starfsári og
væntu þess, að haldið yrði áfram á
sömu braut.
S tokkseyrarför.
Sunnudaginn 11. júní fór 12
fflanna flokkur úr Taflfélagi
Reykjavíkur til Stokkseyrar í boði
taflfélagsins þar til að heyja kapp-
tefli við Stokkseyringa.
SKÁKRITIÐ
Austurbær:
Guðjón M. Sigurðsson y2
Steingrímur Guðmundsson l/2
Friðrik Ólafsson l/2
Sveinn Kristinsson 0
Þórir Ólafsson 1
Haukur Sveinsson 0
Magnús Vilhjálmsson 0
Jón Pálsson 1
Er komið var til Stokkseyrar, var
ferðalöngunum boðið í miðdegis-
kaffi að Hótel Stokkseyri. Að því
loknu hófst keppnin. Teflt var á 9
borðum og urðu úrslit þau, að Reyk-
víkingar fóru með sigur af hólmi,
hlutu 8y2 vinning gegn y2.
Að keppninni lokinni snæddu
menn kvöldverð. Síðan var efnt til
hraðskákmóts, sem var lokið um
miðnætti. Að því búnu þökkuðu
Reykvíkingar Stokkseyringum ágæt-
ar móttökur og héldu síðan heim-
leiðis.
Ilraðskákmút.
I júní síðastliðnum gekkst Tafl-
félag Reykjavíkur fyrir hraðskák-
móti að Þórskaffi. Þátttakendur
voru 36 og var þeim skipt í 4 riðla.
Tefldu síðan 11 til úrslita. Efstur
varð Lárus Johnsen með 9 vinninga,
2. Friðrik Ólafsson Sl/, 3. Guðjón
M. Sigurðsson 8, 4. Sveinn Krist-
insson 6, 5. Magnús G. Jónsson öy2.
15