Golf á Íslandi - 01.07.1990, Side 7

Golf á Íslandi - 01.07.1990, Side 7
„HÖFUM STAÐIÐ I MIKLUM FRAMKVÆMDUM“ — segir Björgúlfur Lúðvíksson framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur. „Fyrsti golfvöllur Golfklúbbs Reykjavíkur var í Laugardalnum austan við Laugardalshöllina er Golfklúbburinn var stofnaður 1934. Fljótlega fluttist völlur klúbbsins í Öskjuhlíð sem í raun var rangnefni því margir vildu nefna staðinn Leynimýri. Völlur- inn var þó kallaður Öskjuhlíð- arvöllur“, segir hinn ötuli framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur, Björgúlfur Lúð- víksson. Björgúlfur segir að ástæða þess að golfvöllurinn hafi upp úr 1960 verið fluttur í Grafarholtið hafi verið sú að taka þurfti land- ið í Öskjuhlíðinni undir bygg- ingarframkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar. „Þetta var á sínum tíma hið versta mál. Erlendis er það keppikefli borgaryfirvalda að hafa góðan golfvöll í borgar- landinu og eru yfirvöld yfirleitt stolt af slíkum vellií1 „Okkur endist ekki aldur tii að tína allt grjótið“ Árið 1960 fluttist starfsemi Golfklúbbs Reykjavíkur upp i Grafarholt og völlurinn auðvitað líka. Björgúlfur hefur orðið: „Þegar ákveðið var að flytja golfvöllinn upp i Grafarholt leist mönnum ekki á blikuna og reyndar fannst mörgum þetta hið furðulegasta mál. Þannig hagar til í Grafarholti að landslag er mjög gott fyrir golfvöll en árið 1960 var ekkert tún á svæðinu. Hafist var því handa við að ryðja vallarsvæðið og jarðvegi ekið á staðinn og brátt fór að sjást í græna fleti á svæðinu. En mikið grjót er í Grafarholti og frá 1960 hefur staðið yfir stöðug grjót- tínsla og mun standa áfram. Endist hvorki mér né öðrum kylfingum vart aldur til að sjá endinn á því verki.“ Nú er verið að snyrta og snurfusa eftir stórverkefni Það hafa staðið yfir miklar framkvæmdir í Grafarholti síðustu árin og völlurinn og umhverfi hans tekur stöðugum breytingum. Um framkvæmd- irnar segir Björgúlfur: „Það er alltaf verið að breyta og bæta og markmiðið er alltaf það sama: að gera völlinn betri og glæsi- legri. Við höfum staðið í miklum framkvæmdur undanfarið. Við byggðum nýja vélageymslu og kerrugeymslu svo eitthvað sé nefnt. Þá höfum við ráðist í mjög mikil vélakaup sem á eftir að koma sér vel í framtiðinni. Með betri vélakosti erum við betur í stakk búnir til að sinna vellinum. En við erum sem sagt að snyrta völlinn sem stendur og snurfusa eftir þessar stóru fram- kvæmdir. Við reynum að gera okkar besta og okkur er með- vitað að eftir því sem völlurinn verður betri eigum við meiri möguleika á að fá hingað al- þjóðleg golfmótí* „Við erum tregir í að eyða miklu fé í Korpúlfsstaða- völlinn“ Nú hefur Golfklúbubur Reykjavíkur einnig verið með starfsemi að Korpúlfsstöðum og hefur aðsókn að vellinum þar verið gífurlega mikil og völlurinn oft þéttsetinn áhugasömum kylfingum. Hvað með framtíð Korpúlfsstaðavallarins á tímum mikillar þenslu í byggingarfram- kvæmdum á vegum Reykja- víkurborgar? „Það er rétt að völlurinn að Korpúlfsstöðum hefur verið gífurlega vel sóttur og hvergi nærri náð að svara eftirspurn. í þau 7-8 ár sem við höfum verið með golfvöll þarna hefur völlur- inn stöðugt verið að batna og við höfum reynt eftir megni að hafa völlinn í góðu ásigkomulagi. Okkur hefur hins vegar verið tjáð að Korpúlfsstaðalandið verði í framtíðinni tekið undir byggingar og byggðin í Grafar- vogi er þegar farin að teygja anga sína langleiðina að vellinum. Sannleikurinn er sá að við í Golfklúbbi Reykjavíkur erum mjög tregir að eyða mjög miklu fé í völlinn. Ástæðan er einfald- lega sú að okkur finnst ekki taka því ef engin verður þar aðstaðan eftir nokkur ár.“ Eðlilegt og æskilegt að hafa völl að Korpúlfsstöðum. Áfram heldur framkvæmda- stjórinn: „Okkur finnst hins vegar mjög eðlilegt og æskilegt að Korpúlfsstaðavöllurinn fái að halda sér. í mikilli nálægð við völlinn rennur góð laxveiðiá og ég tel að fátt verndi hana betur en sé hún umvafin golfvelli. Þá mun í framtíðinni vera ætlunin að reisa listasafn að Korpúlfs- stöðum og allt þetta getur farið mjög vel saman“ Björgúlfur Lúðvíksson, framkvœmdastjóri GR. GOLF Á ÍSLANDI 7

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.