Golf á Íslandi - 01.06.2016, Síða 30
Golf á Íslandi heyrði í Rósu þar sem stiklað var á stóru um starf klúbbsins og
farið var yfir helstu verkefni næstu missera.
„Starfið í Golfklúbbi Fjallabyggðar er öflugt
og til marks um það þá voru 102 félagar
skráðir í klúbbinn um síðustu áramót. Það
verður að teljast gott. Á hverju ári er boðið
upp á námskeið fyrir byrjendur og þá sem
eru lengra komnir í golfíþróttinni og við
reynum eftir fremsta megni að fá til okkar
fleiri félaga,“ segir Rósa.
Á upphafsárum GÓ kom klúbburinn sér
upp sex holu velli í landi Bakka sem er í
um 13 km fjarlægð frá Ólafsfirði. Þar var
leikið golf í fimm ár til ársins 1973 þegar
GÓ fékk landsvæði til umráða við bæinn
Skeggjabrekku, fyrir ofan bæinn í austurátt.
Þar hafa klúbbfélagar byggt upp afbragðs
klúbbhús samhliða áhugaverðum 9 holu
golfvelli. Íbúðarhúsið við Skeggjabrekku var
illa farið eftir bruna þegar klúbbfélagar tóku
við því á sínum tíma og fór nánast allur
þeirra frítími í að endurbyggja það og gera
það nothæft að nýju.
Eftir að völlurinn var fluttur að
Skeggjabrekku hófst nýtt tímabil í sögu
klúbbsins á velli sem státar af óvenju
skemmtilegu landslagi. Vallarstæðið er
fjölbreytt og gott útsýni er af vellinum bæði
til bæjarins og sjávar.
Konurnar láta að sér
kveða
Rósa er ánægð með hlutfall kvenna í
klúbbnum en um 30% félagsmanna eru
konur.
„Þetta hlutfall hefur aukist jafnt og þétt og
það eru rúmlega 30 konur í klúbbnum sem
er mjög mikið miðað við stærð klúbbsins.
Á hverjum mánudegi er kvennagolf og þá
hittumst við og eigum góða samverustund
saman.“
Karlarnir eru einnig með sína föstu leikdaga
en þeir koma saman á þriðjudögum. „Við
erum með mótaröð fyrir félagsmenn sem fer
fram á miðvikudögum og það eru nokkur
opin golfmót yfir sumartímann. Það er nóg
um að vera hjá okkur. Það er kraftmikill
hópur heldri kylfinga í Golfklúbbi Fjalla
byggðar sem hittist flesta morgna og
leikur golf saman. Þeir spjalla síðan um
heimsmálin yfir kaffibolla. Það er ávallt
pláss fyrir fleiri kylfinga í morgunhópinn.
Klúbburinn heldur úti æfingum fyrir yngri
kylfinga yfir sumartímann 2–3 sinnum í
viku. GFB tekur þátt í Norðurlandsmótaröð
unglinga og eitt af fjórum mótum hvers
sumars fer fram á Skeggjabrekkuvelli.
Nýjar brautir
í Skeggjabrekkudal
Framkvæmdir við nýjar brautir á Skeggja
brekkuvelli standa nú yfir en völlurinn
er að sögn Rósu nokkuð dæmigerður
landsbyggðarvöllur.
„Landfræðilegar aðstæður gera það að
verkum að Skeggjabrekkuvöllur kemur
frekar seint undan snjó á vorin. Við getum
ekki breytt því að Ólafsfjörður er á meðal
nyrstu byggða á Íslandi. Völlurinn kemur
venjulega undan snjó um mánaðamótin
maí/júní. Grasið er oft iðagrænt þegar
snjórinn fer af vellinum.“
Stefnt er að stækkun Skeggjabrekkuvallar
til suðurs inn í Skeggjabrekkudal.
„Í þeim áfanga verða gerðar fjórar nýjar
brautir ásamt uppbyggingu púttflata og
teiga. Gert er ráð fyrir æfingasvæði þar
sem núverandi níunda braut er í dag. Þegar
þessum kafla er lokið í framkvæmdum
verður haldið áfram að byggja upp þær
brautir sem eru í notkun á vellinum.“
Zach Johnson Kevin Kisner Jimmy Walker Rafa Cabrera-BelloBill HaasKevin Na
68 YEARS.
ONE BALL.
THE #1 BALL PLAYED AT THE U.S. OPEN® FOR 68 YEARS.
Source: Darrell Survey. U.S. Open is a registered service mark of the United States Golf Association® and is used with the permission of the United States Golf Association. The USGA does not endorse or sponsor Titleist or its products in any way.
Jordan Spieth Adam ScottRickie FowlerBubba Watson Henrik Stenson Louis Oosthuizen
To be successful at the U.S. Open takes talent, precision and patience. It also demands a golf ball that provides
exceptional distance, control and consistency. It’s especially true this year when players take on Oakmont Country
Club, one of the most difficult courses in the world, with its tight fairways, hard and slick greens, and famous
Church Pews bunker. And it’s why the overwhelming majority will rely on Titleist, just as they did when they played
Oakmont in 1953, 1962, 1973, 1983, 1994 and 2007. And as they have in every U.S. Open for 68 consecutive years.
30 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Stórfenglegt útsýni til allra átta