Golf á Íslandi - 01.06.2016, Blaðsíða 69
TAKK FYRIR ÞÁTTÖKUNA
As served at
Við óskum öllum vinningshöfum innilega til hamingju með árangurinn á
Sumarsólstöðumóti Stella Artois og þökkum öllum hinum fyrir þátttökuna.
SJÁUMST HRESS Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI!
„Ég byrjaði í golfi þegar ég var tólf ára gamall. Á þeim tíma fengum við Haf
steinn bróðir minn fyrstu golfsettin af gerðinni Stylist sem var kvennasett.
Ég keypti mér Ping Eye golfsett þegar ég var 16 ára og það nota ég enn í dag,“
segir Hafsteinn þegar hann er inntur eftir því hvenær hann hafi byrjað í
golfíþróttinni.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir að
stunda golf?
„Við vinirnir í fótboltanum fengum að
fara með nokkrum eldri strákum upp á
golfvöllinn í Ólafsfirði. Þar fengum við
að prufa að slá golfbolta í fyrsta sinn.
Þetta var óttalegt gauf og mikið um að við
fengjum stuð í fingurna þegar við hittum
boltana ekki nógu vel. Svo gerðist það að
ég hitti boltann fullkomlega með 3-járni
og tilfinningin og upplifunin af að sjá
boltann fljúga vel yfir hundrað metra var
það sem kveikti í mér og þá varð ekki aftur
snúið. Síðan þá hefur 3-járnið verið mín
uppáhaldskylfa.“
Hverju sækist þú helst eftir í golfinu?
„Það er keppnin við sjálfan mig, að ná að
vinna sjálfan mig. Fyrir hvern hring sem ég
spila þá set ég mér markmið, t.d. að spila
hringinn án þess að þrípútta, spila undir
ákveðnu skori eða að ljúka hringnum með
fleiri fuglum og pörum heldur en skollum
og skrömbum. Oftar en ekki nást þessi
markmið ekki, en ánægjan þegar markmiðið
næst er það sem ég sæki í.“
Hvernig er golfsumarið hjá þér? Ertu að
alla daga þegar færi gefst?
„Nei, það er af og frá að ég sé að alla daga
þegar færi gefst. Um tíma var golfiðkunin
dottin það mikið niður að meira að
segja konan mín var farin að hvetja
mig til að fara í golf. Núna er áhuginn
kannski í hámarki og ég reyni að fara 3-4
sinnum í viku með blessun konunnar og
veðurguðanna.“
Hver eru markmið sumarsins?
„Markmið sumarsins er að lækka forgjöfina
niður í 9, ég held að getan sé fyrir hendi en
þá þarf líka höfuðið vera með í leiknum.“
– Ljótu höggin verða víst að telja líka,
segir Sigurbjörn Hlíðar Jakobsson
Þrjú-járnið
er uppáhaldskylfan
Nafn: Sigurbjörn Hlíðar Jakobsson
Klúbbur: Golfklúbbur Reykjavíkur
Forgjöf: 10,2
Ólafsfirðingurinn Sigurbjörn Hlíðar
Jakobsson er einn af fjölmörgum
kylfingum sem leikur reglulega
á Öldungamótaröð LEK. Golf á
Íslandi ræddi við Sigurbjörn sem
byrjaði í golfi þegar hann var barn
í Ólafsfirði.
Sigurbjörn rifjaði upp skemmtilegt atvik frá frá golfferlinum.
„Flestir vilja sjálfsagt muna eftir sínu draumahöggi, þegar þeir ná að fara holu
í höggi, en þannig er það ekki hjá mér. Við félagarnir vorum að spila hring á
Skeggjabrekkuvellinum í Ólafsfirði. Á áttundu braut sem þá var 120 metra löng
par 3 braut sló ég með 9-járninu virkilega ljótt högg þar sem boltinn lyftist varla
frá jörðinni en þaut áfram á ógnarhraða og rétt náði yfir skurð sem lá þvert yfir
brautina. Hann þaut síðan áfram eftir brautinni 70 metra, inn á flötina, klessti
með brauki og bramli á stöngina og datt þaðan ofan í holuna. Ég vil ekki kalla
þetta draumahögg en ljótu höggin verða víst að telja líka.“
Einbeittur: Sigurbjörn
Hlíðar Jakobsson slær
hér á Ping-mótinu
á Hvaleyrarvelli á
Öldungamótaröðinni.
Smellhitt: Sigurbjörn
hitti boltann vel í þessu
höggi á Ping-mótinu á
Hvaleyrarvelli. Mynd/seth@golf
70 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Þrjú-járnið er uppáhaldskylfan