Golf á Íslandi - 01.06.2016, Page 37
Ljósmynd: loftmyndir@xyz.as
debet | kredit
Félagakerfi
dk viðskiptahugbúnaður
býður upp á alhliða lausn fyrir
hin ýmsu félagasamtök eins
og stéttar- og íþróttafélög,
góðgerðarsamtök og klúbba.
Í félagakerfinu er einfalt að
hafa umsjón með félags-
mönnum, félagsgjöldum,
launagreiðendum, styrkjum
og sjóðum og öllu því tengdu.
Afgreiðslukerfi
dk POS afgreiðslukerfi er
eitt öflugasta afgreiðslu-
kerfið á markaðinum í dag.
Með dk iPos er
afgreiðslukerfið komið í
hendina, fyrir iPod, iPad og
iPhone. dkPos afgreiðslu-
kerfið fyrir windows tölvur
er með sérsniðnar lausnir
t.d. tengingu við GSÍ kort,
rástímaprentun og öflugt
veitingahúsakerfi gera
dk POS að augljósum kosti
fyrir golfklúbba.
dk POS | í áskrift
bókhald | í áskrift
dk hugbúnaður ehf
Bæjarhálsi 1 | 110 Reykjavík
Hafnarstræti 53 | 600 Akureyri
www.dk.is | 510 5800 | dk@dk.is
„Það eru margar skemmtilegar brautir á
þessum velli. Fyrsta holan er frekar erfið,
önnur brautin mjög skemmtileg og svona
gæti ég haldið áfram. Það sem einkennir
völlinn er að flatirnar eru litlar og það
þarf að staðsetja upphafshöggin til þess að
koma sér í færi. Ég hef oft sagt að þeir sem
hitta flöt á Vatnahverfisvelli í tilætluðum
höggafjölda eru í fuglafæri, því flatirnar eru
það litlar. Ég æfði ýmis högg á þessum velli
sem eru mín helstu vopn enn í dag.
Ég lærði á þessum velli að vera nákvæmur
í innáhöggunum og staðsetja mig vel í
upphafshöggunum. Ég þurfti að læra að
sætta sig við taka ekki dræverinn upp og
dúndra eitthvað út í loftið. Ég lærði að
vera ekki of grimmur og einnig lærði ég
gott leikskipulag þótt völlurinn væri frekar
stuttur.
Nokkrar flatir eru uppbyggðar og eru frekar
mjúkar. Það varð til þess að ég notaði fleyg
járnin mikið og sló bara nánast á pinnann
og lét boltann stoppa. Mér hefur alltaf liðið
vel á slíkum flötum. Þegar ég fer t.d. á velli í
Bandaríkjunum fæ ég sömu tilfinninguna og
get látið boltann stoppa. Vatnahverfisvöllur
kenndi mér að verða góður fleygjárnsspilari.
Það borgaði sig ekki að nota 8-járnið og
láta boltann rúlla inn á svona litlar flatir.
Við þurftum að láta boltann fljúga inn á
flatirnar.
Minn gamli heimavöllur er besta æfinga
svæði sem ég hef fengið að nota, ég var oft
bara einn á vellinum, Það var alltaf nóg
pláss fyrir mig að æfa og ég var heppinn
að fá þessar aðstæður. Ég var með tvo
í forgjöf þegar ég fór frá Blönduósi og í
Mosfellsbæinn til þess að taka skrefið upp
á við. Besta skorið mitt á Vatnahverfisvelli
var á þeim tíma eitt eða tvö högg undir
pari. Það var ekki fyrr en mörgum árum
síðar að mér tókst að leika völlinn á -5.
Þrátt fyrir að vera frekar stuttur völlur þá
er Vatnahverfisvöllur skemmtileg áskorun
fyrir alla kylfinga og ég skora á alla þá sem
eru með golfsettið í skottinu að staldra við
á Blönduósi og leika völlinn. Sérstaklega í
kvöldsólinni, það eru fáir vellir á landinu
sem eru með fallegra umhverfi þegar sólin er
að setjast,“ sagði Heiðar Davíð Bragason.
Séð yfir 3. flöt og 4. brautina sem er
par 3 hola og virkilega krefjandi braut.
Mynd/seth@golf
37GOLF.IS