Golf á Íslandi - 01.06.2016, Page 83
Ljúffengar múslístangir með súkkulaði, banana og hnetum.
SLÁANDI GOTT MILLIMÁL ÞEGAR ÞIG VANTAR SMÁ AUKA ...
freyja.is
Fáðu smá auka
kraft í sveifluna
38
01
-F
R
E
–
V
E
R
T.
IS
Hér eru nokkur góð ráð úr ýmsum áttum frá næringafræðingum.
Áður en hringurinn hefst:
Próteinrík máltíð (egg, kjöt, fiskur), góðar fitur (silungur,
avókadó, hnetur), einföld en náttúruleg kolvetni (ávextir,
grænmeti, baunir, litlir skammtar af hrísgrjónum eða fjölkorna
brauði).
Holur 1 – 6.
Ef kylfingar kjósa að borða á fyrstu sex holunum ætti
markmiðið að vera að halda blóðsykrinum stöðugum og ekki
missa orkuna. Ávextir á borð við epli, perur og appelsínur
eru góður kostur ásamt handfylli af hnetum. Trefjarnar í
ávöxtunum og fitan í hnetunum gerir það að verkum að
fæðan fer hægt í gegnum meltingarfærin og ástandið verður
stöðugt.
Holur 7 – 12.
Markmiðið á þessum holum er að halda orkustiginu jöfnu með
fæðu sem heldur jafnvægi á orkubúskapnum. Rétt blanda af
próteinum, kolvetnum og fitu. Heimatilbúnar og þaulhugsaðar
próteinstangir er góður kostur. Samloka úr grófu korni með
hnetusmjöri, túnfiski eða kjúkling er einnig góður kostur.
Próteindrykkur með banana getur líka verið fín lausn.
Holur 13 – 18.
Markmiðið á þessum holum er að vera með nægjanlega
orku í líkamanum til þess að ljúka hringnum eins vel og
hægt er. Einbeitingin þarf að vera í lagi þegar spennustigið
eykst og höggin verða erfiðari. Á þessum tímapunkti er
mælt með því að borða þurrkaða ávexti sem eru kolvetnarík
fæða og íþróttadrykkur (með litlum sykri) er einnig góður
kostur. Sumir næringasérfræðingar mæla jafnvel með
einum svörtum kaffi– eða tebolla til þess að skerpa aðeins á
huganum.
Það er óraunhæft að ætla að margir kylfingar geti borðað eins mikið og lýst er hér fyrir ofan. Aðalatriðið er að halda
góðu jafnvægi í inntöku próteina, kolvetna og fitu. Harðfiskbiti á fyrri hluta hringsins er góð lausn, próteinstykki,
ávöxtur eða hnetur ætti að duga á miðhlutanum og eitthvert smámál sem gefur orku á lokakaflanum er besti
kosturinn.
Þess ber að geta að nauðsynlegt er að halda vökvabúskap líkamans í góðu horfi með því að drekka nóg af vatni á
meðan leikið er.
Heimild: GolfDigest.
Nokkur góð ráð:
Kylfingar velta því
oft fyrir sér hvað þeir
eigi að borða á meðan
þeir leika golf og þá
sérstaklega í keppni.
Það er ekki sama hvað
maður borðar og það
skiptir líka máli á hvaða
holu kylfingurinn er á
hringnum.
Hvað áttu að borða fyrir golfhring
og á meðan þú ert að leika?
84 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Hvað áttu að borða fyrir golfhring og á meðan þú ert að leika?