Golf á Íslandi - 01.06.2016, Side 91
Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að
meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Má
ekki nota á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir, augu, sár, exem, vessandi húðbólgu. Getur valdið húðertingu. Varast
skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir
notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á altækum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Getur dregið úr frjósemi en þau áhrif ganga til baka. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli
fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Voltaren gel er bæði
verkjastillandi og bólgueyðandi.
Prófaðu að meðhöndla liðverkina
með Voltaren geli.
Viltu meðhöndla liðverkinn
án þess að taka töflur?
Berið u.þ.b. 2-4 g af Voltaren geli (samsvarar magni á stærð við
kirsuber eða valhnetu) á aumt svæðið. Endurtakið 3-4 sinnum á
dag, þangað til einkenni eru horfin.
150g50%
meira m
ag
n!
Lyaauglýsing
Voltaren-Gel-NEW-A4 copy.pdf 1 13/05/15 16:52
Magnaður hringur: Ingvar Andri Magnússon úr GR fékk alls
níu fugla á lokahringnum og lék hringinn á sjö höggum undir
pari. Hér vippar hann inn á 14. flötina á Hólmsvelli í Leiru.
Mynd/seth@golf.is
Glæsilegur árangur náðist í ýmsum flokkum á fyrsta móti ársins 2016 á
Íslandsbankamótaröð unglinga. Leikið var á Hólmsvelli í Leiru og hafði
Golfklúbbur Suðurnesja umsjón með mótinu. Aðstæður til golfleiks voru
ekki keppendum í hag en „Leirulognið“ fór heldur hratt yfir og þurfti m.a.
að fella niður fyrstu umferðina á föstudeginum hjá 17-18 ára flokkunum.
Veðrið var mun betra á sunnudeginum, þá var að mestu þurrt en þéttur
vindur allan daginn.
Ingvar Andri Magnússon úr GR lék frábært
golf á lokahringnum eða -7 og sigraði hann
með yfirburðum í flokki 15-16 ára. Sigurður
Arnar Garðarsson úr GKG lék á einu höggi
undir pari samtals í flokki 14 ára og yngri.
Nánar er fjallað um mótið á golf.is og þar er
einnig að finna myndasyrpu frá mótinu.
Íslandsbankamótaröðin:
Magnaður
hringur hjá
Ingvari Andra
Alma Rún Ragnarsdóttir slær
hér upphafshöggið á 13. braut á
lokahringnum. Mynd/seth@golf.is
Hress: Sigurður Arnar
Garðarsson úr GKG lék
frábært golf í flokki 14 ára og
yngri. Hér fagnar hann fugli á
16. flöt eins og fagmaður.
92 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Íslandsbankamótaröðin