Bautasteinn - 01.05.2018, Side 8

Bautasteinn - 01.05.2018, Side 8
8 Bálfararfélag Íslands stofnað Þegar leið og beið ákváðu þeir Claessen og Björnsson að taka málin í sínar hendur til að þrýsta á við stjórnvöld að koma baráttumáli sínu í höfn. Þeir voru ekki einir um þetta en hittust ásamt nokkrum framámönnum bæjarins á Hótel Borg 26. janúar 1934 til skrafs og ráðagerða um stofnun sérstaks félags er skyldi koma málum áleiðis. Bálfararfélag Íslands var svo stofnað 6. febrúar sama ár af 52 áhugamönnum um þessi efni. Í stjórn voru kosnir Gunnlaugur Claessen læknir, Benedikt Gröndal verk- fræðingur, Ágúst Jósefsson heilbrigðisfulltrúi, Björn Ólafsson stórkaupmaður og Gunnar Einarsson prent- smiðjustjóri. Til marks um áhuga almennings á málinu strax í upphafi má geta þess að félagsmenn voru orðnir 530 talsins aðeins fjórum árum síðar. Af fundargerðum Bálfararfélags Íslands má ráða að menn höfðu háar hugmyndir um hlutverk og mikilvægi hins nýstofnaða félagsskapar í samfélaginu. Lög félagsins voru samin af Sveini Björnssyni lögfræðingi og þáverandi sendiherra í Danmörku. Meðal markmiða félagsins var að útbreiða þekkingu um líkbrennslumál og að vinna að því að koma upp bálstofum í landinu. Í lögunum segir m.a. að almenningur skuli eiga „kost á bálförum, mun ódýrari en nú tíðkist við jarðarfarir“. Þá er eitt baráttumála félagsins „að koma upp tryggingadeild þar sem félagsmenn gegn iðgjöldum geti tryggt sér greiðslu bálfararkostnaðar, að þeim látnum“. Stjórn hins nýja félags ákvað strax á 2. fundi að birta ávarp í dagblöðum til að hvetja almenning til að huga að þessum nýja úfararsið. Í ávarpinu, sem samið var af forseta félagsins, Gunnlaugi Claessen, segir m.a.: „Orsakir þess að horfið er frá því að jarðsetja framliðna, er aukinn skilningur almennings á því, að það er að öllu leyti meiri ræktarsemi og hreinlæti að eyða líkamsleifum hins látna á 1-2 klst. í líkofni, heldur en að leggja það til rotnunar árum eða áratugum saman í dimmri gröf. Erlendis reynast líka bálfarir miklu ódýrari en jarðarfarir og starfrækja bæjarfélögin víða bálstofur, en reyna að komast hjá kostnaði við aukningu og viðhald grafreita.“ Það er ljóst að í kynningu á félaginu leggja menn allmikla áherslu á að bálfarir séu ódýrari kostur en hefðbundnar jarðarfarir. Í Nýja dagblaðinu í febrúar 1934 segir Claessen í viðtali að sumarið áður hafi lík verið flutt frá Reykjavík til Kaupmannahafnar til brennslu „og hefði allur kostnaður orðið 570 krónur, þrátt fyrir það að 150 kr. voru borgaðar undir kistuna héðan til Kaupmannahafnar. En útför hér í bænum er dýrari en þetta.“ „Brenndir fyrir lítið verð“ „Fyrir skömmu var stofnað hjer í bæ svonefnt Bálfarar- félag (sbr. Framfarafjelag og Hamfarafjelag) og mun gert aðallega fyrir þá, sem ekki hafa brennt sig nægilega á útgerðafjelögum og öðrum slíkum. Tilgangur fjelagsins er, að snúa jarðneskum leifum meðlima sinna í reyk og ösku, og eru því allir svíðingar sjálfsagðir meðlimir. Tilgangi sínum hyggst fjelagið ná með því að stofna brunastöð suður á Melum og verða menn þar brenndir fyrir lítið verð.“ Þessi klausa úr Speglinum frá árinu 1934 er dæmi um þá umræðu sem fór fram í blöðum bæjarins þegar áform Bálfararfélagsins spurðust út og voru forystumenn félagsins víða hafðir að háði og spotti. Var óspart grín gert að Gunnlaugi Claessen og hans mönnum en harðvítug stjórnmálabarátta þess tíma setti einnig svip á umræðuna. Einn harðasti andstæðingur Bálfararfélagsins var Sigurjón Pjetursson á Álafossi, einn litríkasti maðurinn í þjóðmálaumræðu þess tíma. Hann sá alla annmaka á þessum nýja sið og taldi ljóst að reisa yrði frystihús við hlið fyrirhugaðrar bálstofu til að geyma líkin í áður en bálför gæri farið fram! Af þessu tilefni var ort kvæði er birtist í Speglinum. Eitt erindið er svona: Í öllum frama- og frystimálum fylgi ég alveg Sigurjóni. Bálstofurnar banna vil ég; bálfarirnar valda tjóni. Það, að kveikja í köldum geislum, kann ei stýra lukku góðri, að kasta svona í eld og ösku indælasta sálarfóðri. Áform á Klambratúni Stjórn Bálfararfélagsins tók fljótlega þá stefnu að í stað þess að bíða eftir því að stjórnvöld kæmu bálstofu á fót væri skynsamlegast að félagið sjálft myndi ráðast í það verkefni með fjárhagslegum tilstyrk bæjarsjóðs Reykja- víkur og fleiri aðila. Sumarið 1935 var sótt um lóð til Reykjavíkurbæjar undir bálstofu í austanverðu Skóla- vörðuholti, á milli Egilsgötu og Eiríksgötu, niður að Barónsstíg. Tóku bæjaryfirvöld vel í þá hugmynd. Á næstu mánuðum kom í ljós að þrátt fyrir jákvæð viðbrögð bæjarstjórnarmanna í upphafi þótti sú lóð miður heppileg en forvígismönnum félagsins aftur bent á Sunnuhvolstún, sem var erfðafestuland og í skipulagi nefnt Norðurmýrar- Dr. med. Gunnlaugur Claessen var virtur vísindamaður og brautryðjandi í röntgenlækningum hér á landi.

x

Bautasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.