Bautasteinn - 01.05.2018, Page 12

Bautasteinn - 01.05.2018, Page 12
12 Þegar við hjónin fluttumst hingað vestur haustið 1978 verður að segja eins og er að Reykholtsstaður var kominn í allmikla niðurníðslu. Hér var vissulega þróttur í allri starfsemi en húsakynni voru orðin léleg og sérstaklega gamla kirkjan mjög illa farin. Þá var kirkju- garðurinn sjálfur að hverfa niður í svörðinn og löngu kominn tími á úrbætur og stækkun hans. Sumarið 1979 sló ég garðinn með orfi og ljá enda útilokað að koma sláttutækjum að og þau heyskaparverk voru mér erfið, m.a. vegna húsapuntsins sem hafði yfirtekið allt svæðið. Það var því kominn tími á úrbætur svo um munaði.“ Svo segir séra Geir Waage sóknarprestur í Reykholti frá þegar við hittum hann í Reykholti á vordögum. Geir hefur verið sóknarprestur í Reykholti samfleytt í 40 ár en á þeim tíma hefur grettistaki verið lyft í uppbyggingu staðarins. Á þessu tímabili ber auðvitað hæst byggingu nýrrar Reykholtskirkju og Snorrastofu en einnig hefur verið ráðist í gríðarlegt skógræktarátak og umhverfis- bætur af ýmsu tagi en þar hefur hann sjálfur lagt gjörva hönd að verki. Séra Geir segir okkur nú frá helstu endubótum á kirkjugarðinum í Reykholti á hans tíð. Torf og timbur í fyrstu Í heimildum er þess getið að kirkjugarður við Reykholts- kirkju hafi verið afmarkaður á árinu 1895 með torf- veggjum utan vesturhliðarinnar sem var úr timbri. Árið 1910 var gerður steyptur veggur á þessari hlið en hann tók fljótlega að skemmast og reglulega kvartað yfir honum í vísitasíum. Sá veggur var þó ekki leystur af hólmi fyrr en langt var liðið á öldina. „Þegar ég kom á staðinn var steinveggur þessi orðinn afar óásjálegur og lét ég rífa hann og setja niður trégerði á steypta staura til bráðabirgða. Suðurhluti garðsins hafði skömmu áður verið sléttaður en sumarið 1982 tókum við svo til við að slétta norðurhlutann og stækka garðinn fáeina metra til norðurs. Var það verk allt unnið á höndum. Í þetta réðst ég ásamt þremur fermingardrengj- um. Ég man að þeir spurðu fyrsta morguninn: „Hvar eru tækin?“ en um slíkt var ekki að tefla enda fengu þeir í hendur rekur og torfhleðsluspaða og annað ekki! Sú hefð hefur raunar skapast síðan að við höfum ráðið hingað til verka unglinga sumarið eftir fermingu og hafa þeir hirt garðinn afar vel svo að sómi er að. Allar framkvæmdir við endurbætur í garðinum hafa raunar verið unnar með góðri hjálp sveitunga og hafa þeir ávallt verið boðnir og búnir að láta í té efni, tæki og ómældar vinnustundir þegar eftir hefur verið leitað.“ Í kringum 1990 var ráðist í gerð nýrra bílastæða og kirkju- garðurinn stækkaður frekar til norðurs með grjóthleðslu Steinhleðslur umhverfis kirkjugarðinn í Reykholti Staðarprýði á menningarsetri Rætt við séra Geir Waage í Reykholti um endurgerð Reykholtskirkjugarðs Séra Geir Waage við Sturlungareit í Reykholtskirkjugarði. „Allar framkvæmdir í garðinum hafa verið unnar með góðri hjálp sveitunga og þeir ávallt verið boðnir og búnir að láta í té efni, tæki og ómældar vinnustundir þegar eftir hefur verið leitað.“

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.