Bautasteinn - 01.05.2018, Side 15

Bautasteinn - 01.05.2018, Side 15
15 Bjarni Guðráðsson í Nesi í Reykholtsdal hefur komið að fjölmörgu er varðar Reykholtskirkju en hann var m.a. organisti og söngstjóri við kirkjuna í 35 ár og formaður byggingarnefndar hinnar nýju kirkju. Hin síðari árin hefur hann komið að ýmsum verklegum fram- kvæmdum í kirkjugarðinum, m.a. garðhleðslu og grafartöku. „Já, ég hóf að vinna að skráningunni um 1980. Til eru handrit Gunnlaugs Einarssonr frá Reykholti sem vann að mælingum og skráningu í garðinum á árunum fyrir 1930. Á fjórða áratug síðustu aldar vann Bjarni Árnason frá Brennistöðum ítarlegan uppdrátt sem til er í handriti. Kristján Benediktsson í Víðigerði uppfærði hann í upphafi 7. áratugarins. Þá kom Haraldur Árnason ráðunautur að uppfærslu á uppdrættinum en því verki var ekki lokið. Fyrir nokkrum misserum voru minningar- mörk í garðinum skráð með GPS mælitækjum á vegum umsjónarmanns kirkjugarða, Guðmundar Rafns Sigurðs- sonar sem áður veitti ráðgjöf og gerði uppdrátt af skipulagi garðsins og tengsl hans við nýju kirkjuna.“ Að sögn Bjarna liggur nú fyrir skrá í handriti yfir nöfn þeirra sem jarðsettir hafa verið í Reykholtskirkjugarði frá því um 1890 og auk þess eru skráðir nokkrir eldri legstaðir þekktir. Hann hefur séð um skráningu og staðsetningu legstaða í garðinum frá árinu 1979. „Þegar ég var formaður sóknarnefndar Reykholtskirkju árið 1967 skrifaði ég skrána upp eftir handritunum. Í ljós kom að garðsskráin var gloppótt og ekki höfðu ratað í hana upplýsingar um alla þá einstaklinga sem kirkju- bækur sögðu jarðsetta í Reykholtskirkjugarði á liðinni öld. Til þess að skráning fæðingar- og dánardægra yrði sem réttust bar ég saman upplýsingar úr kirkjubókum, þjóðskrá og áletranir á legsteinum. Þá þurfti að ræða við aðstandendur ef einhvert misræmi kom fram. Markmiðið var að skráin yrði sem réttust heimild um nöfn þeirra einstaklinga sem jarðsettir hafa verið í garðinum frá því um 1890 en staðsetning nokkurra legstaða þeirra í garðinum er óþekkt,“ segir Bjarni enn fremur. Bjarni segir að dálítil vinna sé eftir við að samræma nokkur atriði sem enn séu óljós. „Þá geri ég ráð fyrir að skráin ásamt uppdrætti verði aðgengileg og haldið við í Reykholtskirkju og hjá skráningu kirkjugarða landsins.“ Markmiðið að skrá þetta eftir réttum heimildum segir Bjarni Guðráðsson sem hefur unnið að skráningu legstaða í Reykholti Bjarni Guðráðsson í Nesi í Reykholtsdal hefur tekið saman skrá með nöfnum þeirra sem hlotið hafa legstað í Reykholts- kirkjugarði frá því um 1890.

x

Bautasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.