Bautasteinn - 01.05.2018, Page 23

Bautasteinn - 01.05.2018, Page 23
23 finnst mér líka að garðarnir geti verið prófsteinar á það hvernig við rækjum skyldur okkar gagnvart forfeðrunum og hvort við sýnum minningu þeirra tilhlýðilegan sóma. Því miður er víða að finna kirkjugarða á Íslandi sem eru til háborinnar skammar og bera þess vitni að þeir sem þar hvíla eru núlifandi fólki gleymdir og grafnir í orðsins fyllstu merkingu. Vissulega hefur margt áunnist í þessum efnum á síðustu áratugum en þegar ég fór að gefa þessum málum gaum sem ungur maður ofbauð mér satt að segja. Og Bíldudalskirkjugarðurinn var þar engin undantekn- ing.“ Með hjálp frá Ingivaldi Jón Kr. segist hafa unnið sleitulaust um kvöld og helgar við endurgerð Bíldudalskirkjugarðs sumrin 1968 og 1969. „Eins og ég segi var garðurinn í hörmulegu ástandi, fjölmög minningarmörk horfin eða nánast ónýt og þess vegna þurfti að merkja mörg leiði upp á nýtt. Við það verk naut ég ómetanlegrar vinnu fyrrum kirkjugarðsvarðar, Ingivaldar Nikulássonar sem var ráðinn sem umsjónar- maður garðsins á Bíldudal 7. janúar 1926, daginn sem hann var vígður. Ingivaldur þessi var grúskari í eðli sínu og hann hófst strax handa við að teikna garðinn upp og merkti öll leiði samviskusamlega. Það gerði hann öll árin sem hans naut við en hann lést 1951. Þessar upplýsingar gat ég nýtt mér þegar ég fór á stúfana áratugum síðar. Þetta menningarstarf Ingivaldar reyndist ómetanlegt.“ „Eftir að verkinu við endurgerð garðsins á Bíldudal lauk, kom ég öllum uppdráttum Ingivalds, svo og þeim sem ég vann í samvinnu við Valdemar B. Ottósson, til Aðalsteins Steindórssonar sem þá var umsjónarmaður kirkjugarða landsins. Hann kom svo hingað vestur og leyst svo vel á dagsverkið að hann spurði mig hvort ég hefði ekki áhuga á að vinna við fleiri garða. Það varð úr og næsta verkefni var kirkjugarðurinn í Flatey á Breiðafirði en þar var ég með flokk manna árið 1989. Sá garður var, eins og svo margir aðrir í sveitum landsins á þessum tíma, ein ruslahrúga eins og ég kýs að kalla það. Á næstu árum tók ég að mér endurgerð nokkurra garða á Vestfjörðum, m.a. kirkjugarðanna í Gufudal, Garpsdal og á Reykhólum. Þá réðst ég í endurgerð garðsins í Hjarðarholti í Dölum en það var mjög erfitt verk og seinlegt. Ég veit ekki hvort ég gleymi einhverjum en eftir Dalina vann ég við kirkju- garðinn á Hrafnseyri við Arnarfjörð, því næst Holt í Önundarfirði og síðast stjórnaði ég verki við garðinn á Leirá í Borgarfirði.“ Muggur í sérstöku uppáhaldi Á Bíldudal er að finna minnisvarða um þau hjónin Ásthildi og Pétur J. Thorsteinson eftir Ríkharð Jónsson en segja má að þau hjón teljist vera foreldrar staðarins. Eitt barna þeirra var Muggur listmálari, en honum var einnig reistur minnisvarði á Bíldudal árið 1981. Og þarna kom okkar maður einnig að verki. Getum útvegað gæða sópa í öllum stærðum og gerðum fyrir liðléttinga, hjólaskóflur, dráttarvélar, skotbómulyftara og margt fleira. Margar útgáfur í boði, með eða án safnkassa og vatnsúðunarkerfis. Flestar gerðir ásuðukróka í boði sem tryggir að sóparnir passa beint á viðkomandi tæki. BEMA er þýskur framleiðandi af sópum og vetrarbúnaði. Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum okkar. ÞÓR F H REYKJAVÍK: Krókháls 16 Sími 568-1500 AKUREYRI: Baldursnes 8 Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.