Bautasteinn - 01.05.2018, Page 25
Bíldudalskirkju með það fyrir augum að reisa sem
minnisvarða í Otradalskirkjugarði. Eftir að nefndin
hafnaði því boði komst Hrafnseyrarnefnd á snoðir um að
steinninn gæti verið falur og ákvað síðan að minnast
Hrafns Sveinbjarnarsonar, goðorðsmanns og fyrsta læknis
á Íslandi með uppsetningu hans og minningarskjaldar í
gamla kirkjugarðinum á Hrafnseyri þar sem Hrafn er
talinn vera jarðsettur.
Tveimur árum síðar, árið 1996, reisti svo Jón Kr. minnis-
varða um þau hjónin Auði og Jón Kr. Ísfeld, en hann
þjónaði sem prestur á Bíldudal árunum 1944-1961. Þá
hafði hann einnig forgöngu um það árið 2004 að reistur
var minnisvarði í Flatey á Breiðafirði um Sigvald Kalda-
lóns, lækni og tónskáld sem þar þjónaði eitt sinn.
„Þessi árátta mín að reisa minnismerki hefur oft verið
tengd starfi mínu við kirkjugarðana en fyrst og fremst hef
ég haft áhuga á því að tryggja að það ágæta fólk sem
þarna hefur átt í hlut gleymist ekki. Mér hefur fundist full
ástæða til að halda minningu þess á lofti og hef trú á að
þetta brölt mitt geri það um langa framtíð. Því miður
hefur oft staðið styr um þessi verk mín þar sem áhuga-
leysið og öfundin hefur stundum leiðst hönd í hönd en ég
vona þó að fleiri hafi verið ánægðir þegar upp var staðið.“
Við kveðjum stórsöngvarann og menningarfrömuðinn
Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal.
Ingivaldur Nikulásson var ráðinn sem umsjónarmaður
kirkjugarðsins á Bíldudal 7. janúar 1926, daginn sem hann
var vígður. Menningarstarf hans reyndist ómetanlegt.
25