Bautasteinn - 01.05.2018, Page 26

Bautasteinn - 01.05.2018, Page 26
26 Bíldudalskirkja er liðlega 111 ára gömul og tilheyrir Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli í Vestfjarða- prófastsdæmi. Bíldudalskirkja hefur verið friðuð frá 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989. Tæpum tuttugu árum eftir vígslu kirkjunnar eða 7. janúar 1926 var Bíldudalskirkju- garður vígður af sr. Jóni Árnasyni, þáverandi sóknar- presti. Kirkjugarðurnn á Bíldudal liggur um 1,5 km frá kirkjunni sjálfri og í dag er um hann timburgirðing á þrjá vegu. Norðausturhlið garðsins er hlaðin upp úr grjóti en það var gert árið 1998 undir stjórn Jóns Júlíusar Elíassonar skrúðgarðyrkjumeistara. Þar er sáluhlið garðsins, klukknaport með koparþaki, hannað af Hjörleifi Stefáns- syni arkitekt og smíðað af Jóni S. Bjarnasyni trésmíða- meistara á Bíldudal. Leysti það gamla sáluhliðið af hólmi sem var steypt með krossi yfir hliðboga og kúlur á steyptum súlum beggja vegna. Þorpsbúar kröfðust kirkju Um aldir hafði sóknarkirkja Suðurfjarða staðið í Otradal og er hennar getið í kirknatali Páls Jónssonar frá 1200. Þegar íbúum Bíldudals fór fjölgandi um aldamótin 1900 undu margir þorpsbúar því ekki að þurfa að sækja kirkju inn í Otradal og vildu guðshús í plássið. Lengi stóð í stappi en eftir að Málfundafélagið Bíldur hafði beitt sér í málinu og Arnarfjarðarkóngurinn Pétur Thorsteinsson studdi við verkefnið, fékk kirkjubyggingin loks framgang. Almenn- ur safnaðarfundur 1903 og héraðsfundur ári síðar samþykktu áform um nýja kirkju og kirkjuyfirvöld veittu því blessun sína sama ár. Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson var fenginn til að gera teikningar að kirkjunni. Hafist var handa um byggingu strax árið 1905 og kirkjan vígð 2. desember ári síðar. Bíldudalskirkja uppkomin mun hafa kostað tólf þúsund krónur en það var mikið fé í þá daga. Hugað að nýjum garði Í grein í ritinu Kirkjur Íslands skrifar Guðmundur Rafn Sigurðsson m.a. á þessa leið um tilurð núverandi garðs á Bíldudal: „Áður en garðurinn var tekinn í notkun var kirkjugarður sóknarinnar í Otradal, en þar hafði staðið kirkja og kirkju- garður um aldir. Otradalur er í um 5 km fjarlægð frá Bíldudal og í framhaldi af vígslu nýrrar kirkju á Bíldudal í árslok 1906 kom fljótlega upp spurning um nýjan kirkjugarð þar. Árið 1904 kemur fram í vísitasíu að bráðlega þurfi að stækka garðinn í Otradal en ef hentugt svæði fyrir grafreit finnist í Bíldudal verði söfnuðurinn látinn skera úr, hvort þar skuli útbúa nýjan grafreit eða grafreiturinn í Otradal stækkaður. Árið 1916 er afráðið að stækka grafreitinn í Otradal og í vísitasíu Jóns biskups Helgasonar árið 1917 stendur að í Otradal sé kirkjugarður með líkhúsi sem standi til að umbyggja og sé garðurinn í góðu lagi. Í prófastvísitasíu frá 1928 kemur fram að nýr grafreitur hafi verið tekinn í notkun á Litlueyri við Bíldudal og hafi hann verið vígður af hlutaðeigandi sóknarpresti, séra Jóni Árnasyni þann 7. janúar 1926 þegar jarðsett voru þrjú feðgin frá Nesi á Bíldudal.2 Þau voru Bjarni Bjarnason, f. 1847, d. 27.12.1925, Sigríður Bjarnadóttir, f.1869, d. 22.12.1925, og Guðmundur B. Bjarnason, f. 1870, d. 1.1.1926.“ Kirkja og garður á Bíldudal Kirkjugarðurinn á Bíldudal.  Ljósm. Guðmundur Rafn Sigurðsson. Bíldudalskirkja er reist á árunum 1905-1906.

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.