Bautasteinn - 01.05.2018, Qupperneq 30

Bautasteinn - 01.05.2018, Qupperneq 30
30 Steinsmiðja Akureyrar býður yfir 100 gerðir legsteina og kemur efniviðurinn víða að úr heiminum, m.a. frá Indlandi, Kína og Ítalíu auk Íslands en íslenska stuðlab ergið er alltaf vinsælt, þar sem hver steinn hefur sína ólíku lögun og áferð. Fyrirtækið býður upp á frían flutning um allt land á legsteinum. „Áherslur okkar eru ávallt gæði og framúrskarandi þjónusta og markmiðið að viðskiptavinir okkar séu fullkomlega ánægðir,“ segir Birnir Vignisson sem ásamt konu sinni Sunnevu Árnadóttur hefur rekið steinsmiðj- una frá því í ársbyrjun 2017. Eftir eigendaskiptin flutti Steinsmiðja Akureyrar fljótlega í nýtt húsnæði í Njarðar- nesi 4, þar fer öll starfsemin fram og viðskiptavinir geta valið þar úr fjölbreyttu úrvali hráefnis og mismunandi hönnun minnisvarða. Þá eru myndir og ítarlegar upp- lýsingar á vefsíðu fyrirtækisins, minnismerki.is. „Við hönnum og smíðum minnisvarða úr íslensku grjóti og einnig úr innfluttu graníti en sú steintegund er sú harðasta sem til er og endist í mannsaldra. Við hugsum einnig um gæði þegar kemur að aukahlutum, eins og lugtum, vösum og fuglum, við viljum að þetta endist vel með steininum,“ segir Birnir enn fremur. Frír flutningur legsteina um allt land „Þegar kemur að legsteinum skipta gæði auðvitað höfuðmáli, þeim er ætlað að standa lengi og þola veður og vinda til lengri tíma. Það er því mikilvægt að vanda valið. Legsteinn er persónulegur minnisvarði og við smíðum eftir þeim hugmyndum eða tillögum sem okkar viðskiptavinir koma með. Þar er persónuleg þjónusta í fyrirrúmi,“ segir Birnir. Steinsmiðja Akureyrar býður þá þjónustu á Norðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu að setja legsteina upp í kirkjugörðum og sjá um allan frágang í kringum það. Frír flutningur er á legsteinum um allt land. minnismerki.is Askalind 4 Kópavogur Sími 564 1864 vetrarsol@vetrarsol.is EINSTÖK SLÁTTUVÉL FYRIR KIRKJUGARÐA Stiga Twinclip 50 SB lúxus sláttuvél  B&S mótor, 625E sería  Tvískiptur hnífur saxar grasið X-smátt  Graskassinn losaður m/ einni hendi, 70 lítrar  Þvottastútur til þrifa á hlemm vélar Nýjung! Steinsmiðja Akureyrar Gæði og persónuleg þjónusta Hjónin Sunneva Árnadóttir og Birnir Reyr Vignisson eiga og reka Steinsmiðju Akureyrar. Þau bjóða fjölbreytt úrval legsteina og fylgihluta ásamt ýmsum öðrum varningi úr mismunandi steintegundum.

x

Bautasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.