Bautasteinn - 01.05.2018, Blaðsíða 31

Bautasteinn - 01.05.2018, Blaðsíða 31
31 Hjónin Hreinn Eiríksson og Kristín Gísladóttir á Hornafirði: Kynntust í Ævintýri á gönguför Lífshættir fólks taka stöðugum stakkaskiptum í tímans rás. Það er því alltaf fróðlegt að lesa viðtöl við eldri borgara um fyrri tíma og lífshlaup þeirra. Hér fer á eftir samantekt úr viðtali við heiðurshjónin Hrein Eiríksson og Kristínu Gísladóttur, en þau hafa um langt skeið unnið ötullega að vexti og viðgangi garðs og kirkju í Bjarnanes- sókn. Þorvaldur Jón Viktorsson tók viðtalið en það birtist í blaðinu Eystrahorni fyrir jólin 2014. Ætt og uppruni Hreinn fæddist á Miðskeri í Nesjum 10. mars 1931 og er langyngstur fimm systkina en faðir hans átti lengi við heilsubrest að stríða og lést þegar Hreinn var 6 ára. Lífið hélt áfram þótt heimilisfaðirinn félli frá. Hin systkini hans voru þá orðin stálpuð og vel liðtæk við bústörfin með móður sinni en Hreinn var lengst af litla barnið á heimil- inu. Árin liðu og brátt tók við almenn skólaganga og þegar henni lauk voru systkinin farin að heiman nema Hreinn og elsti bróðirinn, sem önnuðust að mestu leyti bústörfin. Kristín er innfæddur Hafnarbúi, fædd 1940 og uppalin á Grímsstöðum á Höfn, sem nú er Hafnarbraut 26. For- eldrar Kristínar voru þau Regína Stefánsdóttir húsmóðir og mikil kvenfélagskona og Gísli Björnsson sem lengst af var rafveitustjóri á Höfn. Kristín á einn albróður, Baldur Þessi mynd var tekin á brúðkaupsdaginn en Kristín og Hreinn áttu 50 ára brúðkaupsafmæli árið 2014. Hreinn hefur allt frá upphafi annast vel um kirkjuna í Bjarnanesi og umhverfi hennar.

x

Bautasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.