Bautasteinn - 01.05.2018, Page 32

Bautasteinn - 01.05.2018, Page 32
32 Gíslason, fyrrum skólastjóra Tækniskóla Íslands en fyrir átti Gísli fjögur börn með fyrri konu sinni Arnbjörgu sem lést fyrir aldur fram. Hálfsystkinin voru 14-20 árum eldri og þótti Krístínu mikið til þeirra koma. Leiklistin leiddu þau saman Hreinn fluttist að heiman um þrítugt og fór að vinna á Trésmíðaverkstæði Guðmundar Jónssonar á Höfn og vann þar í sex ár. Á þeim árum giftist hann Ragnheiði Malm- quist og eignuðumst þau þrjú börn. Þau slitu samvistir eftir nokkur ár. Síðar kom Kristín inn í líf hans en þau kynntumst í gegnum leikstarfsemina en léku bæði í Ævintýri á gönguför og urðu fljótt ákaflega náin og gengu í hjónaband árið 1964. Kristín og Hreinn bjuggu fjögur ár í Reykjavík þar sem Kristín kenndi í Laugarlækjarskóla og Hreinn vann við smíðar og lauk prófi úr Iðnskólanum. Regína, elsta barn þeirra fæddist í Reykjavík 1966 og fluttist með þeim á Moskovits til Hornafjarðar norður- leiðina, því Skeiðará var óbrúuð. Hún sat í bílstól, sem þætti ekki mjög vandaður nú til dags, hún gat skriðið upp úr honum og lagst fyrir framan afturgluggann, en sem betur fer var umferðin hvorki mikil né hröð þá! Fluttu þau þá strax í Nesjaskóla, sem þá var í örum vexti sem heimavistarskóli og sóttu hann unglingar úr sveitum sýslunnar og stundum að austan líka. Á þessum árum komu yngri börn þeirra hjóna í heiminn, Steingerður og Pálmar, auk lítils drengs sem dó á öðrum sólarhring. Hreinn og Kristín bjuggu á tveimur stöðum í gamla hluta skólans við þröngan kost og voru ákaflega glöð þegar nýja heimavistin var risin og fengu þar afbragðs íbúð. Á þessum tíma byggði Hreinn núverandi heimili þeirra í Nesjahverfi, sem þau fluttu í árið 1979. Skóla- og félagsmálastörf Kristín kenndi við Nesjaskóla í 39 ár þar af 10 sem skólastjóri og átti þar margar góðar stundir. Kristín segir að henni hafi þótt mjög mikils virði að hafa Hrein á sama vinnustað, bæði sem smíðakennara og seinna í heilu starfi. Hreinn veitti sér síðan þann munað að taka kennarapróf þegar hann var 60 ára, sagðist í gríni hafa orðið að gera það þegar konan hans var orðin skólastjóri svo hún þyrfti ekki að segja honum upp! Þau störfuðu síðan við nýjan Nesjaskóla en hann sóttu öll börn frá Höfn, Nesjum, Mýrum og Lóni á aldrinum 6-8 ára og var Hreinn þar aðstoðarskólastjóri en Kristín sérkennari. Hreinn segir að á sínum ungdómsárum hafi ungmenna- félagshreyfingin lifað sitt blómaskeið með reglulegum fundarhöldum þar sem rædd voru hin ýmsu framfaramál. Þar fékk margur unglingurinn æfingu í að koma skoð- unum sínum á framfæri undir leiðsögn sér eldri og reyndari manna. Þar lærðu menn skipulögð vinnubrögð, fundarstjórn og fundarreglur og þar gafst líka kostur á að flytja texta í bundnu og óbundnu máli fyrir fundarmenn. Leiklistaráhuginn hefur fylgt þeim hjónum alla tíð. Hreinn lék mörg eftirminnileg hlutverk en Kristín var fremur að aðstoða leikstjórann. Síðustu árin hafa þau hjónin farið nokkrum sinnum með vinum sínum til Reykjavíkur til að fara í leikhús. Þau segjast flakka töluvert um landið og til útlanda líka, því þau viti ekkert unaðslegra en að hitta börn og barnabörnin sex og svo litla langömmu- og afastrákinn. Það er því auðséð að þau hjónin hafa nóg fyrir stafni. Stuðlabergsdrangarnir varða inngönguna í garðinn í Bjarnanesi. Minnismerkið um gömlu kirkjuna í Bjarnanesi setur svip á staðinn.

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.