Bautasteinn - 01.05.2018, Qupperneq 36
36
Möðruvallakirkja í Eyjafjarðarsveit er í um 27 km
akstursfjarðlægð frá Akureyri og þeir sem leið
eiga um sveitina ættu að stalda við á kirkju-
staðnum og skoða það sem fyrir augu ber. Víðsýnt er
einnig af hlaðinu á Möðruvöllum um framanverða
sveitina og ekki síst á fjallgarðinn vestanvert.
Við Möðruvallakirkju er klukknaport sem talið er vera frá
um 1780. Klukknaport voru algeng fyrr á öldum og fá
hafa varðveist fram á þennan dag. Klukknaportið við
Möðruvallakirkju virðist hins vegar hafa varðveist í
aðalatriðum í sinni upprunalegu mynd. Samkvæmt
lýsingum sem til eru hefur þakinu á portinu verið breytt á
síðari tímum og er nú ásaþak á portinu en var sperruþak
áður. Þá var upphaflega hlaðið torfi að portinu en undir
lok 19. aldar var sett grjóthleðsla í stað torfsins. Viðhald á
portinu hefur verið reglulegt og endurnýjaður í því viður
eftir því sem hann hefur fúnað. Klukkurnar í portinu eru
þrjár. Sú elsta er frá árinu 1769, önnur er frá 1799 og sú
þriðja er nokkuð yngri, eða frá árinu 1867.
Höfðingjasetur frá fornu
Möðruvellir eru sögufrægur staður en hann sat á söguöld
Guðmundur Eyjólfsson ríki, einn valdamesti höfðingi
landsins í lok 10. aldar og byrjun þeirrar 11. Talið er að
Guðmundur þessi hafi fyrst látið byggja kirkju á staðnum.
Seinna sat á Möðruvöllum annar nafntogaður höfðingi,
Loftur ríki Guttormsson.
Núverandi kirkja á Mörðuvöllum var vígð 1848, ein þeirra
kirkna á landinu sem eru turnlausar og vekja athygli sem
slíkar. Þrisvar hefur tæpt staðið með þetta fallega guðshús
í ofveðrum, síðast árið 1972 þegar kirkjan fauk til á
grunni sínum en þá kom til álita að hún yrði tekin niður.
Svo varð þó ekki og var gert við undirstöður og húsið
sjálft og var því verki lokið að fullu og kirkjan endurvígð
1988. Var þá aftur kominn í kirkjuna merkasti gripur
Möðruvellir í Eyjafjarðarsveit
Klukknaport og merk kirkja
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Möðruvallakirkja í Eyjafjarðarsveit og klukknaportið merka framan hennar.