Bautasteinn - 01.04.2003, Page 17
1716
Hólmsbergskirkjugarður í
Keflavík var tekinn í notkun
árið 1975 og hefur frá þeim
tíma þjónað Keflavíkursókn.
Hann gengur jafnan undir nafn-
inu „nýi kirkjugarðurinn“ þrátt
fyrir að nálgast þrjátíu ára notk-
un, en skýringin er sú að eldri
garður frá því um 1900 stendur
við Aðalgötu í Keflavík. Enn er
jarðað í frátekin legstæði í
gamla garðinum auk þess sem
gert er ráð fyrir duftreit þar.
Nægt rými
Hólmsbergsgarður stendur á
Hólmsbergi eins og nafnið gef-
ur til kynna og er hannaður af
Reyni Vilhjálmssyni. Við hönn-
un hans hefur verið tekið nokk-
urt mið af staðsetningunni sem
er skjóllítil og nálægt sjó. Erfiðlega hefur gengið að halda við
gróðri í garðinum, en í samvinnu við Skógræktarstöðina á Mó-
gilsá tókst fyrir nokkrum árum að finna ýmsar harðgerar víðis-
tegundir sem hafa þrifist ágætlega í garðinum. Skjólgóðar manir
hlífa garðinum úr öllum áttum, en hann er samsettur úr fer-
hyrndum reitum, öllum af sömu stærð og gerð. Fjórir reitir eru í
notkun núna, auk þess sem stefnt er að því að taka tvo reiti til
notkunar á næstunni. Alls er þó gert ráð fyrir 22 slíkum reitum í
garðinum og því ljóst að rými þrýtur ekki á næstu árum. Grafar-
stæði eru nú þegar um 1200 en
þeim mun fjölga í tæplega 1800
með stækkuninni.
Nýtt þjónustutorg
Sævar Reynisson er formað-
ur stjórnar kirkjugarðanna í
Keflavík og segir hann miklar
framkvæmdir hafa átt sér stað
undanfarin ár. „Upp úr 1991 var
svo komið að garðurinn var
hreinlega orðinn til vansa og
nauðsynlegt að fara út í fram-
kvæmdir. Fyrsta stóra fram-
kvæmdin var bygging þjón-
ustuhúss við garðinn, en aðrar
stærri framkvæmdir voru t.d.
malbikun vegarins inn í garð-
inn, uppsetning sáluhliðs, lýs-
ing garðsins og nú síðast frá-
gangur svokallaðs þjónustu-
torgs.“ Þjónustutorginu er ætlað að vera nokkurs konar mið-
punktur þar sem hægt er að geyma áhöld til garðyrkju, komast í
rennandi vatn og tylla sér niður í fallegu umhverfi, en hugmynd-
in er að setja þar niður bekki. Ætlunin er að slík torg verði gerð
með reglulegu millibili á milli reitanna í garðinum.
Eftirtektarvert sáluhlið
Sáluhliðið er sérstakt að því leytinu til að það er samsett af veg-
legum grjóthlöðnum veggjum til beggja handa og grjóthlaðinni
Hönnun tekur mið af erfiðum aðstæðum
Séð yfir einn reitanna í garðinum. Þarna sést vel hið „sér-keflvíska“ vandamál, rammar og girðingar utan um leiðin sem óneitanlega breyta
heildarmynd garðsins.
eyju þar á milli. Á eyjunni stendur 9,15 m hár kross, fjögurra
arma, sem sést úr öllum áttum. Stöpullinn undir honum er 1,6 m
og heildarhæð krossins því 10,75 m. Í krossinum er ljósleiðari
sem lýsir hann upp og er hægt að skipta um lit á lýsingunni, t.d.
um jól eða aðrar hátíðir. Sannarlega eftirtektarverð aðkoma að
garðinum og sérstæð. Til stendur að helluleggja vegarkaflann í
gegnum hliðið, en hann var ekki malbikaður þar sem menn ótt-
uðust að þrýstingurinn frá malbikunartækjunum gæti skaðað
grjóthleðslurnar.
Garðurinn hefur tekið stakkaskiptum
Elías Guðmundsson er umsjónarmaður garðsins og hann segir
framkvæmdirnar hafa verið nokkurt átak. „Hér þurfti að vinna
mikla jarðvegsvinnu, bæði fylla upp í og hækka land, auk þess
sem mikið hefur þurft að grjóthreinsa. En við erum nokkuð á-
nægðir með stöðuna í dag og garðurinn hefur tekið stakkaskipt-
um.“ Eitt er þó sem þeir Sævar og Elías kalla „sér-keflvískt“
vandamál, en það er sú hefð sem virðist hafa skapast í garðinum
fyrir því að setja upp smágirðingar eða ramma í kringum leiðin,
þrátt fyrir að slíkt sé ekki leyfilegt. „Þetta gerir alla hirðingu á
garðinum mjög erfiða og brýtur auk þess upp heildarmyndina
sem annars væri mun snyrtilegri og fallegri. Við höfum nú ekki
gengið svo langt að rífa þessa ramma upp, en það er alveg ljóst
að við munum ekki leyfa þá í nýju reitunum þegar þeir verða
teknir í notkun. Annað stórvandamál við hirðinguna er hvíta möl-
in svokallaða sem margir hafa sett á leiðin. „Hún er stórhættuleg
þegar unnið er með sláttuorf við leiðin og við höfum lent í því að
fólk hefur slasað sig þegar stykki af þessari möl hafa skotist í
vinnufólk við slátt og garðyrkju. Svo vill hún dreifast út á göngu-
stígana sem eru úr rauðamöl og það skapar enn meiri vinnu við
hirðinguna.“
Vinna við nýju reitina er langt komin, en Friðbjörn Björnsson
verktaki hefur séð um jarðvegsframvæmdir. Hólmsbergsgarður
er við veginn á milli Keflavíkur og Garðs og er ástæða til að
hvetja fólk til að staldra þar við og sjá hið sérstaka sáluhlið og
skemmtilega hannaðan garðinn.
Club Car raf- og bensínbifreiðar í úrvali.
Virtasta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum með 40 ára reynslu.
Hið sérstaka sáluhlið. Fjögurra arma krossinn rís í 10,75 m hæð.
Elías við grjóthleðsluna í sáluhliðinu sem er mannhæðarhá þar sem
hún er hæst.
Ljósmyndir: HGG.
Stiga sláttuvélar í úrvali.
Sænskar, einstaklega
notendavænar sláttuvélar
Komatsu Zenoah vélorf,
keðjusagir og limgerðisklippur.
Sterkbyggð, örugg og afkastamikil vinnutæki
Askalind 4, Kópavogur
Sími 564 1864 · Fax 564 1894
Netfang vetrarsol@vortex.isVetrarsól ehf.
Sævar Reynisson og Elías Guðmundsson á nýja þjónustutorginu.
Fré t t i r a f f ramkvæmdum