V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Side 13
Jóhann Þórir Jónsson:
Að ná sigri
Hér greinir augad alla heimsins dýrð
andinn þiggur kraft í friði nætur.
Og björgin eru í dögg af drottni skírð,
hver döpur vera óðar huggast lætur.
Húsbóndinn er í önnum hér
áhyggjur og syndir finnast hvergi.
Nú sé ég hvernig Guð um garðinn fer
og geislafingur þreifa á dökku bergi.
Hér þylur lífið þúsundradda brag
og þýður blærinn kyssir hamraveggi.
Undurfagurt nóttin leikur lag,
og lítill hnoðri gægist fyrst úr eggi.
Hafsteinn Stefánsson, Nótt i Paradis, Leyndarmál steinsins 1976.
Töfraheimi Vestmannaeyja verður seint lýst né því
seiðmagni, sem þær búa yfir. í mannsaldra hafa íbúar
eyjanna brotist áfram af elju og dugnaði og lagt drjúgan
skerf þeim, sem fastalandið byggja.
Einhvern veginn er það svo að sá sem eitt sinn hefur
komist í kynni við þær á ekki afturkvæmt í þeim skiln-
ingi. Seiðandi, heillandi draga þær til sín þá sem einu
sinni hafa kynnst töfrunum. Að þessu leyti finn ég skyld-
leika með skáklistinni, og eyjaskeggjar hafa löngum átt
ágætum skákmeisturum á að skipa eins og vel kemur
fram hér í blaðinu. Vestmannaeyingar hafa verið ódeigir
við að skera upp herör gegn skákmeisturum fasta-
landsins og margir okkar bestu skákmeistara hafa gist
hér í góðu yfirlæti þótt á ýmsu hafi gengið með vinning-
ana.
Mér hefur það verið sönn ánægja að starfa með skák-
mönnum eyjanna. Tvisvar höfum við komið upp helgar-
skákmót og nú stendur V. Alþjóðlega skákmótið
yfir hér í Vestmannaeyjum. Hvernig þetta allt gekk fyrir
sig fór að verulegu leyti fram hjá mér, en ekki síst þakka
ég árangurinn þessu áræðna hugarfari sem einkennir
mína menn. Aldrei svikkur. . . Jú, a . . . hafi það þetta
reddast einhvern veginn.
Og þannig hefur það einlægt verið. Von mín er sú að
þetta uppistand megi hafa farsæla framtíð.
Skáktafl er holl og góð iðja, sem fyrst og síðast hvetur
hugann og sjálfstæði einstaklingsins. Við skákborðið
er hann skipstjórinn og úrslitin ráðast af því hvernig
honum tekst ákvarðanatakan. Á skákborðinu blasir allt
við, en samt er allt huliö. Á sama hátt og skipstjórinn
leggur netin hagar skákmaðurinn sér. Það eftirsótta er
hulið. Það kostar áræði og þor ekki síður en skýra
hugsun að sigra.
Lagt er djarft á lífsins sjó
lagið hiklaust tekið.
Fargögn traust, af festu nóg
fleyið samanrekið.
Hafsteinn Stefánsson, Þ.Þ.V. Leyndarmál steinsins 1976.
11